Morgunblaðið - 10.03.2021, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. MARS 2021
STYRKUR -HAGKVÆMNI -HÖNNUN
LANDSHÚSLandshús - Sími 553 1550 - landshus.is
KLETTARHEILSÁRSHÚS
Klettareru sterkbyggðhús – sérhönnuðaf Efluverkfræðistofu.
Húsineruhefðbundin timburgrindarhús semeru Íslandi aðgóðukunn.
Húsinafhendastósamsett, aðhluta í forsmíðuðumeiningumogaðhluta
semforsniðiðefni.Hentug lausnviðþröngaraðstæður.
Uppsetninghúsannaerafarfljótleg.
Klettar erumeðrúmgóðusvefnlofti
(hæð2,1m) semeykurnotagildi
hússinsumtalsvert.
Klettar 65 –Grunnverð kr. 8.373.000,-
Klettar 80 –Grunnverðkr. 10.807.000,-
Ítarlegar upplýsingar og
afhendingarlýsingumá
finna á vefsíðu okkar.
Húsið ámyndinni er af
gerðinni Klettar 80 sem
reist var 2019 á Vesturlandi.
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Vill matvælaklasa og háskóla í Árborg
Hugmynd um háskólamenntun tengda matvælaframleiðslu Í góðu samræmi við matvælastefnu
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Kolbeinn Óttarsson Proppé, þing-
maður Vinstrihreyfingarinnar –
græns framboðs, leggur til að á Ár-
borgarsvæðinu
verði hafin upp-
bygging háskóla-
náms sem tengist
matvælafram-
leiðslu. Það kem-
ur fram í viðtali í
Dagmálum í dag,
sem aðeins er op-
ið áskrifendum
Morgunblaðsins
og er á mbl.is.
Í þættinum var m.a. rætt við Kol-
bein og Pál Magnússon, þingmann
Sjálfstæðisflokksins, um atvinnumál í
Suðurkjördæmi. Kolbeinn nefndi
uppbyggingu háskólamenntunar á
sviði matvælaframleiðslu sem aug-
ljóst tækifæri, miðsvæðis í einhverju
blómlegasta matvælaframleiðsluhér-
aði landsins.
Allt til alls á svæðinu
Hann nefndi að auk ótal matvæla-
framleiðenda væri þar margháttuð
tengd starfsemi fyrir, svo sem
MAST, Garðyrkjuskólinn og rann-
sóknamiðstöðin í Gunnarsholti. „Hér
er allt til alls.“
Hann nefnir að þar ætti að koma
upp háskólamenntun tengdri búfjár-
ræktinni. „Við erum ekki að slátra í
póstnúmeri 107, heldur úti á landi.“
Hann minnti og á að þar væri jarðhiti
til ylræktar, ákjósanlegar aðstæður
til yrkisræktar, „sem sárlega vantar
til að við getum sinnt kornræktinni
betur, svo hún nýtist betur til mann-
eldis“.
Kolbeinn bendir á að slík áform
komi vel heim og saman við mat-
vælastefnuna, en eins og heimsfar-
aldurinn hafi sýnt, þá þurfi þjóðin
að vera sjálfri sér nægari um mat-
væli.
Kolbeinn kveðst hafa rætt þess-
ar hugmyndir með óformlegum
hætti og fengið góðar viðtökur, þó
hann hafi ekki fært það í tal við við-
komandi ráðherra samstarfsflokk-
anna. En verður þetta kosninga-
mál? „Ég ætla að gera það að
kosningamáli.“
Morgunblaðið/Bogi
Árborg Kolbeinn Proppé telur Árborgarsvæðið ákjósanlegt til þess að koma
upp matvælaframleiðsluklasa og háskólamenntun á því sviði.
Kolbeinn
Óttarsson Proppé
„Ákvörðunin er
tekin þannig að
upphaflega þegar
úrskurðurinn
kom þá leitaði ég
til sérfræðinga á
sviðinu til að láta
meta hann. Fram
kom þá að það
hefði ekki verið
sýnt með full-
nægjandi hætti
að kæranda hefði verið mismunað á
grundvelli kynferðis í fyrsta lagi og í
öðru lagi að það væri ekki hlutverk
kærunefndar að endurmeta sjálf-
stætt hvern hefði átt að skipa í emb-
ættið.“
Þetta sagði Lilja Alfreðsdóttir,
mennta- og menningarmálaráð-
herra, í samtali við mbl.is í gær um
það hvers vegna ákveðið var að
áfrýja dómi Héraðsdóms Reykjavík-
ur þar sem hafnað var kröfu ráð-
herra um að úrskurður kærunefndar
jafnréttismála yrði ógiltur.
