Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.02.2021, Qupperneq 18
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.2. 2021
SKREKKUR
Ég kalla mig framkvæmdastjóraSkrekks,“ segir Harpa Rut Hilm-arsdóttir, verkefnastjóri barnamenn-
ingar hjá Reykjavíkurborg, sem hefur nóg að
gera þessa dagana við að undirbúa einn
stærsta viðburð unglinga höfuðborgarinnar.
„Ég elska Skrekk. Ég var áður unglinga-
kennari og óskaði þá alltaf eftir að fylgja
áhorfendum á Skrekk. Ég byrjaði því að fylgj-
ast með Skrekk fyrir um tólf árum. Ég held
núna utan um alla tauma,“ segir Harpa Rut og
nefnir að hún eyði á venjulegu ári heilum
tveimur mánuðum í vinnu við Skrekk, en Co-
vid hefur bætt vel við það.
Eins og heimsmeistaramót
„Þetta er risastór lýðræðis- og hæfileikahátíð
unglinga. Þarna fá unglingar að vinna með
hugmyndir sínar og þróa sviðsverk, en 35
nemendur frá hverjum skóla mega keppa fyrir
hönd síns skóla. Skólarnir eru með mismun-
andi fyrirkomulag því sumir eru með Skrekk í
valáfanga en aðrir krakkar vinna þessa vinnu
eftir skóla. Þetta er svo stór viðburður í hug-
um unglinganna, bæði þátttakenda, keppenda
og skólanna. Þetta er eins og heimsmeistara-
mót,“ segir Harpa Rut og segir undan-
úrslitakvöldin vera þrjú áður en kemur að
stóru stundinni, úrslitakvöldinu.
„Í ár eru átján skólar sem taka þátt, en
venjulega eru þeir fleiri. Og svo er gaman að
Klettaskóli er með, nú í
fjórða sinn. Krakkarnir
mega gera hvað sem er; það
eru fáar reglur í raun, þeir
mega ekki vera fleiri en 35;
þeir hafa sex mínútur á
sviðinu og mega nota
ákveðinn fjölda míkrófóna.
Þau byrja strax á haustin
að setjast niður og ræða
hvað þau vilja fjalla um. Það
er áhugavert í ár að það er
einungis eitt atriði sem
kemur inn á Covid. Líklega
hafa þau haldið að hinir
væru að fjalla um Covid og
vildu ekki vera eins og aðr-
ir,“ segir hún.
„Oft eru þau að fjalla um
sjálfsmynd unglinga, sitt
eigið líf og líðan og áskor-
anir. Í ár fjalla þau um sorg
og gleði, áföll, einhverfu og svo er einn skóli
sem gagnrýnir stjórnvöld fyrir að senda er-
lend börn úr landi. Þau eru mjög pólítísk. Þau
eru yfirleitt ekki mikið í gríninu,“ segir Harpa
Rut og segir þau nýta allar sviðslistir í atriðin;
söng, dans, leiklist og gjörninga.
„Krakkarnir sjá um allt; líka tæknihliðina,
búninga og smink. Fullorðnir eiga bara að
styðja þau.“
Stelpurnar í Ingunnarskóla kunna sannarlega danstakta og gátu stokkið hátt í loft.
Ljósmynd/Anton Bjarni
Laugalækjarskóli sýndi listir sínar á Skrekk 2019 með fallegu atriði þar sem dans kom við sögu.
Ljósmynd/Anton Bjarni
Ljósið í myrkrinu
í Covid
Hæfileikakeppnin Skrekkur er fram undan, en úrslitakvöldið
er 15. mars í beinni útsendingu á RÚV. Mikil spenna ríkir hjá
unglingum Reykjavíkurborgar. Niðurstöður rannsóknar sýna
að Skrekkur hefur mjög jákvæð áhrif á ungmenni.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
Krakkarnir úr Norðlingaskóla voru með flott atriði fyrir nokkrum árum.
Morgunblaðið/Hari
Jóna Guðrún
Jónsdóttir
Harpa Rut
Hilmarsdóttir
Þessir tveir voru svalir á sviðinu í Borgarleikhúsinu við fögnuð áhorfenda.
Ljósmynd/Anton Bjarni