Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.03.2021, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.03.2021, Blaðsíða 13
21.3. 2021 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13 allt hitt efnið sem ekki endaði í myndinni. Það var yndislegt að dveljast svona lengi í þessum veruleika þeirra og ná efninu á dýptina. Hálfur Álfur er ljúfur minnisvarði um líf ömmu og afa.“ Leitt að vera „upptekinn“ Trausti var mjög veikur á spítalanum og einn daginn óttaðist Jón Bjarki að hann væri hrein- lega að kveðja. Daginn eftir vaknaði hann á hinn bóginn mun hressari og baðst þá afsökunar á því að hafa verið „upptekinn“. „Afi hélt húm- ornum allt til enda og hlakkaði alltaf til að fara í tökur. Meðan hann var á spítalanum hvíldi ég þó myndavélina að mestu og sat frekar hjá honum í rólegheitunum. Það var mjög dýrmætt.“ Það verður stór stund að sýna myndina í bíósal í vikunni. „Það verður yndislegt að halda sýningu með öllu okkar fólki og það er fyrst núna sem mér líður eins og myndin sé í raun og veru lent. Ég get ekki beðið eftir að sitja með öllu fólkinu og upplifa viðbrögðin. Það er alls ekki sjálfgefið að fólk geti komið saman í bíó á þessum sérkennilegu tímum.“ Jón Bjarki og Hlín gera myndina að mestu án fjármögnunar. „Við söfnuðum einni milljón króna á Karolina Fund en annars er þetta bara blóð, sviti og tár allra sem að þessu verkefni komu og við stöndum í mikilli þakkarskuld við marga.“ Þau hafa lært margt á þessu ferli en hvorugt þeirra hafði hugmynd um hvernig ætti að snúa sér til að koma myndinni á framfæri, inn á há- tíðir, efnisveitur og annað slíkt. Sjálf framleiða þau undir merkjum SKAK bíófilm í samstarfi við Andy Lawrence hjá AllRitesReversed og Veroniku Janatkovu hjá Pandistan, og með sölu og dreifingu erlendis fer Feelsales. Hlín sér auk þess um frumsamda tónlist í myndinni, en þeir Teitur Magnússon og Sindri Freyr Steinsson útsettu einnig sérstaklega tvö lög fyrir myndina. Þá sáu þeir Arnar Ingi Gunn- arsson og Kiron Guidi um hljóðhönnun auk þess sem Daði Jónsson sá um litvinnslu. „Það er margt skrýtið í þessu ferli þegar maður er einyrki sem þarf að kynna sig frá grunni en við erum svo sannarlega reynslunni ríkari. Ég var að vísu búinn að gera eina styttri mynd áður og lærði heilmargt á því líka en hún fór á ágætt flug. Það er svo merkilegt að maður upplifir þessi verk sín eins og barn sem sleppa þarf hendinni af og hleypa út í heiminn. Svo lendir maður í því að hverri há- tíðinni af annarri er aflýst og fáir ef nokkrir að fara í bíó. Þá voru þær flottu hátíðir sem hún komst inn á meira og minna færðar „online“ sem er auðvitað öðruvísi og töluvert fjarlægari reynsla en ef maður hefði mætt þangað í eigin persónu. Þá spyr maður sig: Mun barnið lifa þetta af svona eitt og óstutt úti í hinum stóra heimi?“ segir hann hlæjandi. „Fyrir vikið þarf barnið á umframalúð að halda þangað til það getur loksins staðið á eigin fótum.“ Í hringiðu lekamálsins En hvers vegna sneri blaðamaðurinn sér að mannfræðilegri heimildarmyndagerð? „Ég hafði rekist á þetta nám á netinu ein- hverjum árum áður og lýsingin talaði sterkt til mín. Mig hefur alltaf langað að segja sögur af fólki með sjónrænum hætti og bíóið heillar. Ég kynntist Hlín árið 2014 og ári síðar ákváðum við að flytja til Berlínar. Ég skráði mig að vísu ekki strax í námið en var með augun á því og komst síðan inn haustið 2016.“ Árið á undan hafði Jón Bjarki staðið í ströngu en hann var þá blaðamaður á DV og lenti vegna fréttaskrifa þeirra Jóhanns Páls Jóhannssonar í hringiðu umræðunnar um lekamálið svokallaða. Málið kom upp í nóv- ember 2013 og lauk ekki fyrr en ári síðar með afsögn Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkisráðherra eftir að Gísli Freyr Val- dórsson, aðstoðarmaður hennar, játaði að hafa lekið trúnaðarupplýsingum í formi minn- isblaðs um nígeríska hælisleitandann Tony Omos úr ráðuneytinu í fjölmiðla. „Við Jóhann Páll vorum á kafi í þessu máli og í heilt ár snerist líf mitt að miklu leyti um það. Framan af stóðum við svolítið einir og þetta hreinlega tók yfir. Það er stórmerkileg lífsreynsla að lenda í hringiðu svona stórs fréttamáls; það verður mjög persónulegt og eins og maður sjálfur verði hluti af málinu. Það var erfitt til lengdar,“ segir Jón Bjarki. – Hvernig þá? „Umræðan var á köflum mjög óþægileg; eins og þegar við vorum sakaðir um að búa til upplýsingar og vera með „agenda“ í málinu. Það var auðvitað út í hött. Við vorum bara að vinna okkar vinnu og miðla upplýsingum sem við töldum eiga erindi við þjóðina.