Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.02.2021, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.2. 2021
ÍÞRÓTTIR
Það fer ekkert á milli mála að nýkona hefur tekið stjórnina ítennisíþróttinni. Naomi
Osaka er með þetta í hendi sér og
hefur opnað nýja vídd,“ sagði franski
tennisskýrandinn og gamla spaða-
drottningin Justine Henin á sjón-
varpsstöðinni Eurosport eftir sigur
þeirrar japönsku á Opna ástralska
mótinu um liðna helgi. Serena Willi-
ams hefur deilt og drottnað um langt
árabil en það var líklega táknrænt að
sú bandaríska var fórnarlamb Osaka
í undanúrslitum þar neðra. Landa
Williams, Jennifer Brady, var engin
fyrirstaða í úrslitunum.
Lífleg umræða hefur farið fram í
tennisheiminum í vikunni, þar sem
menn velta meðal annars fyrir sér
hvort Osaka hafi burði til að verða sú
besta frá upphafi, betri en Margaret
Court, Serena Williams, Steffi Graf
og Martina Navratilova. Sá eini sem
getur svarað því er gamli góði tíminn.
Þetta var fjórði alslemmungur
Osaka en þar er átt við sigur á fjórum
helstu tennismótum heims, Opna
ástralska, Opna franska, Wimbledon-
mótinu og Opna bandaríska. Hún
hefur nú unnið bandaríska mótið og
það ástralska hvort um sig í tvígang.
Þau mót eiga það sameiginlegt að
vera leikin á hörðu undirlagi, sem
hentar Osaka mun betur en leirinn á
Roland Garros-
völlunum í París eða
grasið á Wimbledon. Á
þeim mótum hefur hún aldrei
komist lengra en í þriðju um-
ferð. Osaka hefur verið að
sækja í sig veðrið á leir en á
enn í talsverðu basli á
grænni grund. Árið 2019
laut hún í gras á
Wimbledon fyrir
Yuliu Putintsevu
frá hinu dýrð-
lega en með
öllu ófræga
tennislandi
Kasakstan.
„Ég ólst
ekki upp við
að spila á grasi
en verð að læra
að fóta mig betur á
því undirlagi, eins
leirnum,“ sagði hún við
fréttamenn eftir sigurinn í
Ástralíu.
Spurð hvort hún vonaðist til að
vinna næsta mót á leir eða grasi svar-
aði Osaka: „Vonandi á leir, vegna
þess að það mót er á undan.“
Osaka varð í ársbyrjun 2019 fyrsta
asíska konan til að komast á topp
heimslistans í greininni en þær
Ashleigh Barty frá Ástralíu hafa
skipst á að verma það síðan.
Barty situr þar nú en Osaka er
númer tvö. Sú japanska vill að
sjálfsögðu endurheimta topp-
sætið og tengir það
við áform sín um
meiri stöðugleika;
hún hafi enn ekki
náð að leika vel
yfir heilt ár. „Ég
vil standa mig
vel á öllum mót-
um sem ég tek
þátt í. Það er mark-
miðið – að vera stöð-
ug árið út í gegn en
ekki að missa flugið í
miðjum klíðum, í júní eða
júlí, eins og ég hef gert til
þessa,“ trúði hún blaðamönn-
um fyrir í Melbourne.
Osaka er kraftmikill og sókn-
djarfur leikmaður og uppgjafir henn-
ar hafa verið mældar á 200 km hraða
sem skipar henni á bekk með tíu
hröðustu uppgefendum í sögu
kvennatennisins. Þá hefur hún unnið
markvisst í andlegu hliðinni og með
þeim hætti eflt einbeitingu sína og
dregið úr mistökum. Eftir fyrsta al-
slemmunginn á Opna bandaríska
2018 talaði Osaka um að hún væri
sjálfri sér verst og að hún flygist
gjarnan á við sjálfa sig, eins undar-
lega og það hljómar. Úr því hefur þó
dregið eftir að hún fór að vinna með
þjálfaranum Sascha Bajin. „Hann
hefur staðið sig vel í að ganga á
milli,“ sagði hún við fréttamenn.
