Morgunblaðið - 10.03.2021, Síða 14

Morgunblaðið - 10.03.2021, Síða 14
14 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. MARS 2021 Að heyra dags- daglega eru fæstir að hugsa um, hvað þá að velta fyrir sér heyrn sinni. Stærsti hluti þjóðarinnar er hepp- inn og hefur fulla heyrn. Í nútímanum vitum við svo miklu meira um heyrn og hvar sú stóra gjöf getur orðið fyrir áföllum. Þar sem ég vinn fyrir eldra fólk þá er það eitt af mörgu sem þarf að ræða um og þekkja en það er hver sé staða eldra fólks og heyrnartap. Ná- kvæmar tölur eru ekki til en á síð- ari árum hefur fjölgað ört í hópi eldra fólks sem notar heyrn- artæki. Í áranna rás hafa heyrn- artæki og önnur hjálpartæki farið stigbatnandi. Mér er minnisstætt þegar amma mín fékk heyrn- artæki sennilega 1957 en það var lítill hlutur til að hengja í nærbol og leiðsla í eyrun. Rafhlaða var í tækinu en brak og brestir og mjög viðkvæmt að stilla. Ískur gat líka verið truflandi. Við þetta þurfti aldrað fólk hjálp. Nú er öldin önnur og orðið algengt að til séu vönduð heyrnartæki. Mik- ilvægi þess að nota þau er gríð- armikið, snertir öll samskipti og hindrar einangrun. Talið er að einangrun vegna heyrnarskerð- ingar valdi ákveðnum sjúkdóm- um. Í dag geta allir fengið heyrn- armælingu og ef í ljós kemur að skerðingin er yfir ákveðin desíbil þá liggur leiðin í að velja heyrn- artæki við hæfi. Úr miklu er að velja og einnig fjölbreytt verð. Því er mikilvægt að kynna sér vel hvað er í boði og hvort viðkom- andi eigi rétt á að fá styrk frá TR og jafnvel frá sínu stéttarfélagi en þar getur legið mál í óskilum því mat fólks er að það eigi rétt í sín- um sjúkrasjóði vegna þess að fyr- ir áratugum var samið um lægri laun sem nam iðgjaldi í sjúkra- sjóð. Ef styrkurinn er skattlagður getur það haft áhrif á styrk TR líka. Síðan er hægt að sækja um viðbótarstyrk hjá TR sem er kall- aður uppbót á lífeyri en um það gilda reglur um tekjur. Upplifun á heyrnarskerðingu er misjöfn en segja má að nokkrar bjöllur klingi þegar fólk kallar upp á fund- um „viltu tala hærra“, að sjónvarp og útvarp þurfi að hækka til að ná því sem hentar fólki. Ef fólk á maka er hann/hún oft fyrst til að átta sig á að breyting er í gangi. Hvatning kemur þá fram um að fara í heyrnarmælingu og kemur þá í ljós að heyrnartækis er þörf. Þá koma næstu við- brögð sem geta verið að bíða að- eins, að líka ekki tilhugsunin að fá sér tæki og/eða sjá fyrir sér vandamál. Best er þá að fara í við- tal og fá ráðgjöf. Það er verst að gera ekkert. Venjulega hrakar heyrn en afar misjafnt er hversu hratt. Endurmat getur farið fram hvenær sem er en almennt er gert ráð fyrir fimm ára tímabili. Ef heyrn hrakar mikið má sækja um undanþágu hjá TR um að fá fyrr niðurgreiðslu. Mikilvægt er að hlúa líka að aðstandendum því álag vegna heyrnarskerðingar getur tekið í. Margir upplifa nýtt líf með nýjum tækjum því tæknin er líka vaxandi. Þannig má hækka og lækka í sumum tækjum t.d. gegnum símann. Vaxandi tækni er líka kölluð velferðartækni og er innleiðing hennar komin á fullt. Nýjungar í gerð og möguleikum heyrnartækja flokkast undir vel- ferðartækni. Best er að tala beint til fólks og tala skýrt. Og á sama hátt má gera kröfu til þess heyrnarskerta að nota heyrnartækin til að auka gæði samskiptanna. Talið