Fréttablað Knattspyrnudeildar Þróttar - 01.02.1970, Síða 7

Fréttablað Knattspyrnudeildar Þróttar - 01.02.1970, Síða 7
FRÉTTABLAÐ ÞRÓTTAR 7 ekki nema sex vikur til að gera 34 mörk og dugði það vel til þess að hann héldi titli sínum sem marka- hæsti maður landsins. Oft hefur verið reynt að fá Pele keyptan frá Santos, en slíkt er ekki á færi neins eins félags vegna þess hve háar upphæðir er um að ræða. Því var það eitt sinn að þrjú ríkustu félög Ítalíu „slógu saman í púkk“ og buðu Santos 2 milljónir dollara fyrir Pele. Þáverandi for- seti Brasilíu lét hendur standa fram úr ermum í þessum aðsteðj- andi þjóðarvoða. Hann lýsti því yfir, að Pele væri þjóðardýrgripur, sem ekki mætti flytja úr landi. En félagið hafði alls ekki hugsað sér að sleppa hendinni af Pele. Einn af stjórnarmönnum félagsins lét sér þessi orð um munn fara: „Ef við seldum Pele, yrðum við teknir af lífi án dóms og laga“. Pele hefur oft verið nefndur „knattspyrnukonungur“ og sannað- ist það að það eru ekki öfugmæli er hertoginn af Edinborg kom í opinbera heimsókn til Brasilíu og lét í ljós ósk um að fá að sjá Pele leika og votta honum persónulega aðdáun sína annað hvort á undan Pele með heimsmeistarabikarinn. leik eða að honum loknum. Dög- um saman veltu starfsmenn Brasil- íska utanríkisráðuneytisins fyrir sér þessum vanda: „Átti hertoginn að ganga niður á völlinn til þess að heilsa Pele, eða átti Pele að ganga upp á heiðurspall hertog- ans til þess að taka við lofi hans“? Hertoginn leysti sjálfur þennan vanda. Áður en leikurinn 'hófst, gekk hertoginn niður á völlinn á Pacaempuleikvanginum í Sao Paulo til þess að heilsa Pele með handabandi. Brasilískur blaðamað- ur skrifaði á eftirfarandi 'hátt um þennan atburð: „í konungdæmi knattspyrnunnar, sem öll ríki ver- aldar teljast til, er Pele hinn eini konungur. Æðri hans hátign er að- eins máttur og veldi Himnaríkis". ÆFINGARTAFLA Mfl. og 1. fl. Þriðjudaga kl. 10.20—11.10 á Seltjarnarnesi Fimmtudaga kl. 6.30—8.00 á Þróttarvelli Föstudaga kl. 8.30—9.20 í Álftamýrarskóla 2. fl. Sunnudaga kl. 6.00—6.50 í Álftamýrarskóla Þriðjudaga kl. 10.20—11.10 á Seltjarnarnesi Miðvikudaga kl. 6.30—8.00. á Þróttarvelli 3. fl. Mánudaga kl. 8.30—9.20 að Hálogalandi Miðvikudaga kl. 9.20—10.10 að Hálogalandi 4. fl. Miðvikudaga kl. 8.30—9.20 að Hálogalandi Laugardaga kl. 4.20—5.10 í Réttarholtsskóla 5. fl. A—B. Laugardaga kl. 5.30—6.20 í íþróttahöll 5 fl. C-D. Laugardaga kl. 3.30—4.20 í Réttarholtsskóla 6. fl. Laugardaga kl. 2.35—3.50 að Hálogalandi Garryncha og Gylmar fagna Pele eftir að hann hafði gert síðasta mark úrslitaleiks heimsmeistarakepninnar 1958 gegn Svíum.

x

Fréttablað Knattspyrnudeildar Þróttar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablað Knattspyrnudeildar Þróttar
https://timarit.is/publication/1574

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.