Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.03.2021, Síða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21.3. 2021
MENNTUN
- heimili, hönnun, tíska
og samkvæmislífið
Lífstílsvefurinn okkar
- fylgt landsmönnum í 10 ár
SMARTLAND
MÖRTUMARÍU
Vertu með
á nótunum
Þ
að eru öflugir kraftar að
ganga yfir íslenskt samfélag.
Að minnsta kosti er erfitt að
komast að annarri niðurstöðu ef kaf-
að er ofan í stöðu drengja.
Áskoranir
Að meðaltali er staðan fyrir dreng á
Íslandi í dag sú að það eru:
- 34% líkur á að hann muni ekki
geta lesið sér til gagns eftir grunn-
skóla, fer hækkandi
- 15% líkur á að hann fari á hegð-
unarlyf
- Hann er 20 sinnum líklegri til að
vera settur á þunglyndislyf en börn í
öðrum norrænum ríkjum
- Hann fær lækkandi skor á sam-
ræmdum prófum í gegnum skóla-
göngu sína á meðan systir hans og
vinkona fá hækkandi skor
- Hann hefur fáar karlfyrirmyndir í
námi og þeim fer fækkandi með
hverju ári, einungis 17,5% af kenn-
urum hans í grunnskóla eru karl-
menn
- Líklegra er að honum leiðist í
skóla en systur hans eða vinkonu
- Mamma og pabbi munu kaupa allt
að 2,5 sinnum minna af bókum fyrir
hann en fyrir systur hans
- Á aldrinum 10-19 ára er hann
líklegri til þess að taka sitt eigið líf
en jafnaldrar á Norðurlöndunum
- Í framhaldsskóla eru 40% líkur á
því að hann sé orðinn stórneytandi á
klámi
- Minni líkur eru á að hann klári
framhaldsskóla en jafnaldrar hans
hjá flestum vestrænum þjóðum
- Minni líkur eru á að hann fari í há-
skóla en jafnaldrar hans í öllum
OECD-löndum og þær fara lækk-
andi
Framangreind staða er því miður
einungis brot af fjöldamörgum
gagnapunktum sem hafa birst op-
inberlega undanfarin ár um slæma
stöðu drengja í íslensku samfélagi.
Gögn og niðurstöður sem birtast
ítrekað frá opinberum aðilum, ráðu-
neytum og virtum alþjóðlegum og
innlendum stofnunum eins og land-
lækni, Menntamálastofnun, mennta-
málaráðuneytinu, PISA, OECD,
UNICEF, WHO og samnorrænum
könnunum varpa ljósi á ískyggilega
heildarmynd.
Ljóst er að enginn vill hafa
ástandið svona og það þarf að bregð-
ast við. Það er grundvallar færni-
viðmið fyrir velferðarþjóðfélag að
geta skapað börnum góðar aðstæður
til að þroskast, læra, dafna og líða
vel. Flestir eru því eflaust sammála
um mikilvægi þess að kafa dýpra of-
an í framangreind vandamál með
lausnamiðuðum hugsunarhætti og
fara síðan í kjölfarið að virkja auð-
lindir af krafti til að snúa við þessari
þróun.
Vísindi
Við skoðum tvo mikilvæga þætti sem
rannsóknir sýna að geti haft meiri
áhrif á menn en konur. Annars veg-
ar er það virkni testosteróns og hins
vegar dópamíns.
Testosterón: Geschwind og Ga-
laburda, hafa sýnt með rannsóknum
að testosterón-hormón sem drengir
hafa í mun meira magni en stúlkur
að meðaltali, getur haft áhrif á þró-
un heilastarfsemi þeirra í fósturlíf-
inu. Þessi áhrif testosteróns á heila-
starfsemi gera drengi að ýmsu leyti
„viðkvæmari“ og er talinn vera einn
orsakavaldur þess að drengir eru
líklegri til að lenda í vanda með
hreyfiþróun og málþróun og grein-
ast oftar með einhverfu, ADHD og
vandamál með lestur. Þess vegna er
gífurlega mikilvægt að drengir fái
ríkulegt áreiti, eins og að talað sé við
þá, jafn mikið og talað er við stúlkur.
Rannsóknir sýna að meira er talað
við stúlkur en drengi frá fæðingu og
vísbendingar eru uppi um að ís-
lenskir foreldrar leggi mun minna að
drengjum að lesa en stúlkum. Þá er
mikilvægt að drengir fái góða þjálf-
un á svokallaða bókstafs – hljóða-
tengingu í byrjun lestrarkennslu.
Aukið testosterón getur líka þýtt
meiri þörf fyrir líkamlega útrás og
áhættutöku. Þar gæti aukin hreyf-
ing og í einhverjum tilfellum keppni
verið áhugahvetjandi og leitt til auk-
innar einbeitingar.
Dópamín: rannsóknir sýna meiri
virkni af taugaboðefninu dópamíni
hjá karlmönnum, sem getur meðal
annars tengst þáttum eins og mik-
ilvægi ástríðu og áhugadrifs þegar
kemur að afstöðu gagnvart verk-
efnum eins og námi og árangri. Dóp-
amín sem er oft lýst sem eftirvænt-
ingarboðefni, veitir
ánægjutilfinningu þegar verðlaun og
uppskera eru fram undan. Aukið
magn af dópamíni og sérstaklega
meiri sveiflur á því sviði eins og ein-
kenna fremur karlmenn eru þó sér-
stakir áhættuþættir þegar kemur að
fíknieinkennum.
