Morgunblaðið - 10.03.2021, Page 22

Morgunblaðið - 10.03.2021, Page 22
22 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. MARS 2021 Lengjubikar karla A-deild, 3. riðill: ÍA – Grótta ................................................ 2:2  Stjarnan 12, Keflavík 7, ÍA 7, Grótta 5, Selfoss 3, Vestri 0. Stjarnan er komin í 8- liða úrslit en Keflavík, ÍA og Grótta berjast um annað sætið í lokaumferðinni. Meistaradeild karla 16-liða úrslit, seinni leikir: Juventus – Porto.............................. (frl.) 3:2  Porto áfram, 4:4 samanlagt. Dortmund – Sevilla .................................. 2:2  Dortmund áfram, 5:4 samanlagt. Meistaradeild kvenna 16-liða úrslit, fyrri leikur: París SG – Sparta Prag ........................... 5:0 England B-deild: Blackburn – Swansea............................... 1:1 QPR – Wycombe ...................................... 1:0 Staða efstu liða: Norwich 35 23 7 5 51:25 76 Watford 35 19 9 7 46:24 66 Swansea 34 19 9 6 44:25 66 Brentford 34 18 9 7 61:36 63 Reading 35 18 6 11 49:37 60 Barnsley 34 17 6 11 42:37 57 Bournemouth 35 15 11 9 50:34 56 C-deild: MK Dons – Blackpool .............................. 0:1  Daníel Leó Grétarsson var ekki í leik- mannahópi Blackpool. D-deild: Scunthorpe – Exeter ............................... 0:2  Jökull Andrésson lék allan leikinn fyrir Exeter. Holland B-deild: Jong PSV – Dordrecht............................ 0:1  Kristófer Ingi Kristinsson kom inn sem varamaður hjá Jong PSV á 76. mínútu.  Olísdeild kvenna Valur – FH ............................................ 33:14 Staðan: KA/Þór 11 7 3 1 277:241 17 Fram 11 8 0 3 322:267 16 ÍBV 11 6 1 4 271:250 13 Valur 12 5 3 4 318:275 13 Stjarnan 11 6 0 5 295:280 12 Haukar 11 4 2 5 275:286 10 HK 11 4 1 6 267:289 9 FH 12 0 0 12 230:367 0 Svíþjóð Kristianstad – Skuru........................... 22:28  Andrea Jacobsen skoraði ekkert mark fyrir Kristianstad. Undankeppni EM karla 5. riðill: Slóvenía – Pólland ................................ 32:29  Slóvenía 5, Pólland 4, Holland 3, Tyrk- land 0. 8. riðill: Svíþjóð – Svartfjallaland ..................... 27:24  Svíþjóð 6, Rúmenía 2, Svartfjallaland 2, Kósóvó 0.   1. deild kvenna Grindavík – Vestri ................................ 89:50 Hamar/Þór – Tindastóll....................... 71:60 ÍR – Stjarnan ........................................ 74:57 Staðan: ÍR 10 9 1 672:513 18 Njarðvík 9 8 1 685:495 16 Grindavík 10 6 4 714:641 12 Hamar-Þór 10 4 6 604:663 8 Stjarnan 10 4 6 661:637 8 Tindastóll 11 4 7 600:690 8 Fjölnir B 9 4 5 605:567 8 Vestri 11 3 8 606:818 6 Ármann 8 2 6 463:586 4 Litháen Siaulai – Zalgiris Kaunas ................... 74:88  Elvar Már Friðriksson lék í 27 mínútur með Siaulai, skoraði 2 stig og gaf 7 stoð- sendingar.   KÖRFUKNATTLEIKUR Úrvalsdeild kvenna, Dominos-deildin: Dalhús: Fjölnir – Skallagrímur........... 18.15 Smárinn: Breiðablik – Snæfell ............ 19.15 Ásvellir: Haukar – KR ......................... 19.15 Origo-höll: Valur – Keflavík ................ 20.15 HANDKNATTLEIKUR Úrvalsdeild kvenna, Olísdeildin: Kórinn: HK – Þór/KA ............................... 18 Ásvellir: Haukar – ÍBV............................. 18 Framhús: Fram – Stjarnan ................. 19.30 1. deild kvenna, Grill 66-deildin: Víkin: Víkingur – Fjölnir/Fylkir ......... 19.30 Varmá: Afturelding – ÍR ..................... 