„Þetta er það sama og umboðs-
maður Alþingis segir um málið. Þess
vegna var þessi ákvörðun tekin,“
bætti Lilja við. Með úrskurðinum
komst kærunefndin að þeirri niður-
stöðu að ráðherra hefði brotið jafn-
réttislög með ráðningu Páls Magn-
ússonar í stöðu ráðuneytisstjóra í
stað þess að ráða Hafdísi Helgu
Ólafsdóttur.
Segir ekki sýnt
fram á mismunun
Lilja bendir á afstöðu umboðsmanns
Lilja
Alfreðsdóttir
Seyðfirðingar fjölmenntu á höfn-
ina til að taka á móti Norrænu í
hennar fyrstu ferð til Íslands eft-
ir mikla andlitslyftingu. „Þetta er
gleðidagur þótt fögnuðurinn sé
lágstemmdur vegna aðstæðna.
Mikið hefur gengið á og Seyðfirð-
ingum þótti gott að sjá ferjuna
koma. Vonandi getum við sem
fyrst farið að koma með fullt skip
af farþegum,“ segir Linda B.
Gunnlaugsdóttir, framkvæmda-
stjóri Smyril Line á Íslandi.
Með ferjunni í fyrstu ferð eftir
viðgerðir og andlitslyftingu voru
77 farþegar og 36 bílar, auk
vöruvagna. Linda segir að vel
hafi gengið að afgreiða farþeg-
ana enda verið búið að hafa sam-
band við þá alla til að vekja at-
hygli á nýjum reglum um vottorð.
Einhverjir hafi ekki haft ráðrúm
til að afla sér nauðsynlegra
skjala og muni lögreglan vænt-
anlega sekta þá.
Siglingin frá Þórshöfn í Fær-
eyjum gekk vel. Linda hefur eftir
Pétri av Vollanum skipstjóra að
skipið láti mjög vel í sjó þrátt
fyrir að skipið hafi þyngst um
533 tonn við það að byggt var yf-
ir níundu hæðina og bar og kaffi-
húsi komið fyrir á tíundu hæð-
inni.
Fáar bókanir eru næstu vikur,
30-50 farþegar í ferð. Vonast
Linda til að ástandið lagist með
tímanum og hömlur á ferðalög
verði linaðar. Þá hefur Smyril
Line fengið ágæt viðbrögð við til-
boði til Íslendinga um ferð með
bíl með skipinu til Færeyja og
gistingu á hóteli fyrirtækisins þar
í fjórar nætur. Tilboðið gildir í
maí og nú þegar er ein dagsetn-
ingin uppseld. helgi@mbl.is
Margir
huga að
Færeyjum
Seyðfirðingum þótti gott að sjá Norrænu koma á ný til hafnar eftir tíu vikna viðgerðahlé og andlitslyftingu
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
Seyðisfjörður Norræna tekur snúninginn áður en hún leggst að ferjubryggjunni. Hlíðin sem aurflóðin féllu úr blasir við.
Áslaug Arna Sig-
urbjörnsdóttir
dómsmálaráð-
herra segir að út-
tekt Jóns Stein-
ars Gunnlaugs-
sonar, fyrrver-
andi hæstarétt-
ardómara, sem
hún bað hann um
að inna af hendi
feli ekki í sér sér-
staka úttekt á rannsóknum kynferð-
isafbrota. Ráðherrann mætti harðri
gagnrýni í gær fyrir að fela Jóni
Steinari það hlutverk að vinna út-
tekt á málsmeðferðartíma í réttar-
kerfinu m.a. frá Kvenréttindafélagi
Íslands, Stígamótum, ungliðahreyf-
ingum stjórnarandstöðuflokka og
þingmönnum. Gagnrýninni vísar
hún á bug.
Ekki sér-
stök úttekt
Áslaug Arna
Sigurbjörnsdóttir