Fæddist í Osaka
Naomi Osaka fæddist, merkilegt
nokk, í borginni Osaka í Japan, í
hverfi sem heitir því þjála nafni
Chuo-ku, 16. október 1997 og er því
23 ára að aldri. Móðir hennar, Tam-
aki Osaka, er japönsk en faðirinn,
Leonard François, frá Haítí. Naomi á
eina systur, Mari, sem er árinu eldri
og vinnur einnig fyrir sér með tennis-
leik. Systurnar fengu ættarnafn móð-
ur sinnar til að einfalda þeim lífið í
Japan en þar um slóðir hefur kerfið
tilhneigingu til að þyngjast í vöfum
hljómi eftirnafnið ekki japanskt.
Osaka var aðeins þriggja ára þegar
hún flutti til Bandaríkjanna með for-
eldrum sínum. Fyrst bar þau niður á
Long Island og þar hófst tennisferill
þeirra systra að áeggjan föður
þeirra. Sjálfur kunni hann minna en
ekkert fyrir sér í íþróttinni en hafði
heillast af ungum systrum á Opna
franska mótinu 1999. Þær heita Ven-
us og Serena og eru Williams. Árið
2006 flutti fjölskyldan búferlum til
Flórída til að systurnar gætu fengið
faglegri og betri þjálfun.
Það kann að skjóta skökku við að
kona sem ólst upp í Bandaríkjunum
frá þriggja ára aldri skuli leika fyrir
hönd Japans á mótum. Foreldrar
Osaka útskýrðu það í Wall Street
Journal árið 2018 að aldrei hefði ann-
að komið til greina. „Hún fæddist í
Osaka og ólst upp við japanska og ha-
ítíska menningu. Naomi og Mari
systir hennar hafa einfaldlega alltaf
upplifað sig japanskar og það vó
þyngst. Fjármál spiluðu aldrei inn í
þessa ákvörðun né heldur höfðu
tennissambönd landanna neitt að
segja,“ hefur blaðið eftir foreldrun-
um árið 2018. Í sömu grein kemur þó
fram að bandaríska tennissambandið
hafi lengi vel sýnt Osaka tómlæti og
ekki nálgast hana af neinni alvöru
fyrr en hún var orðin sextán ára.
Henni var þá boðið til æfinga í Boca
Raton í Flórída en hún afþakkaði.
Hún hefur ekki sóst eftir bandarísku
ríkisfangi. Osaka skilur japönsku vel
og tekur við spurningum á móður-
máli sínu á blaðamannafundum. Hún
kýs á hinn bóginn yfirleitt að svara á
ensku sem er henni tamari.
Fjölmiðlar vita ekki alltaf hvar
þeir hafa Osaka sem er í senn feimin
að upplagi og blátt áfram, auk þess
sem hún þykir hafa býsna bein-
skeyttan húmor. Hún hefur unnið
markvisst í feimninni undanfarin ár,
til dæmis með því að æfa sig í að
horfa í augun á fólki, og þakkarræður
hennar eftir sigra hafa farið batn-
andi.
Hún hefur látið til sín taka sem að-
gerðasinni í seinni tíð, meðal annars
með því að vekja athygli á lögreglu-
ofbeldi gegn þeldökkum í Bandaríkj-
unum. Hún var til að mynda viðstödd
mótmæli vegna dauða George Floyds
í Minnesota í fyrra. Fyrir vikið valdi
tímaritið Sports Illustrated hana per-
sónuleika ársins í íþróttaheiminum
og annað tímarit, Time, var með hana
á lista yfir hundrað áhrifamestu
íþróttamenn í heiminum.
Osaka er í sambandi með rapp-
aranum Cordae.
Osakadans-
inn dunar
Hin japanska Naomi Osaka vann sinn fjórða
stóra tennistitil á Opna ástralska mótinu fyrir
réttri viku, þrátt fyrir að vera aðeins 23 ára.
Framtíðin virðist björt en hver er
þessi unga afrekskona?
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Naomi Osaka gefur
upp í úrslitaleiknum
á Opna ástralska
gegn Jennifer Brady.
Osaka stolt með Daphne
Akhurst-bikarinn eftir sig-
urinn á Opna ástralska-
mótinu um liðna helgi.
AFP
AFP
’Fjölmiðlar vita ekki alltaf hvar þeir hafa Osakasem er í senn feimin að upplagi og blátt áfram, aukþess sem hún þykir hafa býsna beinskeyttan húmor.
... stærsti uppskriftarvefur landsins!