19.30 Í KVÖLD! Dortmund stóð af sér síðbúið áhlaup frá Sevilla og tryggði sé sæti í fjórðungsúrslitum Meist- aradeildar Evrópu í knattspyrnu er liðin mættust í Þýskalandi í gær- kvöldi. Dortmund vann fyrri við- ureign liðanna 3:2 á Spáni og náði tveggja marka forystu í gær með mörkum frá Erling Haaland. Yo- ussef En-Nesyri skoraði tvisvar fyr- ir gestina undir lok leiks en Dort- mund vann einvígið 5:4 samanlagt. Þá var mikil dramatík í viðureign Juventus og Porto í Torino á Ítalíu þar sem grípa þurfti til framleng- ingar. Juventus tapaði óvænt í Portúgal í fyrri viðureigninni, 2:1, og lenti undir í gær eftir mark Sér- gio Oliveira. Federico Chiesa skor- aði tvö fyrir heimamenn og Adrien Rabiot eitt en Oliveira bætti við öðru marki úr aukaspyrnu fyrir gestina sem komust áfram á útivall- armörkum, 4:4 samanlagt. AFP Óstöðvandi Norðmaðurinn Erling Braut Haaland skoraði bæði mörk Dort- mund í Meistaradeildinni í gærkvöldi og var sem fyrr í lykilhlutverki. Æsispenna í lokin Valskonur burstuðu botnlið FH með nítján mörkum, 33:14, í við- ureign liðanna í Origo-höllinni á Hlíðarenda í úrvalsdeildinni í hand- knattleik, Olísdeildinni, í gær. Leik- urinn var sá fyrsti í 12. umferðinni en henni lýkur með fjórum leikjum á morgun. Lilja Ágústsdóttir var markahæst Valsara með sjö mörk og Saga Sif Gísladóttir varði næst- um helming allra markskota í markinu, 10 af 21, er Valsarar unnu sinn annan sigur í röð. Þar áður var liðið ekki búið að vinna í sex deild- arleikjum í röð. Valur er nú með 15 stig í 3. sæti, stigi á eftir Fram og tveimur á undan ÍBV sem á þó leik til góða. Hjá FH-ingum er staðan áfram slæm. Liðið er án stiga á botni deildarinnar enda búið að tapa öll- um 12 leikjum sínum. Þá er þetta í annað sinn sem FH nær ekki að skora nema 14 mörk í leik. Burstuðu botnliðið Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Stórsigur Valsarinn Elín Rósa Magnúsdóttir sækir að marki FH á Hlíð- arenda í gærkvöldi. Hún skoraði fjögur mörk úr fimm markskotum. EM U21 ÁRS Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Fyrsta verkefni þjálfarans Davíðs Snorra Jónassonar með U21-árs landslið karla í knattspyrnu verður svo sannarlega ærið. Þjálfarinn, sem 33 ára gamall, er á leið með liðið í lokakeppni EM 2021 en mótið fer fram í Ungverjalandi og Slóveníu og hefst í lok mars. Þetta er í ann- að sinn sem U21- árs landslið Ís- lands kemst í lokakeppnina en Ísland leikur í C- riðli lokamótsins ásamt Dan- mörku, Frakk- landi og Rússlandi. Leikir Íslands verða í Györ í Ungverjalandi dagana 25. – 31. mars. Efstu tvö sæti riðilsins gefa sæti í átta liða úrslitum keppninnar sem fer fram í Búdapest og Székesfe- hérvár í Ungverjalandi og Maribor og Ljubljana í Slóveníu 31. maí. Davíð Snorri var ráðinn þjálfari U21-árs landsliðsins 21. janúar en hann tók við liðinu af Arnari Þór Viðarssyni og Eiði Smára Guðjohn- sen sem komu íslenska liðinu í loka- keppnina. „Það er allt að verða klárt og við erum eins nálægt því að vera til- búnir og hægt er á þessum tíma- punkti,“ sagði Davíð Snorri. „Ég er búinn að vera í góðu sam- bandi við leikmenn og fylgjast vel með þeim. Það hefur farið góður tími hjá mér í að leikgreina okkar lið og sökkva mér aðeins í vinnuaðferð- irnar þar. Ég vil vera með öll smáat- riði á hreinu og það mikilvægasta í þessu öllu saman er auðvitað að ég átti mjög gott spjall við fyrrverandi þjálfara liðsins og meginþorra leik- mannanna. Ég fékk þess vegna mjög góða mynd af því sem er búið að vera í gangi hjá liðinu og þetta lítur mjög vel út, þrátt fyrir að ég sé að koma nýr inn í þetta. Liðið er rútínerað, vel þjálfað og leikmennirnir