er að allt of margir á Íslandi veigri sér við að fara í mælingu og fá hjálp við heyrnarskerðingu jafnvel hjá nokkrum þúsundum manna. Í dag er engin skömm að því að fá hjálp því heyrnartæki og annar stuðn- ingur er eins sjálfsagður og að ganga við staf ef þarf. Allir gamlir fordómar eru löngu úreltir. Mannréttindi eru svo mikilvæg og þau eru fyrir okkur mannfólkið. Þannig er það alltaf. Heyrn er dýrmæt Eftir Þórunni Sveinbjörnsdóttur Þórunn Sveinbjörnsdóttir »Ein af þeim stóru gjöfum sem flestir fá í vöggugjöf. Höfundur er formaður Landssambands eldri borgara. Alþjóðlegur dagur heyrnar var 3. mars. Dagurinn er haldinn hátíðlegur víðsvegar um heim til að vekja athygli á mikilvægi góðrar heyrnar og áhrifum heyrnarskerð- ingar á lífsgæði fólks. Deginum er einnig ætlað að auka meðvit- und á neikvæðum áhrifum hávaða á heyrn og til að hvetja fólk til þess að láta mæla heyrn ef grunur vaknar um heyrn- arskerðingu. Góð heyrn er mikilvæg svo mál- taka barna geti þróast á dæmigerð- an hátt. Við heyrum í raun með heilanum og eru eyrun einungis að- gangur hljóðrænna upplýsinga til heilans. Hljóðaörvun þroskar heyrnrænar taugatengingar sem er forsenda þess að tal og mál þrosk- ist eðlilega. Það að efla hlustunar- þroska felst í því að hvetja barn til að veita hljóðum og röddum áhuga og öðlast þann- ig færni í að greina á milli þeirra hljóða og radda sem það heyrir. Ungbörn byrja í móð- urkviði að greina raddir og sem ung- börn byrja þau fljótt að greina á milli hljóða og beina athygli sinni að þeim hljóðum sem eru í móðurmálinu og stilla sig inn á þau. Þessi hljóðgreining hjálpar þeim að greina tal og læra ný orð. Hlust- unarþroski er grunnur fyrir mál- þroska barna. Börn tileinka sér málið í gegnum ríkt málumhverfi sem eflir smám saman færni þeirra í móðurmáli sínu. Þeim er ekki kennt málið heldur læra þau það ómeðvitað með því að eiga í merk- ingarbærum samskiptum og hlusta á samskipti annarra, þau læra það bæði beint og út undan sér. Þau efla einnig félagsfærni með því að hlusta. Mikilvægt er að hlúa að góðum skilyrðum til máltöku og hlustunar. Þegar aðgangur að heyrn er takmarkaður vegna lang- varandi heyrnarskerðingar getur það haft áhrif á málgetu. Gæta þarf að góðri hljóðvist og aðlöguðum samskiptum við börn með heyrn- arskerðingu og þá sérstaklega í skólakerfinu. Nýburamælingar á heyrn eru því afar mikilvægur þáttur í að skima fyrir heyrnarskerðingu svo hægt sé að bjóða viðeigandi þjónustu og veita börnum með heyrnarskerð- ingu tækifæri til að nema mál til jafns við önnur börn. Við heyrum með heil- anum – eyrun eru einungis aðgangur að hljóðheiminum Eftir Kristínu Theódóru Þórarinsdóttur » Góð heyrn er mikil- væg svo máltaka barna geti þróast á dæmigerðan hátt. Kristín Theódóra Þórarinsdóttir Höfundur er talmeinafræðingur á Heyrnar- og talmeinastöð Íslands. kristin@hti.is Heilt yfir hljóta jú lausnamiðaðir ein- staklingar auðvitað líkt og að horfa til þeirra áskorana, sem koma á þeirra borð og eru jú auðvitað á pari við nýju sviðs- myndina á svörtum fössara, sem við er- um að sjá í stóra samhenginu, og auð- vitað haddna að taka þessa um- ræðu gagnvart aðilum, sem eru út- settir fyrir smit; miskunnsami einstaklingurinn stoppaði nú einu sinni til þess að redda ein- staklingnum, sem