Morgunblaðið - 10.03.2021, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. MARS 2021
TUDOR rafgeymar
TUDOR TUDOR
Er snjósleðinn tilbúinn
fyrir páskana?
Bíldshöfða 12 • 110 Rvk • 577 1515 • skorri.is
Mikið úrval - Traust og fagleg þjónusta alla leið
Veldu
öruggt
start með
TUDOR
Höskuldur Daði Magnússon
Ragnhildur Þrastardóttir
„Þetta hefur gengið glimrandi vel.
Hingað hefur verið mikill straumur
af fólki,“ segir Ragnheiður Ósk Er-
lendsdóttir, framkvæmdastjóri
hjúkrunar hjá Heilsugæslu höfuð-
borgarsvæðisins.
Bólusett var í Laugardalshöllinni
í gær. Að sögn Ragnheiðar var fólk
sem fætt er 1940, 1941 og 1942 boð-
að í bólusetningu og örfáir eldri en
það sem ekki hafa átt kost á að
þiggja bólusetningu fyrr. Þá voru
heilbrigðisstarfsmenn 65 ára og
eldri boðaðir í Höllina í gær sem og
lítill hópur af heilbrigðisstarfsmönn-
um á aldrinum 16-18 ára.
Ragnheiður segir aðspurð að um-
ræddur hópur starfi við umönnun á
öldrunarheimilum og má hann ekki
fá annað bóluefni en Pfizer, rétt eins
og fólk yfir 65 ára. „Allt í allt eru
þetta um 3.000 manns og við eigum
von á því að bóluefni dugi vel fyrir
þann hóp,“ sagði Ragnheiður um
miðjan dag í gær.
Fram kom á vef landlæknis í byrj-
un vikunnar að um sjö þúsund ein-
staklingar verði bólusettir á landinu
í vikunni. Þar af eru 3.300 sem fá
fyrri bólusetningu af bóluefni Pfizer.
Þá séu 3.700 skammtar af bóluefni
AstraZeneca ætlaðir starfsmönnum
í forgangshópi 4 og öðrum heilbrigð-
isstarfsmönnum.
Eftir að kórónuveirusmit voru
greind um helgina og óvissa ríkti um
framvindu faraldursins var ákveðið
að leggja aukna áherslu á bólusetn-
ingu heilbrigðisstarfsmanna til að
kerfið væri í stakk búið til að takast
á við mögulegt álag. Sem kunnugt
er var einn hinna smituðu starfs-
maður á göngudeild lyflækninga
Landspítalans og hafði hann ekki
verið bólusettur.
„Nú er verið að reyna að klára að
bólusetja heilbrigðisstarfsmenn inn-
an stofnana áður en við förum í
starfsfólk utan stofnana. Við erum
búin að bólusetja alla heilbrigðis-
starfsmenn innan heilsugæslunnar
en það eru eftir nokkrir innan Land-
spítalans. Planið er að klára þær
bólusetningar í næstu viku. Ég held
að þeir séu með 2.400 skammta í
þessari viku og þúsund í næstu viku.
Þetta er allt að koma á Landspít-
alanum,“ segir Ragnheiður.
Aðspurð segist hún ekki vita
hvernig bólusetningum verði hagað í
næstu viku. Ekki séu fyrirliggjandi
upplýsingar um þá skammta sem
verða tiltækir þá. „Við höfum oftast
fengið upplýsingar þar um á mið-
vikudegi eða fimmtudegi og þá setj-
um við upp plan fyrir næstu viku.“
Fólk með sjúkdóma bólusett
Bólusetning fólks með undirliggj-
andi sjúkdóma hefst í apríl, sam-
kvæmt bólusetningardagatali
stjórnvalda. Þórólfur Guðnason
sóttvarnalæknir segir að þar sem
bólusetningin hefjist ekki alveg
strax hafi ekki verið gefið út hverjir
falli inn í þann hóp. Hann segir þó
ljóst að allir sem séu með ónæmis-
bælandi sjúkdóma falli þar undir,
t.a.m. krabbameinssjúklingar.
Sjö þúsund bólusettir í vikunni
Um þrjú þúsund manns voru boðaðir í bólusetningu í Laugardalshöll í gær Eldri heilbrigðisstarfs-
menn í bland við þá allra yngstu fengu sprautu Rík áhersla lögð á að bólusetja heilbrigðisstarfsmenn
Morgunblaðið/Eggert
Annir Um þrjú þúsund manns voru boðaðir í bólusetningu í Laugardalshöll í gær. Raðir mynduðust en allt gekk vel.
Bólusetningar við kórónuveiru
Fjöldi daglegra skammta frá 29. des. 2020 til 7. mars 2021
Hlutfall bólusettra eftir aldri
70-79 ára 80-89 ára 90 ára og eldri
Aðrir aldurshópar: <7%
Pfi zer
Moderna
AstraZeneca
des. janúar febrúar mars
2.525
2.416
3.772
1.385
3.334 2.859
2.274
Bólusetning hafi n
Fullbólusettir
53% 5%
74%29%
Alls
9%
Alls
82%
Alls
79%
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Tölvufyrirtækið Oz er talið með 10
frumlegustu fyrirtækjum á sviði
íþróttatækni í heiminum í nýjasta
tölublaði viðskiptaritsins Fast
Company.
Oz varð fyrir valinu vegna hug-
búnaðar fyrirtækisins, sem hefur
gert íþróttaáhugafólki kleift að eiga
sína upplifun áfram, þó það sé víðs
fjarri leikjum vegna sóttvarna-
ráðstafana.
Með tækninni má láta mann-
lausar áhorfendastúkur líta út fyrir
að vera stappfullar af áhorfendum,
en til þess er notuð gervigreind,
þjarkar og rauntímagreiningar-
tækni til að galdra fram þennan
sýndarveruleika í takt við gang
leiksins.
Þannig geta áhorfendur sem eiga
miða á leikina jafnvel sést á leik-
vanginum í viðeigandi treyjum og
tekið þátt með hrópum og söngvum
líkt og þeir væru raunverulega á
staðnum. Með tækni Oz má þannig
gæða leikina lífi, sem þá skortir til-
finnanlega í eyðilegum íþrótta-
leikvöngum á dögum heimsfarald-
ursins.
Fast Company er virt bandarískt
viðskiptatímarit sem kemur út
mánaðarlega í um 700.000 eintök-
um. Það beinir einkum sjónum að
hátækni og er óhrætt við að bolla-
leggja um framtíðina. Lesendahóp-
urinn tekur mið af því og er tíma-
ritið mjög áhrifamikið meðal
áhættufjárfesta.
Oz með frumleg-
ustu fyrirtækjum
ársins 2021
Í kastljósi í tímaritinu Fast Company
Fast Company Umsögn bandaríska
tímaritsins um sýndarveruleika Oz.
Tvö kórónuveirusmit greindust
innanlands á mánudag og þrjú
til viðbótar í gær, en mikill fjöldi
var skimaður vegna nýrra smita
innanlands á laugardag. Báðir
þeir sem greindust á mánudag
voru utan sóttkvíar og fóru í
einkennasýnatöku. Bæði smitin
tengjast öðru innanlandssmit-
inu sem greindist um helgina.
Ekki liggur fyrir hvort þau eru af
breska afbrigðinu.
Í gær greindust þrjú smit eins
og áður sagði. Þar af eru tvö
sýnin lág-jákvæð og er þar
mögulega um að ræða gömul
smit. Um þriðja er ekki vitað.
Fimm smit
greindust
MIKILL FJÖLDI Í SKIMUN