orðnir vel gíraðir fyrir verkefninu. Mitt hlutverk er í raun bara að byggja ofan á það sem hefur verið gert vel í gegnum tíðina og sjá hvar væri hugsanlega hægt að bæta einhverju við. Við erum búnir að fara vel yfir andstæðinga okkar í riðla- keppninni og allt utanumhald þarna úti. Undirbúningurinn hefur því gengið nokkuð vel fyrir sig og ég er mjög ánægður með þessa fyrstu mánuði í starfi,“ sagði Davíð Snorri. Nokkur plön í gangi Vegna kórónuveirufaraldursins er alls kostar óvíst hvaða leikmenn Davíð getur tekið með sér til Ung- verjalands en reglur FIFA kveða á um að ef leikmaður þarf að fara í sóttkví við heimkomuna til landsins sem hann spilar í má félagslið hans meina honum að fara í landsliðsverk- efni. „Ég á von á því að hlutirnir skýr- ist betur í þessari viku varðandi hvaða leikmenn verða tiltækir fyrir verkefnið. Við erum í hálfgerðri pattstöðu eins og staðan er í dag en við erum með stóran hóp leikmanna sem við getum valið úr og það er já- kvætt. Hlutirnir eru hins vegar fljót- ir að breytast og við erum með plan A, plan B og plan C í gangi þannig að við erum tilbúnir fyrir hinar ýmsu sviðsmyndir, hvað svo sem verður. Þetta er aðeins öðruvísi staða en við erum vanir en það þýðir lítið annað en að vinna úr því. Vissulega eru leikmenn í hópnum sem eru að leggja lokahönd á sinn undirbúning fyrir sitt tímabil. Þeir eru komnir í gegnum þessa þyngstu kafla á undirbúningstímabilinu og þegar við förum í mótið eru bara fjórar vikur í að úrvalsdeild karla fari af stað. Strákarnir verða ferskir þegar þeir mæta, bæði þeir sem leika á Íslandi og í Skandinavíu þar sem ekki er byrjað að spila. Auðvitað væri óskastaðan sú að þeir væru á miðju tímabili með sínum félags- liðum en þeir eru ferskir og hungr- aðir að komast á völlinn og ég hef því litlar áhyggjur af leikforminu hjá strákunum.“ Engir árekstrar þjálfaranna Nokkrir af lykilmönnum U21-árs landsliðsins hafa verið viðloðandi A- landsliðið að undanförnu en A-liðið hefur leik í undankeppni HM 2022 á sama tíma og lokakeppni EM fer fram. Þeir Jón Dagur Þorsteinsson, Mikael Anderson, Arnór Sigurðs- son, Andri Fannar Baldursson og Ísak B. Jóhannsson komu allir við sögu með A-landsliðinu í síðustu leikjum ársins 2020 en eru allir gjaldgengir með 21-árs landsliðinu og þá hefur hægri bakvörðurinn Alf- ons Sampsted verið orðaður við þá stöðu í A-landsliðinu. „Ég og Arnar Þór [Viðarsson] er- um búnir að fara vel yfir hlutina og eins og bæði ég og Arnar höfum sagt í gegnum tíðina þá þarf að púsla A- liðinu saman áður en U21-árs lands- liðið er valið. Liðin hafa meira um það að segja núna hvaða leikmenn fara í landsleikjagluggana, út frá sóttvörnum og öðru, og það kemur betur í ljós hvaða leikmenn verða til taks þegar út í næstu verkefni er farið. Það hafa engir árekstrar átt sér stað því staðan er bara eins og hún er og það þarf að vinna eftir því. Ég valdi stóran æfingahóp um daginn sem var meira og minna sam- ansettur af leikmönnum íslensku lið- anna sem gætu komið inn í hópinn ef þess þyrfti og væru þá líka gjald- gengir í hópinn á næstu árum fyrir næstu undankeppni. Þær æfingar Hinar ýmsu sviðs- myndir í gangi fyrir lokakeppni EM  Óvíst hvaða leikmenn Davíð Snorri Jónasson getur valið fyrir riðlakeppni 21-árs liðanna í Ungverjalandi í lok mars Davíð Snorri Jónasson Tilbúnir Leikmenn 21-árs landsliðs- ins stilla sér upp fyrir síðasta heimaleikinn í undankeppninni sem var gegn Ítölum í nóvember.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.