Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.02.2021, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.02.2021, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21.2. 2021 Til er þorp inni í miðri Reykjavíkurborg. Byggðin er stendur við þröng- ar götur í brekku upp af Aðalstræti en afmarkast að öðru leyti af Tún- götu, Garðastræti og Vesturgötu. Gömul timburhús gerð upp til mikilla prýði eru í Grjótaþorpi, sem dregur nafn sitt af hverju? MYNDAGÁTA Morgunblaðið/Sigurður Bogi Af hverju Grjótaþorp? Svar:Grjótaþorpið er nefnt eftir Grjóta, hjáleigu frá Vík sem er gamla Reykjavíkurjörðin. Jörð varð grýtt í holtinu ofan við Vík og af því spratt nafnið Grjóti. Hnullungarnir voru tínd- ir burt og notaðir til byggingar Dómkirkjunnar sem var vígð árið 1789. Um miðja 18. öld var þarna svo orðið til bæjarhverfi sem nefndist Grjótaþorp. ÞRAUTIR OG GÁTUR

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.