Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.02.2021, Qupperneq 8

Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.02.2021, Qupperneq 8
VIÐTAL 8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.2. 2021 Í vonbrigðunum strax eftir grátlegt tap gegn Ungverjum í umspili um laust sæti á EM í nóvember síðastliðnum komst Kári Árnason svo að orði í samtali við fréttamenn að honum þætti ólíklegt að hann ætti eftir að leika fleiri landsleiki fyrir Ís- lands hönd. Þeir eru orðnir 86. Hann væri að sönnu orðinn 38 ára og léki með félagsliði á Ís- landi, þannig að líkurnar væru ekki endilega með honum. Þar sem við sitjum afslappaðir saman í stofunni heima hjá honum í Garða- bænum rúmum þremur mánuðum síðar er að- eins annað hljóð komið í strokkinn. „Ég er svo sem ekki að gera mér neinar vonir þegar nýr landsliðsjálfari tilkynnir sinn fyrsta hóp í næsta mánuði og er á þægilegum stað gagnvart liðinu og mínum tilfinningum. Ef landsliðsferli mínum er lokið þá er honum bara lokið og ég mun alls ekki móðgast þótt ég verði ekki valinn. Á móti kemur að lítið hefur breyst hjá mér á þessum þremur mánuðum. Ég er í svipuðu standi núna og í nóvember þegar ástæða þótti til að velja mig. Þetta lið hefur gef- ið mér margt og ég vonandi gefið því eitthvað líka. Ég hef eignast marga vini fyrir lífstíð á þessari löngu vegferð og myndi aldrei segja nei við landsliðið,“ segir hann. Ekki í fótbolta til að gefa „fimmur“ Yrði hann valinn myndi Kári heldur ekki gera kröfu um sæti í byrjunarliðinu. „Það á enginn neitt í landsliðinu og þegar Erik Hamrén tók við á sínum tíma var ég í raun kominn í þá stöðu að vera hópleikmaður. Erik sagði mér beint út að ég yrði ekki í byrjunarliðinu í fyrsta leik en hann vildi eigi að síður hafa mig með í hópnum. Síðan þróaðist það bara þannig að ég byrjaði flesta leiki undir hans stjórn. Ég hef aldrei verið í fótbolta til að vera bara á svæðinu og gefa „fimmur“ en séu aðrir valdir á undan mér í liðið stendur ekki á mér að styðja við bakið á þeim. Það breytir þó ekki því að ég myndi áfram reyna að standa mig og stefna á að spila. Það fer enginn í fótbolta til að sitja á bekknum.“ – Hefurðu gert nýja þjálfarateyminu grein fyrir þessari afstöðu? „Nei. Ég hef rekist á þá eftir að þeir voru ráðnir en ekki rætt þetta mál.“ Kára líst vel á nýja teymið, Arnar Þór Við- arsson landsliðsþjálfara, Eið Smára Guðjohn- sen aðstoðarmann hans og Lars Lagerbäck, sérlegan ráðgjafa þeirra. „Þetta er flottur hóp- ur. Arnar og Eiður eru ungir, bara fjórum árum eldri en ég. Ég þekki þá ekki sem þjálfara en þeir voru báðir frábærir leikmenn – Eiður sá besti í Íslandssögunni – og hafa því heilmargt fram að færa. Þeir virka mjög faglegir og ég er bjartsýnn á þeirra samstarf. Þeir eru líka mjög heppnir að fá Lars til liðs við sig; hann kemur inn með mikla þekkingu og væri ég að taka við liðinu hefði ég ekkert á móti því að hafa Lars með mér.“ Hann er bjartsýnn á gengi liðsins á komandi misserum og árum. Það hafi enn þá alla burði til að skila sér inn á stórmót. „Við vorum óheppnir með meiðsli í síðustu undankeppni; Jói [Jóhann Berg Guðmundsson] og Alfreð [Finnbogason] voru mikið frá, að ekki sé talað um Kolla [Kol- bein Sigþórsson] en þetta eru allt markaskor- arar. Gylfi [Þór Sigurðsson] tók það hlutverk nær alfarið á sínar herðar en við þurfum að fá framlag frá fleiri mönnum. Við skoruðum held- ur ekki eins mikið úr föstum leikatriðum og við erum vanir. Haldist þessir menn heilir í und- ankeppni HM stöndum við strax betur að vígi. Ég hef líka væntingar til þess að yngri menn láti meira að sér kveða; strákar eins og Hólm- bert [Friðjónsson] sem er sterkur og getur skorað mörk og Jón Dagur [Þorsteinsson] sem minnir um margt á Jóa og gæti leyst hann af. Það er miklu betra að láta strákana koma smám saman inn, einn og einn í einu, heldur en að henda þeim öllum inn á sama tíma. Þannig verða þeir betur í stakk búnir að axla meiri ábyrgð þegar eldri menn heltast úr lestinni. Það ætti líka að vera efniviður í U21-árs landsliðinu, sem er að fara á stórmót, og Arnar og Eiður gjörþekkja þá stráka eftir að hafa þjálfað þá og vita hverjir eru tilbúnir í aðalliðið og hverjir ekki.