Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.02.2021, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.02.2021, Blaðsíða 6
VETTVANGUR 6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.2. 2021 Ég hef alltaf litið á það sem kost ímínu fari að ég á frekar auðvelt meðað fá hugmyndir. Sumar þeirra hafa bara verið býsna góðar og komist til fram- kvæmda. Þannig hefur mér til dæmis tekist að búa til nokkra sjónvarpsþætti sem hafa lifað nokkuð lengi og stundum hef ég gefið vinum mínar ágætar hugmyndir sem hafa komið að góðu gagni. Og svo eru það hinar hugmyndirnar sem ég er ekki alveg viss um. Eins og sú sem ég setti fram í vikunni og hefur, að mér virðist, ekki verið tekin nógu alvarlega. Um stefnumótavef fyrir ketti. Um daginn varð ég þess áskynja að það er kattaskortur í Reykjavík. Ég geri mér grein fyrir því að í sumum hverfum hljóm- ar það ótrúlega. Sumstaðar er varla hægt að líta út um glugga án þess að sjá kött gangandi eins og hann eigi götuna. Og á mínu heimili er enginn sérstakur skortur á köttum og staðan jafnvel stundum þannig að við erum ekki alveg með töluna á hreinu. En fólk ætti að prófa að reyna að fá sér kettling. Það er ekki hlaupið að því. Það er auðveldara að fá pípara með korters fyr- irvara á aðfangadag en að fá lítinn og krúttlegan kettling. Ástæðan er fyrst og fremst sú að það er búið að gelda nánast alla ketti bæjarins. Það hefur nefnilega með tímanum orðið fastur liður í þroska- ferli katta að skottast með eiganda sínum á dýraspítala og láta taka öll þessi tól úr sambandi, eins og það er orðað svo pent. Tilgangurinn er venjulega að gera lífið þægilegra (altso fyrir eigandann). Það er nefnilega þannig með flest, ef ekki öll dýr, að þau eru einfaldari í meðförum þegar þau eru ekki að springa úr kynorku. Þá eru líka minni líkur á að þau týnist og ólíklegra að þau veki fólk um miðjar nætur með slags- málum og hávaða. Það þarf ekki að vera mikill sérfræðingur í líffræði til að átta sig á því að þetta dreg- ur að sjálfsögðu úr fjölgun. Geldir kettir fjölga sér ekki. Sem var reyndar hug- myndin þegar þetta fór af stað og til var stór stofn villikatta í Reykjavík. Nú hefur þeim hins vegar fækkað og það sem verra er: Köttum hefur fækkað. Því átti ég þessa (að mér fannst) frábæru hugmynd um að búa til Tinder fyrir ketti. (Fyrir þá lesendur sem ekki þekkja Tinder þá er það smáforrit í síma sem tengir ein- hleypt (eða það er að minnsta kosti hug- myndin) fólk saman. Yfirleitt í þeim til- gangi að eiga notalega kvöldstund saman í ekkert alltof miklum fötum. Ég tek það fram að ég hef enga reynslu af þessu en mér er sagt að þetta sé svona megintil- gangurinn.) Ég held nefnilega að sem flestir ættu að eiga kött. Þeir gera lífið betra, fallegra og skemmti- legra. Hver og einn hefur sinn sérstaka karakter og ef þeir verða vinir manns þá er það á góðan hátt. Þú getur til dæmis verið alveg öruggur um að þeir biðja þig aldrei um að hjálpa sér að flytja og þú lendir aldrei á trúnaðarstiginu með þeim. Við höfum líka frábær samtök eins og Kattholt og Villiketti sem bjarga köttum sem týnast og koma þeim aftur heim eða á góð heimili. En nú er staðan sú að það eru bara ekki til nógu margir kettir til að fylla heimili sem þurfa á þeim að halda. Eins og það væri orðað á viðskiptamáli: Það er um- frameftirspurn eftir þeim. Þess vegna er eitthvað heillandi við Tin- der eða einkamál.is fyrir auglýsingar um svona hluti fyrir ketti. Ég sé til dæmis fyrir mér svona auglýsingu: Ég heiti Bassi. Ég er eins árs, vel vaxinn, skilningsríkur og skemmtilegur högni. Hef áhuga á mat, fuglaskoðun og að leggja mig. Óska eftir að kynnast læðu með það í huga að gleðja fólk á höfuðborgarsvæðinu. ’Það er nefnilega þannigmeð flest, ef ekki öll dýr, aðþau eru einfaldari í meðförumþegar þau eru ekki að springa úr kynorku. Á meðan ég man Logi Bergmann logi@mbl.is Lífið í Kattholti IV Að mörgu leyti fer heiminumfram. Við