“ – Fenguð þið beinar hótanir? „Nei, svo langt gekk það ekki. En umræðan í þjóðfélaginu og á samfélagsmiðlum var ekki alltaf upplýst og yfirveguð.“ Annars hugsar hann með hlýju til áranna á DV. „Þetta var gríðarlega mikil vinna en spennandi og alls kyns vendingar sem við vor- um að eltast við. Ég mun búa að þessari reynslu alla tíð.“ Langaði að gera sitt eigið Eins og menn muna þá spratt lekamálið upp úr umfjöllun um hælisleitendur og flóttamenn en, eins og Jón Bjarki kom inn á áðan, þá hefur það alltaf heillað hann að segja sögur jað- arsetts fólks sem ekki endilega á sína rödd í samfélaginu. Skömmu eftir að leka- málinu lauk urðu eig- endaskipti á DV og Jón Bjarki hætti í kjölfarið á blaðinu. „Ég var svolítið í lausu lofti á þessum tíma; hlustaði bara á morgunútvarpið og heimsótti ömmu og afa. Maður upplifði mikinn tómleika að vera skyndilega kastað svona út úr hring- iðunni en ákveðinn létti að sama skapi. Það sat þreyta í mér eftir lekamálið og mig langaði að taka skref frá blaðamennskunni, alla vega sem aðalstarfi. Líklega var þetta hreinlega kulnun í starfi. Ég held að það sé allt í lagi að segja það, að maður geti kulnað í starfi sem maður elskar og þar sem maður er að vinna verðlaun, þegar álagið verður of mikið. Mér finnst eins og heim- ildamyndagerðin hafi hreinlega hjálpað mér að komast yfir þetta. Ég hef skrifað „frílans“ síðan og mun örugglega gera áfram. Ég þráði að gera eitthvað skapandi og nýta nám mitt í ritlist, þar sem ég hafði besta fáanlegan leiðbeinanda, Sig- urð Pálsson skáld. Blaðamennska getur verið skapandi en hún er auðvitað innan ákveðins ramma sem getur orðið endurtekningasamur og mig langaði að gera eitthvað sem væri meira mitt eigið. Þessi mannfræðilega heimild- armyndagerð hefur heldur betur svalað þeirri þörf og segja má að við Hlín höfum bæði komist í draumanámið, en hún fór í skúlptúrnám sem hún er langt komin með að klára.“ Heimildarmyndanámið er mjög alþjóðlegt, að sögn Jóns Bjarka, en í þrjátíu manna hópi voru nemendur frá um tuttugu þjóðlöndum. „Þetta var algjör suðupottur og ég lærði heil- margt af því samtali. Síðan er Berlín bara svo yndisleg og lifandi borg; mikil hringiða sköp- unar, menningar og lista.“ Ætla aftur til Berlínar Jón Bjarki og Hlín stefna skónum aftur til Berl- ínar um leið og ástandið vegna faraldursins lagast, annaðhvort í sumar eða haust. Hann langar að halda áfram á sömu braut en næsta verkefni er einmitt fyrirlestur á kvikmynda- hátíð hinnar konunglegu bresku mannfræði- stofnunar en myndin verður jafnframt sýnd þar og er tilnefnd til aðalverðlauna. Hvað tekur við eftir það er óráðið. „Ætli maður leyfi þessu verkefni ekki að lenda áður en maður snýr sér að því næsta, auk þess sem gott verður að kom- ast loksins fyrir vind í þessu Covid-ástandi.“ Jóhann Páll, félagi hans úr blaðamennsk- unni, hefur sett stefnuna á Alþingi fyrir hönd Samfylkingarinnar en Jón Bjarki hlær þegar hann er spurður hvort hann hafi ekki langað að fylgja honum þangað. „Nei, það er ekki fyrir mig. Það tekur á að vera í harðri blaða- mennsku, hvað þá að sitja á Alþingi. Ég tek hlutina aðeins of mikið inn á mig til að geta staðið í þeim slag til lengri tíma. Við Jóhann Páll vorum teymi í gegnum þetta ferðalag í blaðamennskunni og ég óska honum alls hins besta. Hann er eldklár og á án efa eftir að standa sig vel á þingi.“ Morgunblaði/Arnþór Birkisson ’ Ég held að það sé allt í lagi að segja það, að mað- ur geti kulnað í starfi sem maður elskar og þar sem maður er að vinna verðlaun, þegar álagið verður of mikið. Jón Bjarki ásamt unnustu sinni, Hlín Ólafsdóttur, sem semur tónlistina í myndinni og framleiðir. „Mér finnst eins og þráin eftir því að skapa og viljinn til að miðla sögum þeirra sem lítið fer fyrir í meginstraumsumræðunni hafi fund- ið sameiginlegan farveg í gegnum heimildar- myndagerðina,“ segir Jón Bjarki Magnússon. Úr myndinni Hálfur Álfur. Trausti Breiðfjörð Magnússon, afi Jóns Bjarka, fagnar aldarafmæli sínu.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.