Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.03.2021, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.03.2021, Blaðsíða 29
Ljósmóðurinni er í kjölfarið stefnt fyrir vanrækslu og brestir koma í samband foreldranna þegar móðirin ákveður að ánafna vísindunum jarð- neskar leifar barnsins. Fram að þessu er Kirby líklega þekktust fyrir að hafa farið með hlutverk Margrétar prinsessu í bresku sjónvarpsþáttun- um Krúnunni frá 2016 til 2017. Gömul nöfn og ný Hjá körlunum ber fyrstan að telja Wales-verjann Sir Anthony Hopkins, 83 ára, sem tilnefndur er fyrir leik sinn í Father í leikstjórn Florians Zellers. Hann leikur þar eldri mann sem býr hjá dóttur sinni og glímir í vaxandi mæli við minnistap með til- heyrandi angist. Þetta er fjórða til- nefning Hopkins í þessum flokki og hann hefur einu sinni unnið, fyrir Silence of the Lambs 1992. Hinar myndirnar eru The Remains of the Day 1994 og Nixon 1996. Þá var Hopkins tilnefndur sem besti leikari í aukahlutverki fyrir Amistad 1998 og The Two Popes í fyrra. Annar góðkunningi akademíunnar, Bretinn Gary Oldman, sem heldur upp á 63 ára afmæli sitt í dag, á líka ein Óskarsverðlaun að baki, fyrir túlkun sína á Winston Churchill í Darkest Hour 2018. Hann var einnig tilnefndur fyrir Tinker Tailor Soldier Spy 2012. Að þessu sinni er myndin Mank eftir David Fincher en hún fjallar um handritshöfundinn Her- man J. Mankiewicz og glímu hans við handritið að hinni rómuðu mynd Citi- zen Kane sem hann samdi ásamt Or- son Welles og frumsýnd var 1941. Bandaríkjamaðurinn Chadwick Boseman hlýtur nú sína fyrstu til- nefningu til Óskarsverðlauna að sér látnum en hann tapaði baráttu sinni við krabbamein síðasta sumar, aðeins 43 ára að aldri. Hann leikur hinn sjálfsörugga trompetleikara Levee Green í fyrrnefndri Ma Rainey’s Black Bottom í sínu síðasta hlutverki. Breski leikarinn og tónlistarmað- urinn Riz Ahmed, 38 ára, er líka að fá sína fyrstu Óskarstilnefningu en hann fer með aðalhlutverkið í mynd Darius- ar Marders Sound of Metal. Hann er jafnframt fyrsti músliminn til að fá til- nefningu í þessum flokki. Í myndinni leikur hann málmtrymbil sem skyndi- lega fer að tapa heyrninni. Það reynir verulega á enda maðurinn fíkill í bata og hefur lifibrauð sitt af flutningi há- værrar tónlistar sem læknar ráð- leggja honum að halda sig frá. Ahmed hefur verið býsna áberandi eftir að hann sló í gegn í Nightcrawler 2014 en hann starfar einnig sem tónlistar- maður og hefur sent frá sér tvær breiðskífur, þá seinni á síðasta ári. Yngstur á listanum karlamegin er kóresk/bandaríski leikarinn Steven Yeun, 37 ára, en hann er tilnefndur fyrir Minari, sem Lee Isaac Chung leikstýrir. Hann leikur kóresk-banda- rískan föður sem flytur með fjöl- skylduna frá Kaliforníu til Arkansas, þar sem hann hyggst freista gæfunn- ar og rækta kóreskar vörur. Þetta er fyrsta Óskarstilnefning Stevens Yeuns en margir muna líklega eftir honum úr sjónvarpsþáttunum The Walking Dead. Megi þau bestu vinna! Viola Davis: Ma Rainey’s Black Bottom. Getty Images via AFP Vanessa Kirby: Pieces of a Woman. AFP Frances McDormand: Nomadland. AFP Carey Mulligan: Promising Young Woman. AFP 21.3. 2021 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29 Kaja organic, Kalmansvellir 3, kajaorganic.com, kajaorganic@gmail.com Hátíðar hnetusteik Lífrænt - Vegan - Glúteinlaust Sölustaðir: Hagkaup, Fjarðarkaup, Melabúðin, Nettó, Vegan búðin, Fiskkompaní, Frú Lauga og Matarbúr Kaju á Akranesi VIRTÚÓS Alice Cooper er ekki í vafa um að Jeff Beck, 76 ára, sé enn þá mest skapandi rokkgítarleikari í heimi og hafi verið það alveg síðan hann var í The Yardbirds. Þetta kom fram í viðtali við hann á BBC. Cooper minnist þess að hafa séð Beck spila með The Yardbirds fyrir meira en fimmtíu árum á eldgaml- an Telecaster-gítar sem leit víst út eins og hann hefði dregist lengi á eftir strætó en Beck lét hann hljóma eins og Stradivarius. „Og hann er enn með ’etta.