“ Þegar við höfum fengið nasaþefinn af stór- mótum segir Kári brýnt að hamra járnið meðan það er heitt; hlúa vel að umgjörðinni og gefa engan afslátt. „Það er algjört lykilatriði að halda áfram að byggja ofan á það góða starf sem átt hefur sér stað á vettvangi landsliðsins og knattspyrnusambandsins í heild.“ Það má heldur ekki gleyma grasrótinni og grunnvinnunni. „Það hefur margt breyst í ís- lenskri knattspyrnu á síðustu tveimur áratug- um; það fer ekki fram hjá manni þegar maður kemur aftur heim eftir langa dvöl í útlöndum. Tæknilega standa íslenskir leikmenn mun bet- ur að vígi en fyrir tuttugu árum en á móti kem- ur að gleymst hefur að leggja meiri rækt við taktísku hliðina. Það þurfum við að einhenda okkur í núna. Þá er ég að tala um það sem Bret- ar kalla „game manage- ment“, leikstjórn, ef vill. Þar getum við gert mun betur. Eðli málsins sam- kvæmt stendur varn- arleikurinn mér næst og þá er ég ekki að tala um einstaklinga heldur heildina. Lið verða að geta varist betur sem heild og við þurfum fleiri alhliða leikmenn. Ég sé þetta vel hjá Víkingi. Strákarnir sem koma upp í meistaraflokk hafa gjarnan verið bestir í sínum árgangi og verið hampað fyrir það sem þeir gera vel – meðan annað hefur setið á hak- anum. Það er mjög skrýtið að þurfa að kenna þessum strákum undirstöðuatriðin sem þeir ættu auðvitað að vera löngu búnir að læra og vera með á hreinu. Góðu fréttirnar eru aftur á móti þær að það er miklu auðveldara að kenna mönnum taktík en tækni. Allt er þetta spurning um nálgun; þegar ég var við nám í Bandaríkj- unum fyrir tuttugu árum hreifst ég til dæmis mjög af fótavinnunni sem var kennd í körfubolt- anum. Það er auðvitað önnur íþrótt en oft og tíðum snýst varnarleikur í fótbolta ekki síst um fótavinnuna. Hversu fljótir eru menn að bregð- ast við og loka svæðum. Þetta er auðvelt að kenna. Hugsanlega er ég of harður við ungu strákana sem ég er að æfa og spila með en von- andi hjálpar þetta þeim.“ – Þú hljómar eins og þjálfari núna. Er það stefnan? „Ég er að klára grunngráðu í þjálfun með- fram MBA-námi við háskóla í Skotlandi en hef hins vegar ekki gert upp við mig hvort hugur minn stendur til þess að þjálfa. Eins og staðan er núna þá hef ég meiri áhuga á yfirsýn og stefnumótun á breiðari grundvelli og það má al- veg koma fram hér að ég hef augastað á starfi yfirmanns knattspyrnumála hjá KSÍ. Ég hef séð og lært margt á löngum ferli í atvinnu- mennsku og verið partur af bæði versta og langbesta landsliði Íslandssögunnar og hef því þann samanburð. Ég brenn fyrir knattspyrn- unni í landinu og tel mig hafa margt fram að færa; ekki bara fyrir einstaka klúbba heldur þegar kemur að mótun heildarstefnu til fram- tíðar. Það á auðvitað við um fleiri félaga mína úr landsliðinu, þó ég geri mér ekki grein fyrir því hversu margir hafi áhuga á að fara út í þjálfun eða að leggja sitt af mörkum við stefnumótun og fram- tíðarsýn. Í öllu falli væri synd ef þessi kynslóð, sem býr ekki bara að mikilli reynslu, heldur ekki síður mikilli fótboltagreind, myndi ekki nýtast hér heima eftir að hún leggur skóna á hilluna. Það væri að kasta ómetanlegri þekk- ingu út um gluggann. Okkur þykir öllum óend- anlega vænt um landsliðið og viljum íslenskri knattspyrnu bara það besta.