Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.02.2021, Qupperneq 17

Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.02.2021, Qupperneq 17
jöklafræðingur, svaraði: „Stutt svar við þessu er að jöklafræðingar telja að allt frá landnámstíð hafi Vatna- jökull verið samfelld jökulbreiða; reyndar styttri og lægri fyrstu sex til átta aldirnar en næstu tvær (að lok- inni svonefndri litlu ísöld). Jaðar Vatnajökuls gæti fram á 13. öld hafa legið 10- 15 km innar en nú er. Þó hefði þurft að ganga tugi kíló- metra yfir jökul hvort sem farið var suður Brúarjökul eða Dyngjujökul til Öræfa eða Suðursveitar. Sagnir eru til um gönguleiðir yfir Vatnajökul frá landnámsöld til loka 16. aldar. Samgöngur voru á milli Skaftafells í Öræfum og Möðrudals á Efra-Fjalli, og vermenn af Norðurlandi fóru yfir jökulinn á 15. og 16. öld til sjó- róðra í Suðursveit. Fljótsdælir fóru frá Eyjabakkajökli um Breiðubungu og að sporði Skálafellsjökuls. Úr Þingeyjarsýslu komu menn yfir Ódáðahraun og fóru upp Dyngjujökul.“ Það er óneitanlega merkilegt að svo langvarandi hitatíð í landinu hafi þó ekki gert jöklinum erfiðara fyr- ir um sína tilveru en þetta. En sjálfsagt fagnaðarefni fyrir hann að kuldinn tryggði að mannskapurinn, svangur og sárfættur, væri ekki að flækjast þarna á honum óboðinn. En svo var úti um þá kyrrð þegar snjósleðar og göngugarpar mættu þar öldum síðar. Haltu kjafti-umræða hefur aldrei gert gagn Vandi umræðunnar hér um heimshlýnun er marg- víslegur. Verstur er sá þáttur sem í raun bannar önnur sjónarmið í þessum efnum en „þau viðurkenndu“. Það eru óteljandi dæmi í sögunni sem sanna að ónýtt eintal ber dauðann í sér og gereyðir allri von um skiljanlega og heilsteypta niðurstöðu. En hitt er nógu slæmt að öllu er að auki grautað saman í henni af því að hún þolir ekki aðra meðferð. Látið er eins og þeir, sem hafi ekki sannfærst um fullyrðingar kirkjudeildarinnar um heimshlýnun, því að enn er þetta ekki annað, séu með því að draga birtar hitamælingar seinustu ára í efa og þar með séu efa- semdir þeirra um „Global Warming“ af sama meiði og sjónarmið þeirra sem höfðu trúað því að jörðin væri flöt eða að hún snerist ekki, heldur því að sól snerist um jörð sem óð væri. Það vantar flest ef ekki allt í málstað þeirra sem þannig ganga fram og þykjast samt vera í vísinda- legum erindagerðum. Vísindi sem hafna skoðun raka sinna eru einskis virði. Og þau eru auðvitað ekki vís- indi. Reyndar virtust það vera „hinir viðurkenndu vís- indamenn“ þeirrar tíðar og þeir, sem böðuðu sig í skjóli veraldlegra og trúarlegra valdhafa, sem héldu lengst í bábiljurnar, en ekki hinir fáu ofsóttu úr þeirra hópi – þeir sem muldruðu í barminn hæddir og smáðir: „Hún snýst nú samt.“ Það er fráleitt að ekki sé hægt að halda mælingum utan deilna. Þær geta aldrei enst sem efniviður. Hann snýst um það hvort mannkynið sé skyndilega orðið fært um að stjórna þróun veðurfars jarðar og það vald hafi því hlotnast á fáeinum árum, eftir að „vísinda- mönnum“ tókst að snúa sér frá yfirþyrmandi heims- endatali um ósonlagið, eftir að fáeinir framleiðendur hættu að nota spreybrúsa og kæliskápa og allt komst í lag! Horfinn heimsendir Það þykir óþægilegt þegar bent er á hvernig heims- fárið og galdurinn um yfirvofandi hvarf ósonlagsins gufaði upp. Búið var að hræða líftóruna úr góðu fólki, því sem helst er móttækilegt fyrir öllu, frá innrásinni frá Marz og niður úr. Þessar heimsendaspár voru allar sagðar sannar og réttar og allt stefndi í glötun væri þeim hafnað. En svo var haldin ein ráðstefna í Montreal! Til