Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.03.2021, Page 4

Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.03.2021, Page 4
FRÉTTIR VIKUNNAR 4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.3. 2021 Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 |eirvik.is | Opið virka daga10-18 – 3 tæki í einu og mögulegt að breyta samsetningu ryksugu eftir þörfum – Allt að 60 til120 mínútna samfelldur gangtími – Breiður ryksuguhaus sem hentar fyrir allar gerðir gólfefna Skaftryksuga frá Miele með Li-ion rafhlöðu Vikan hófst með hvelli, þó strangt til tekið hafi sá hvellur komið á föstudagskvöldi. Þrátt fyrir að elds- umbrota hafi í og með verið vænst og það í bakgarði höfuðborgarinnar, virtist vera fössari í mannskapnum og ekki allir með á nótunum fyrr en gosið hafði á annan tíma. Gosið hófst í sprungu í Geldinga- dölum sunnan Fagradalsfjalls, ekki ýkja stórt, og í fyrsta sinn sem gýs á þeim slóðum í um 800 ár. Þar myndaðist skjótt strýta um gíginn og gosið tilkomumikið að sjá, en óhætt að fara nokkuð nærri því þó ekki væri vandalaust að komast að því. Þyrluþjónusta í höfuðborginni lifn- aði skyndilega við og hafði ekki und- an að fara með fólk í útsýnisflug yfir gosstöðvarnar, en jafnframt lögðu þúsundir land undir fót og fylltu netið af sjálfumyndum af sér og gosinu. Þar á meðal var ungur mað- ur sem bauð kærustunni með sér, lét lenda við hraunjaðarinn og bað hennar. Hún sagði já. Ferðaþjónustan vonaðist til þess að gosið myndi gagnast fleirum en þyrlusamfélaginu og komu gos- myndum á framfæri í von um auk- inn áhuga tilvonandi ferðamanna á landinu. Af erlendum fjölmiðlum að dæma var áhuginn á gosinu þó fremur hóflegur. Eins og borgarskáldið Tómas Guð- mundsson benti á væri landslag lít- ils virði, ef það héti ekki neitt. Þeg- ar hófst því lífleg umræða um nafngiftir, en flestar báru tillög- urnar með sér að mönnum þættu eldsumbrotin í minna lagi: Litla- Hraun, Ræfill og Geldingur voru þar á meðal. Brasilískt súrálsskip kom til hafnar í Reyðarfirði, en helmingur áhafnar- innar var smitaður af kórónuveir- unni. Foreldar úr Fossvogsskóla fóru í vettvangsferð í Korpuskóla, þar sem börn þeirra áttu að sækja skóla eftir að Fossvogsskóli var loks rýmdur vegna myglu. Í Korpuskóla voru þó miklar rakaskemmdir hið fyrsta sem við blasti. Ráðhúsið sendi frá sér tilkynningu um að þar hefði engin mygla fundist, en borg- arstjóri hefur ekki heldur fundist. . . . Jarðfræðingar fundu vísbendingar um að gosið í Geldingadölum væri dyngjugos og hraunið úr frum- stæðri kviku á miklu dýpi. Dyngju- gos geta varað árum og áratugum saman. Varað var við gasmengun, sem gæti fylgt gosinu. Almenningur hélt áfram að sækja í gosið, en þar á meðal voru ýmsir sem voru afleitlega búnir til þess og óvanir slíkum göngum. Þurfti fyrir vikið að koma á annað hundrað manns til aðstoðar í villum og vand- ræðum myrkrinu. Björgunarsveitin Þorbjörn frá Grindavík stikaði því bestu gönguleiðina. Nær öll íbúafjölgun í landinu á liðnu ári varð á höfuðborgarsvæðinu og nærliggjandi sveitarfélögum; Akranesi, Suðurnesjum og allt aust- ur á Selfoss. Áhyggjur af kórónuveirusmitum jukust verulega eftir að plágan hafði lítið látið á sér kræla undanfarnar vikur. Þau voru þó ekki mörg innan- lands eða utan sóttkvíar, en Þór- ólfur Guðnason sóttvarnalæknir setti sig samt í stellingar. Stjórn Festar skaut föstum skotum á Samkeppniseftirlitið í skýrslu sinni til aðalfundar félagsins, gagn- rýndi vinnubrögð þess harðlega og fann að störfum „óháðs kunnáttu- manns“ sem skipaður var til þess að fylgja eftir sátt um samruna Festar og N1 árið 2018. . . . Íslendingar héldu áfram að þyrpast á gosstöðvarnar þrátt fyrir að jarð- fræðingar teldu líkur á langvinnu gosi, sem varað gæti árum saman. Þeim lá samt lífið á. Allur er varinn góður og hafa gas- nemar selst upp. Gagnrýni á Samkeppniseftirlitið hélt áfram að koma upp á yfirborið, en Sigurður Hannesson hjá Sam- tökum iðnaðarins sagði vantraust hafa grafið um sig milli eftirlitsins og