fáum lækningumeina sem áður voru ólæknandi, komumst á milli staða, nánast óháð vegalengdum, tálm- unum og torfærum, höfum aðgang að upplýsingaveitum sem á sek- úndubroti opna þekkingarhirslur alls heimsins upp á gátt; við fáum heilu bækurnar lesnar í eyra okk- ar án þess að þurfa að hafa hið minnsta fyrir því og það sem meira er, ef við viljum nýta tíma okkar til hins ýtrasta, þá er hægt að auka hraðann á lestrinum þannig að við náum að fá lesnar tvær bækur í eyrað á sama tíma og það tók les- arann að lesa eina inn á hljóðbandið. Framlegð við hlustun er þannig tvöfölduð svo talað sé tungumál framleiðsluhagfræð- innar. En svo fer maður hugsa. Það er nefnilega það, að hugsa. Ég ákvað að reyna að hugsa þá hugsun eins langt til enda og ég kæmist, hvort nokkur hætta væri á því að við hættum að geta lesið eftir að vera lengi svona góðu vön. Og ef við hættum að lesa, væri þá ekki hætta á því að við glötuðum færni okkar til að skrifa? Ef enginn les orð þín, til hvers að skrásetja þau? En nú gerast góð ráð dýr. Hvað gerir einstaklingur sem er bók- staflega að springa úr andagift, en kann ekki að setja sín háfleygu orð á blað, og af blaði í bók; en vel að merkja í bók sem aðeins er les- in inn á hljóðband? Er þá ekki líklegt að milligöngu hins ritaða texta verði ekki lengur þörf; að sá sem býr yfir snjallri hugsun, fróðleik eða skáldskap og vill koma öllu þessu á framfæri vilji nú gera það beint og milliliða- laust, með eigin röddu inn á hljóð- bandið eða hreinlega beint úr sín- um munni í okkar eyra? Einmitt þarna erum við komin inn á gamla baðstofuloftið. Þar voru vissulega lesnir húslestrar, en einnig sagðar sögur og flutt ljóð. Menn ætla að fornsögurnar hafi í upphafi verið fluttar þannig mann fram af manni, kynslóð fram af kynslóð. Og á Lögbergi voru lögin mælt af munni fram. Þetta er ekki til að gera lítið úr. Orðlistin blómstrar í mæltu máli og þarf ekki að vera fangi prent- málsins. Ræðulist Rómverja byggði á því sem hugtakið lýsir; að mæla fram hugsanir sínar svo listilega að hrífi áheyrendur. Mörg þekkjum við Noam Chomsky, bandaríska þjóðfélags- rýninn, ekki endilega af texta sem hann hefur skrifað og við lesið, heldur af þeirri hugsun sem hann kemur á fram- færi við okkur í mæltu máli, í ræðu eða sam- tölum á netinu. En svo er það hitt, hvað það gefur að staldra við og hugsa og hand- leika. Fletta síðum bókar, blaðs eða tímarits, taka þátt í veislu Stefáns Ög- mundssonar, stofnanda Menning- ar- og fræðslusambands alþýðu, sem skrifaði í Prentarann fyrir rétt tæpum fjörutíu árum: „Þegar ég fór síðast í pósthús til þess að leysa út Skírni fannst mér eins og oft áður ég væri að stofna til eins konar veislu.“ Að vísu var það svo í þetta sinn að veisluhöldin orkuðu tvímælis þegar til kastanna kom því ekki var allt á síðum þessa heftis bókmenntaritsins að skapi Stefáns, en veisla var það eftir sem áður í hans huga. Ég gef mér það að á leiðinni á pósthúsið hafi Stefán gefið sér tíma til að hugsa og að sjálfsögðu án þess að hafa neitt í eyranu. Ekki einu sinni á einföldum hraða. Getur ekki einmitt verið ágætt að hafa þetta allt í bland, hljóð- bókina í eyranu, baðstofuna beint og Skírni til að handleika? Og er þá ótalið það sem mestu máli skiptir, að hugsa. Bara hugsa. Hægt og rólega. Hugsa, án þess að hafa minnstu áhyggjur af hraða og framlegð. Morgunblaðið/Ásdís Erum við á leið í baðstofuna aftur? Úr ólíkum áttum Ögmundur Jónasson ogmundur@ogmundur.is ’Ég ákvað að reyna aðhugsa þá hugsun einslangt til enda og ég kæm-ist, hvort nokkur hætta væri á því að við hættum að geta lesið eftir að vera lengi svona góðu vön. DUXIANA Reykjavik | Ármuli 10 | Reykjavik | +354 5 68 99 50 | www.duxiana.is GÆÐI OG ÞÆGINDI SÍÐAN 1926 DUX 1001 - VÍÐÞEKKT ÞÆGINDI Byggt á fyrsta DUX rúminu sem var framleitt árið 1926, þetta er sannarlega það sem draumar eru byggðir á.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.