Þar sem dópamín tengist einnig
námi, árangri og viðurkenningu get-
ur það verið mótandi þáttur gagn-
vart ástríðumyndun. Rannsóknir
okkar sýna að ástríða er mikilvægari
þáttur í drifi karlmanna gagnvart
verkefnum. Einnig hafa karlmenn
sterkara samband milli ástríðu og
þrautseigju. Konur hins vegar hafa
sterkara samband milli þrautseigju
og gróskuhugarfars. Þetta gæti gef-
ið vísbendingar um það að til að fá
drengi til að nota sinn viljastyrk og
þrautseigju er skynsamt að leita eft-
ir tækifærum þar sem þeir geta unn-
ið að verkefnum sem tengjast þeirra
ástríðu eða sterkum áhuga. Framan-
greindur þáttur á vissulega einnig
við um stúlkur, en drengir kunna að
vera líffræðilega viðkvæmari gagn-
vart mikilvægi þess að slíkur neisti
sé kveiktur. Lykillinn hér er að
fanga áhugann.
Möguleikar
Grunnleggjandi þættir í heila-
starfsemi einstaklinga tengjast hvíta
og gráa efni heilans. Þar mætti kalla
gráa efnið tölvu heilans og hvíta efn-
ið leiðslurnar í tölvunni. Hreyfing,
góð tengsl og að læra nýja hluti hafa
jákvæð áhrif á heilbrigða virkni í
gráa og hvíta efni heilans. Þessir
þrír þættir ættu að vera í fókus
gegnum allt lífið.
Hreyfing: rannsóknir sýna að
hreyfing skapar betri ró, einbeitingu
og sjálfsmynd sem er góður grunnur
fyrir nám. Öll börn og unglingar
ættu að minnsta kosti að hreyfa sig í
einn tíma á dag. Út af hærri te-
stosterónvirkni hjá drengjum er
regluleg hreyfing sérlega mikilvæg
fyrir þá. Til þess að auka líkurnar á
góðri einbeitingu og hámarks-
upptöku lærdóms m.t.t. minnis er
mikilvægt að hafa ekki of langar
kennslustundir, eða að hámarki 35-
40 mín. með 10-15 mín. hléi inn á
milli.
Tengsl/samkennd: Paul Gilbert,
prófessor skrifaði bók sem kom út
árið 2009 og heitir „The Com-
passionate Mind“. Hann leggur þar
áherslu á mikilvægi vingjarnleika,
samkenndar, gæða samtala og sam-
veru fyrir okkar heilastarfsemi. Hlý
samvera hefur áhrif á hormóna-
starfsemina á jákvæðan hátt. Horm-
ónið oxytósín hefur áhrif á vellíð-
unartilfinningu okkar. Gilbert
bendir á að umhyggja og þróun
hennar, það að upplifa góðvild, hlýju
og samúð, er gífurlega mikilvæg til
að aðstoða okkur við að öðlast til-
gang með lífinu og aukna hamingju.
Þessi upplifun hefur jákvæð áhrif á
alla okkar líkamsstarfsemi, styrkir
ónæmiskerfið, minnkar streitu og
segja má að hún sé nokkurs konar
vítamín fyrir okkar heilastarfsemi. Í
skólanum er sérlega mikilvægt að
vinna með þessa þætti. Jákvæð við-
brögð þegar einstaklingar eru að
gera sitt besta eða ná að framkvæma
það sem þeir ætluðu sér eru því
mjög mikilvæg. Þar eru foreldrar og
kennarar í lykilhlutverki. Síðan er
að sjálfsögðu aldrei hægt að verð-
leggja gildi jákvæðra félagslegra
tengsla.
Ástríða/læra nýja hluti: gefum
börnum og unglingum möguleika á að
vinna meira með þætti sem tengjast
þeirra áhugasviði. Hjálpum þeim að
finna ástríðuna og þróa hana. Í sam-
bandi við lestur, finnum texta og bæk-
ur sem einstaklingurinn hefur áhuga
á að lesa. Eflum vinnu með skapandi
skrif þar sem barnið/unglingurinn fær
að vinna með viðfangsefni sem það
velur sjálft. Eflum möguleikann á
verkefnavinnu sem byggir á sam-
vinnu þar sem gefast líka möguleikar
á nýskapandi hugsun.
Drengirnir okkar eru margir á
erfiðum stað. Undirritaðir eru sann-
færðir um að með réttu áreiti og
hvatakerfum ásamt auknu aðhaldi
og umræðu er hægt að stórbæta
stöðu drengja í íslensku samfélagi.
Framangreindir þættir gagnast von-
andi sem innlegg í þá góðu umræðu
sem farin er af stað, umræðu sem
þarf að dýpka á flestum sviðum sam-
félagsins hvort sem það er í skól-
anum, í félagsstarfinu, á Alþingi eða
á heimilinu.
Staða drengja – áskoranir og möguleikar
Morgunblaðið/RAX
Vísindi og samfélag
Hermundur Sigmundsson hs@nu.is
Tryggvi Hjaltason
’
Jákvæð viðbrögð þeg-
ar einstaklingar eru
að gera sitt besta eða ná
að framkvæma það sem
þeir ætluðu sér eru því
mjög mikilvæg.
Hermundur er prófessor í lífeðlislegri sál-
fræði við Háskólann í Þrándheimi og Há-
skólann í Reykjavík og Tryggvi Hjaltason,
sérfræðingur CCP