lá særður við veginn; enda er Látrabjarg jú staðsett hérna og við verðum auð- vitað bara að vera heima á ímeilnum, en bráðum verður auðvit- að óhætt að knúsast pínu, en addna vera samt ekki alveg að fatta mikilvægi sótt- kvís, með utanumhaldi um þennan farald með tilliti til þess að ein- staklingar horfi jú í átt til innviðanna og tjekki á hvað er að valda þessum áskor- unum, sem eru nátt- úrulega í augum einstaklingsins auðvitað líkt og haddna eitraður kokkteill gagnvart feisbúkk, svo því sé haldið til haga, ókei? Klár- lega. Og horfa jú líka til haddna ákvarðanatökufælni fjármálastöð- ugleikasviðs bankanna og verð- tryggingarinnar, sem er auðvitað mjólkurkú bankanna, basically, svo það sé sagt, þú veist, þegar horft er til framtíðar einstakling- anna í átt til þeirra áskorana, sem addna einstaklingar auðvitað þurfa jú líkt og að gútera og horfast í augu við, skilurðu? You bara name it. Algjörlega. Þetta meikar ekki sens. Það er ekki flóknara en það. En það er jú náttúrulega líkt og addna heit kartafla, sem líkt og núna er auðvitað í pípunum og héddna kemur auðvitað á borð ein- staklinganna sko, sem eru jú í stafrænu textavinnunni og þeir eru jú ekki að fatta framtíðarsýn- ina gagnvart sögulega samheng- inu, sem er auðvitað líkt og galið og grafalvarlegt. Héddna auðvitað pínu líkt og snautlegt haddna fyrir einstaklinga að þurfa samt að stíga fram, en það er jú bara ekki annað í boði en fíllinn í stofunni. Segðu! Ekki að ræða það. Ókei? Það er jú bara þannig, skilurðu? Haddna! Kven-einstaklingar standa auðvitað líkt og frammi fyrir þeirri áskorun, þú veist, að versla sér þungunarrof á vettvangi með aðkomu forsætisráðherra og biskups. Skilurðu? So be it. Og málið auðvitað líkt og dautt á ímeil. Þú meinar? Segðu! Ná- kvæmlega. Jæja, takk og bæ! Og njótiði dagsins! Haddna! Eigum við ekki að fá lag? Og svo tökum við flugið. Íslensk tunga núna Eftir Gunnar Björnsson Gunnar Björnsson » Það náttúrulega meikar bara sens! Höfundur er pastor emeritus. Umræða um fæðu- öryggi hefur verið töluverð síðastliðin ár og sitt sýnst hverjum. Þannig finnst mörg- um að stjórnvöld þurfi að gera meira til að tryggja það, m.a. með betri reglum um eignarhald á jörðum, tollavernd og fjár- magn til nýsköpunar. Öðrum finnst merkilegra að efla al- þjóðlegt samstarf í þessum efnum, hvernig svo sem það tryggir fæðu- öryggi. Nýlega kom út skýrsla um fæðu- öryggi sem unnin var fyrir atvinnu- vega- og nýsköpunarráðuneytið. Þar eru Íslendingar taldir vel rúm- lega sjálfbærir með fisk, af kjötþörf landsmanna eru 90% framleidd inn- anlands og 43% af grænmeti. Fyr- irsögn með frétt á Ríkisútvarpinu var: „Íslensk framleiðsla fullnægir eftirspurn að mestu“. Sumum finnst kannski allt í lagi að þetta sleppi að „mestu“ en ég held að það sé full þörf á að bæta verulega í, og þá einvörðungu varð- andi íslenska framleiðslu. Græn- metisframleiðsla annar samkvæmt þessari skýrslu aðeins tæplega helmingi neyslu. Það er algjört lyk- ilatriði að ná þessari prósentutölu upp og setja fullan kraft í það. Það má gera með auknu fjármagni til nýsköpunar eða það sem betra er – með ódýrara rafmagni sem fram- leitt er í heimabyggð. Ég geri mér grein fyrir að þessi markaður er harður samanborið við innflutt grænmeti sem er ræktað