“ – Er húsbændum í Laugardalnum kunnugt um þessa afstöðu þína og vilja? „Já, ég hef rætt þetta við þá og þeim er kunn- ugt um hugmyndir mínar og áhuga á starfinu.“ Vill geta gengið eftir ferilinn Kári verður 39 ára í október og ekki þarf vísindamann til að átta sig á því að knatt- spyrnuferillinn styttist óðum í annan endann. Flestir eru löngu hættir á þessum aldri. „Ég verð með Víkingi í sumar, það er klárt, en lengra hef ég ekki hugsað það mál. Það er auðvitað klisja en núna tekur maður bara eitt ár í einu. Endurmetur stöðuna eftir hvert tímabil fyrir sig. Ég hef enn þá mjög gaman af þessu og er tiltölulega heill; ef ekki væri fyrir eitt slæmt hné þá væri ég í mjög góðu standi. Á móti kemur að ég vil geta gengið að ferlinum loknum og spilað golf, auk þess sem ég gæti aldrei hugs- að mér að verða byrði á liðinu mínu. Vonandi ber ég gæfu til að hætta áður en að því kemur.“ Kári er elsti útileikmaðurinn til að leika landsleik fyrir Íslands hönd, sló í fyrra met Guðna Bergssonar, núverandi formanns KSÍ. Maður hlýtur að grennslast fyrir um gald- urinn. Hvers vegna er hann svona slitgóður? „Galdurinn, já,“ segir Kári og hlær. „Ef ég vissi það nú. Ég fór til þess að gera seint í at- vinnumennsku, 22 ára, hafði að vísu spilað há- skólabolta í Bandaríkjunum þar á undan. Fyrstu árin var ég mikið meiddur, var góður ef ég náði tuttugu leikjum á ári. Þegar maður er á þessum aldri vill maður æfa mikið til að freista þess að bæta sig en það getur líka komið niður á líkamanum. Með tímanum lærði ég betur á líkama minn og hvað ég þurfti að gera til að halda mér heilum og í formi. Þegar ég fór til Englands 2009 komst ég til dæmis að því að sú rútína hentaði mér vel en að jafnaði voru leiknir tveir leikir á viku en æfingarnar bara þrjár. Í seinni tíð hef ég róað æfingarnar enn meira niður og sett meiri orku í leikina. Þetta er allt spurning um að finna rétta jafn- vægið. Það skiptir líka máli að hugsa vel um sig, sérstaklega þegar maður er kominn á þennan aldur, borða hollt, fá góða hvíld og annað slíkt.“ – Spila genin eitthvað þarna inn í? „Það má vel vera að genalottóið hafi eitthvað að segja. Ég bara hreinlega veit það ekki. Ég hef verið býsna heppinn með liðamót, bak og annað gegnum tíðina sem gerir mörgum erfitt fyrir,“ svarar Kári og bankar í viðarhilluna fyrir aftan sig. „Auðvitað hef ég fengið minn skerf af vöðvameiðslum en maður jafnar sig yfirleitt til þess að gera fljótt á þeim.“ Vaxinn upp úr skosku deildinni Menn læra að sníða sér stakk eftir vexti og eftir sjö ár í Englandi og Skotlandi fann Kári að hann þurfti að komast í rólegri deild. „Ég fann það raunar ári áður, veturinn sem við í Rother- ham tryggðum okkur sæti í B-deildinni eftir umspil við Leyton Orient á Wembley. Það tíma- bil lék ég yfir sextíu leiki að meðtöldum lands- leikjum. Eftir leikinn á Wembley fór ég beint í landsleik og bað um skiptingu í hálfleik. Var gjörsamlega búinn á því. Þarna áttaði ég mig á því að ég yrði að fara frá Englandi og þegar til- Segði aldrei nei við landsliðið! Kári Árnason er áfram til staðar fyrir íslenska landsliðið í knattspyrnu, verði nærveru hans óskað. Til lengri tíma litið vill hann nýta þekkingu sína og reynslu í þágu ís- lenskrar knattspyrnu og hefur augastað á starfi yfirmanns knattspyrnumála hjá KSÍ. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is ’Ég brenn fyrir knattspyrn-unni í landinu og tel mighafa margt fram að færa; ekkibara fyrir einstaka klúbba heldur þegar kemur að mótun heildarstefnu til framtíðar.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.