að komast frá heimsendakróganum. Árið 2009 gat Veðurstofan glaðst með aðdáendum sínum yfir því hversu vel tókst til: „Óson er sífellt að myndast, eyðast og flytjast til í lofthjúpnum með nátt- úrulegum hætti, en lengst af hélst heildarmagn þess óbreytt til lengri tíma og þar með ástand ósonlagsins. Undir lok áttunda áratugar síðustu aldar tók að gæta ósoneyðingar af mannavöldum, fyrst á Suðurskauts- landinu með myndun ósongatsins sem stækkaði frá ári til árs, en fljótlega einnig á norðurhveli þótt í minna mæli væri. Sökudólgurinn reyndust (!) svokölluð óson- eyðandi efni, einkum klórflúorkolefni (CFC) sem blás- ið var út í lofthjúpinn í sívaxandi mæli. Eftir 1990 fór alþjóðasamfélagið að taka á vandamálinu með um- fangsmiklum aðgerðum með þeim árangri að útblástur ósoneyðandi efna hefur minnkað verulega og glögg merki eru um að ósonlagið sé að taka nokkuð við sér aftur.“ Hægfara heimsendir og hættulaus En í nýlegu skrifi sömu stofnunar segir: „Á Veðurstofu Íslands hefur heildaróson verið mælt daglega yfir Reykjavík, frá febrúar til október, síðan 1957. Í þeim mæligögnum kemur fram ósonminnkun á níunda og tí- unda áratugnum en einnig að ósonmagn sé farið að aukast aftur síðustu ár. Líkanútreikningar á þróun ósonlagsins sem taka mið af hægfara minnkun ósoneyðandi efna í heiðhvolfinu spá því að ósonlagið muni ná fyrri þykkt um miðbik þessarar aldar og að þynningarsvæðið yfir Suður- skautslandinu muni hætta að myndast kringum 2040.“ En svo þetta En svo segja ábyrgir aðilar: „Gatið í ósonlaginu yfir Suðurskautslandinu hefur aldrei mælst stærra en í þessum mánuði. Alþjóðaveðurfræðistofnunin greinir frá þessu en segir að ekki þurfi að hafa miklar áhyggj- ur af þessu meti þó svo að ósonlagið verji allt líf á jörð- inni fyrir geislum sólarinnar. Miklar sveiflur eru á stærð gatsins í ósonlaginu yfir Suðurskautslandinu og er það oftast nær stærst á þessum tíma árs þegar mikill kuldi er í heiðhvolfinu. Í fyrra greindi Alþjóðaveðurfræðistofnunin frá því að mælingar gæfu til kynna að eyðing ósonlagsins væri í rénun. Var orsökin rakin til ársins 1987 þegar lagt var bann við notkun efna sem valda eyðingu ósonlagsins, þá sérstaklega flúorklóríðs. Stofnunin sagði hins vegar að það gæti liðið meira en áratugur þar til gatið í óson- laginu yfir Suðurskautslandinu færi aftur minnkandi og því full ástæða til að halda uppteknum hætti við að reyna að vernda ósonlagið fyrir skaðlegum efnum.“ Stóðu á ósongati. Afhjúpaðir og farnir annað Þeir sem áður hræddu heimsbyggðina upp úr skónum hefðu þá dansað stríðsdans yfir svona fréttum. En nú þegar batanum boðaða seinkar um nærri hálfa öld er slegið úr og í. En staðreyndin er sú að þeir vilja ekkert vita um boðaða heimshrunið út af ósonlaginu núna. Ósonlagið er núna aðeins eitt dægurlagið til. Það er bara óþægilegt. „Þetta var lagað á einni ráðstefnu í Montreal, muniði?“ Þá tóku menn sig á með spreybrúsana sem notaðir voru gegn svitalykt í handarkrikum og með kælitækin. Heimsendi var bjargað. Við flugum svo öll heim í þot- um af ráðstefnunni eins og við gerum alltaf til og frá öllum þessum heimsendaráðstefnum. Við erum búin að afskrifa ósonið. Við erum í öðru núna. Það væri kannski dálítið fróðlegt að skoða ósongötin núna og bera saman við ástandið þegar talið var nauð- synlegt að trylla heimsbyggðina. Ekki verður betur séð en að það sé mjög svipað. En svitalyktin hefur vissulega aukist. Sérstaklega á loftslagsráðstefnum. Er þetta í lagi? Morgunblaðið/Árni Sæberg 28.2. 2021 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.