án hús- næðis og rafmagns erlendis. Mark- aðshlutdeild sýnir þó að íslensk framleiðsla á góða möguleika á að stækka enn frekar og þá vegferð þarf að hefja – eigi síðar en núna. Framleiðsla á kjöti er síðan sér- kapítuli! Sú framleiðsla styðst við kerfi sem fáir skilja að fullu. Kerfið virðist hannað til að allir tapi eða hangi áttavilltir í lausu lofti. Af- urðastöðvar eru alltaf á tæpasta vaði og nú seinast greindi SS frá því að taprekstur væri vegna skorts á ferðamönnum í landinu. Bændur geta því ekki átt von á hækkun afurðaverðs þegar af- urðastöð er rekin með halla, það þarf engan sérfræðing að sunnan til að skilja það. Kannski felast í þessu öllu einföld skilaboð til bænda. Ef góðu ferðamannaárin skiluðu ekki betra verði til bænda, hvernig er þessi rekstur eiginlega uppbyggður? Hvorki afurðastöðvar né hráefn- isframleiðendur (bændur) fá við- unandi hluta af kökunni. Hvað er að þessu kerfi? Fyrir löngu varð það augljóst að þetta gengur ekki lengur upp og það er ekki enda- laust hægt að skoða, vinna að, stefna að eða setja einhver markmið í þessum málum. Það þarf að framkvæma og gera. Það er ein aug- ljós skekkja í þessu ferli sem þarf að taka strax á. Það er sú stað- reynd að afurðastöðvar flytja margar hverjar inn kjöt til að selja meðfram íslenskri framleiðslu sinni. Það eru jafnvel settar tak- markanir á slátrun nautgripa á sama tíma og afurðastöðvar eru að flytja inn nautgripakjöt. Þetta er gert á sama tíma og afurðastöðvar eru að vinna fyrir bændur og marg- ar í eigu bænda. Ef þetta er ekki hagsmunaárekstur, þá eru hags- munaárekstrar ekki til. Margar afurðastöðvar vinna nefnilega ekki að hagsmunum bænda, það er alveg ljóst. En það skal tekið fram að þetta á ekki við um allar kjötafurðastöðvar. Jafn- framt er óskiljanlegt af hverju Landssamtök sláturleyfishafa eru ekki sterkari talsmenn á móti inn- flutningi á kjöti, sem ætti að vera eitt af þeirra aðaláhersluatriðum. Kannski er það af því að sumar af- urðarstöðvar eru bæði að éta kök- una og halda henni. Bændur sem eiga afurðastöðvar þurfa að ganga fram með fordæmi, í breiðri sam- vinnu, og láta afurðastöðvar sínar hætta að vera þátttakendur í inn- flutningi á kjöti. Með því væru þær að setja hagsmuni bænda og at- vinnusköpunar í fyrsta sætið. Í framhaldi er hægt að gera þá kröfu á fulltrúa afurðastöðva í Lands- samtökum sláturleyfishafa að vinna gegn innflutningi á kjöti og leggj- ast á árar íslenskrar framleiðslu. Íslensk framleiðsla er atvinnulífi og landsbyggðinni mjög mikilvæg. Stór hluti matvöruframleiðslu fer fram á landsbyggðinni og oft eru þessi fyrirtæki máttarstólpar at- vinnulífs smærri samfélaga. Þetta má heimfæra yfir á alla framleiðslu á Íslandi, hvort sem það er iðnaður, þjónusta, orkuiðnaður eða annað. Við viljum skapa atvinnu og öflug íslensk fyrirtæki sem geta sinnt innanlandsmarkaði sem og selt úr landi framleiðslu sína. Með því tryggjum við fæðuöryggi á sama tíma og við sköpum gjaldeyri fyrir þjóðarbúið. Íslenskt, já takk Eftir Gunnar Tryggva Halldórsson Gunnar Tryggvi Halldórsson »Ef þetta er ekki hagsmunaárekstur, þá eru hagsmuna- árekstrar ekki til. Höfundur er frambjóðandi í prófkjöri Framsóknarflokks í Norðvestur- kjördæmi. gth@blonduos.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.