Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.02.2021, Page 32
SUNNUDAGUR 14. FEBRÚAR 2021
Suðurlandsbraut 24
108 Reykjavík
Sími 554 6969
lur@lur.is • lur.is
Verið velkomin
í heimsókn
Mikið úrval
hvíldarstóla
fyrir alla
Hvíldin
byrjar í LÚR
LÁTTU ÞÉR
LÍÐA VEL
Rob Halford, söngvari málmbandsins fornfræga Judas Priest,
birti kostulegar myndir af sér á samfélagsmiðlinum Instagram á
dögunum, þar sem hann var klæddur í háhæla skó. Hann gerði
grein fyrir málinu í samtali við málmgagnið Metal Hammer en
Lzzy Hale, söngkona Halestorm, færði honum skóna að gjöf.
Böndin túruðu saman á sínum tíma og eftir eitt giggið fór Hal-
ford að dást að skóbúnaði Hale. Hún lét ekki segja sér það tvisv-
ar heldur sendi kappanum samskonar par í hans númeri.
Halford viðurkennir að myndatakan hafi verið mikil þrekraun
enda hafi hann búið við skert jafnvægisskyn í skónum, auk þess
sem fæturnir á honum voru grátt leiknir. „Þetta tók óratíma og
það var að líða yfir mig vegna sársauka. Eftir fimm eða sex
myndir þá henti ég mér í sófann, reif af mér skóna og nuddaði í
ofboði á mér fæturna, löðursveittur frá hvirfli til ilja. Þetta var
óborganlegt,“ segir Halford sem verður sjötugur á árinu.
Rob Halford í ham
með Judas Priest á
tónleikum.
AFP
Aðeins einn Rob Hælford
Rob Halford á hælunum góðu frá Lzzy Hale. Hann
hefur víst átt þægilegri andartök um dagana.
Instagram
Enginn kemst með tærnar þar sem Rob
„leðurlungu“ Halford hefur hælana.
Haldi menn að áhugi íslensku
þjóðarinnar á jóga sé kominn til
á seinni árum er það misskiln-
ingur. Í Morgunblaðinu fyrir
réttum 100 árum, 13. febrúar
1921, var frétt þess efnis að Þór-
bergur Þórðarson myndi halda
fyrirlestur um jógalífsspekina
indversku í Iðnaðarmanna-
húsinu kl. 5 síðdegis þann dag.
„Les hann ennfr. upp kafla úr
ritinu Karma-Yoga eftir speking-
inn Swanni Vivekananda. Má
þar búast við fróðlegu erindi og
fjölsóttu, því hin nýja kenning
hefir vakið mikla athygli hér á
landi,“ stóð í fréttinni.
Sérstaklega var tekið fram að
gefnu tilefni að Þórbergur hefði
hvergi flutt fyrirlesturinn áður.
Nóg var um að vera í Iðnaðar-
mannahúsinu á þessum tíma en
í sama tölublaði Morgunblaðs-
ins kom fram að Gunnlaugur
Claessen, læknir og forstöðu-
maður ljóslækningastofnunar-
innar hér á landi, myndi halda
fyrirlestur um radíum-lækn-
ingar nokkrum dögum síðar.
„Má ráða fólki eindregið til þess
að sækja fyrirlestur þennan, því
þar má eflaust heyra margt um
undraefnið mikla og þau
„kraftaverk“ sem læknisvísindin
gera á sjúkum mönnum með
því.“
GAMLA FRÉTTIN
Fyrirlestur
um jóga
Fátt var Þórbergi Þórðarsyni óviðkomandi, árið 1921 stúderaði hann jóga.
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Julianne Moore
leikkona
Rósa Guðbjartsdóttir
bæjarstjóri í Hafnarfirði
Ree Drummond
sjónvarpskokkur