“ Enn þá besti gítarleikari heims Jeff Beck í stuði í Háskólabíói 2013. Morgunblaðið/Golli BÓKSALA 10.-16. MARS Listinn er tekinn saman af Eymundsson 1 Það hófst með leyndarmáli Jill Mansell 2 Eldarnir Sigríður Hagalín Björnsdóttir 3 Sjálfsskaði Elsebeth Egholm 4 Heimferðarsett Prjónafjelagið 5 Fyrsta málið Angela Marsons 6 Uppruni Saša Stanišic 7 Snerting kilja Ólafur Jóhann Ólafsson 8 Aprílsólarkuldi Elísabet Jökulsdóttir 9 Heimavistarmorðin – sönn sakamál Ryan Green 10 Risasyrpa – botnlaus byggingarvinna Walt Disney 1 Risasyrpa – botnlaus byggingarvinna Walt Disney 2 Hulduheimar 9 – draumadalurinn Rosie Banks 3 Hulduheimar 10 – vatnaliljutjörn Rosie Banks 4 Kíkjum í dýragarðinn Anna Milbourne 5 Pétur tjaldar Sven Nordqvist 6 Öflugir strákar Bjarni Fritzson 7 Benjamín dúfa Friðrik Erlingsson 8 Hvar er Skellur Walt Disney 9 Syngdu með Láru og Ljónsa Birgitta Haukdal 10 Litlir lærdómshestar – stafir Elízabeth Golding Allar bækur Barnabækur Eftir háskólanám síðastliðinna fimm ára var orðið langþráð að geta gefið sér tíma til yndislest- urs. Listi þeirra bóka sem sam- ferðafólk mitt, hérlendis og er- lendis, hafði mælt með var orðinn ansi langur og nú rúmu ári eftir að námi lauk á ég enn langt í land með að vinna mig í gegnum listann. Til að auka af- kastagetuna hef ég tekið upp þann sið að nota strætóferðir til og frá vinnu til þess að hlusta á hljóðbækur og hluta þeirra bóka sem hér eru nefndar hef ég því hlustað á en ekki lesið. Nokkrar bækur komst ég yfir að lesa í jólafríinu og stóð þar upp úr Gata mæðranna eftir Kristínu Marju Baldursdóttur. Gata mæðranna er tíð- arandaskáldsaga, eins og Kristín Marja er þekkt fyrir að koma vel frá sér. Sögusviðið er skýrt, eins og titillinn ber með sér en framvindan hæg framan af. Frásögnin og aðalsögupersónan Marín hrifu mig þó þegar líða tók á bókina og sat sagan í mér í töluverðan tíma. Það gerðu einn- ig Eldarnir, ástin og aðrar ham- farir eftir Sigríði Hagalín Björns- dóttur, en til þeirrar bókar hef ég mikið hugsað í jarðhræringum síðustu vikna. Í upphafi árs fóru strætóferðir mínar í að hlusta á Feminism for the 99%: A manifesto sem skrif- uð er af fræðakonunum Cinzia Arruzza, Tithi Bhattacharya og Nancy Fraser. Yfirlýsingin er stutt og hnitmiðuð en nokkuð fræðileg á köflum þar sem snert er á stéttaskiptingu, kynþátta- fordómum, umhverfismálum og and-kapítalisma. Það sem helst hreyfði við mér var áminningin um að ávinningur í jafnréttisbarátt- unni næst ekki með því að brjóta glerþök ef aðrar konur og fólk í minnihlutahópum þurfa að sópa upp glerbrotin. Í strætóleið 15, á ferðum mín- um til og frá vinnu, hlusta ég nú á bókina It‘s Not About the Burqa. Bókin er safn frásagna múslimskra kvenna sem hleypa lesendum (eða hlustendum) inn í hugarheim sinn og margbreyti- legan veruleika. Frásagnirnar eru lesnar af höfund- unum sjálfum sem gerir þær persónulegar og áhrifamiklar. Á náttborðinu bíður mín svo ör- lítið léttara efni eða saga úr hverfinu, 107 Reykja- vík, eftir Auði Jónsdóttur og Birnu Önnu Björnsdóttur, sem ég hlakka til að háma í mig – á föstu formi. STEINUNN BRAGADÓTTIR ER AÐ LESA Bókalistinn endalausi Steinunn Bragadóttir er hagfræðingur.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.