atvinnulífsins, sem Páll Gunnar Pálsson, forstjóri þess, hefði ekkert gert til þess að draga úr. Svanhild- ur Hólm Valsdóttir hjá Við- skiptaráði tók í sama streng og taldi skoðanaflutning embættismanna ekki sefa þær áhyggjur. Enn greindust ný smit, ekki ýkja mörg þó, þar á meðal hjá nokkrum grunnskólanemum í sóttkví. Bændur hyggjast leggja af þann- forna sið að fljúgast á og munu Bændasamtökin og búgreinafélög sameinast um mitt næsta ár ef allt gengur vel. Við endurmat kom á daginn að skuldastaða ríkissjóðs er betri en gert var ráð fyrir á liðnu ári. Samt sem áður er gert ráð fyrir að skuld- ir ríkisins hækki um 1.500 milljarða króna á árabilinu 2019-25, sem flest- um finnst víst meira en nóg. Enn voru sagðar af því fréttir að staða bólusetninga myndi senn glæðast, en nú er miðað við að það gerist eftir páska. Á það eru menn mistrúaðir, en það væri hreint páskakraftaverk ef takast myndi að bólusetja þorra þjóðarinnar fyrir mitt ár, eins og stjórnvöld tönnlast á. . . . Þátttaka Íslands í bóluefna- samstarfi Evrópu komst í uppnám þegar Evrópusambandið birti nýja reglugerð um útflutningshömlur á bóluefni, sem tóku til Íslands og 16 annarra landa. Samkvæmt henni mætti lítið ef nokkuð flytja af bólu- efni til Íslands, en forseti fram- kvæmdastjórnar ESB fullvisaði Katrínu Jakobsdóttur forsætisráð- herra um það í síma, að það væri ekkert að marka reglugerðina, Ís- landi yrði áfram reddað bóluefni. Katrín þakkaði kærlega fyrir vel- vildina, en ítrekaði að hún vildi að reglugerðinni yrði breytt. Hún gengi í berhögg við EES-samning- inn. Sama dag friku stjórnvöld út vegna lítillegrar aukninga smita og gripu til mjög hertra sóttvarnaraðgerða, þar sem landinu var svo að segja skellt í lás í þrjár vikur og páskarnir ekki alveg sú upprisuhátíð sem að var stefnt. Fermingum var frestað og bakarí landsins og veislueldhús skyndilega með mörg tonn af óseldu marsipani og majonesi undir skemmdum. Kári Stefánsson hjá Íslenskri erfðagreiningu lét í ljós þá skoðun að gefa þyrfti ferðum Pólverja milli Íslands og Póllands betri gaum, þar væri smittíðni mjög há en margir Pólverjar þátttakendur í sam- félögum í báðum löndum. Hin nýja dyngja í Geldingadölum hélt áfram að taka á sig mynd, sprunga kom á gíginn og annar myndaðist. Íbúðum í byggingu fækkaði milli ára, en aðalhagfræðingur Samtaka iðnaðarins segir að það megi rekja til stefnu um þéttingu byggðar á kostnað nýrra hverfa. Landið er ekki lokaðra en það að 250 manns tóku þátt í tökum á tískusýningu tískuhússins Yves Saint Laurent í Reynisfjöru. Samkeppnisstofnun sendi frá sér langa yfirlýsingu í kjölfar fjölmiðla- umfjöllunar um sig, þar sem gagn- rýni var þó aðeins að mjög litlu leyti svarað. Þar var hins vegar látið í veðri vaka, að ef Festi lokaði versl- un sinni á Hellu, kynni eftirlitið að grípa til aðgerða gegn henni. . . . Undanfarna viku höfðu greinst sjö ný kórónuveirusmit utan sóttkvíar. Rannsókn er hafin á lyfi sem nota má til þess að meðhöndla íslensku blæðinguna, arfgenga heilablæð- ingu, sem finna má hér á landi. Sjávarútvegsfyrirtækið Brim bætt- ist í hóp þeirra fyrirtækja, sem gagnrýna starfshætti Samkeppnis- eftirlitsins. Guðmundur Kristjáns- son, forstjóri Brims, segir eftirlitið skaða samkeppnishæni Íslands, það þvælist fyrir atvinnulífinu án sjáan- legrar ástæðu eða árangurs. Vogar höfnuðu því að veita Lands- neti framkvæmdaleyfi fyrir Suður- nesjalínu 2, en núverandi lína er í hættu vegna landrofs. Fræðimenn telja að veruleg gas- mengun komi frá eldgosinu í Geld- ingadölum, þar sem þúsundir tonna af brennisteinsdíoxíði og koldíoxíði losni dag hvern, sem setur loftslags- markmið Íslendinga óneitanlega í annað ljós. Jafnvel upp í loft. Innfæddir fara í túristagos Jarðeldar hófust í Geldingadölum á Reykjanesskaga fyrir liðna helgi. Íslenskur almenningur lét sig ekki vanta í nátt- úruhamfarirnar, þó sumir kvörtuðu undan því að þangað hefði hvorki verið gerður vegur mé mathöll samdægurs. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon 21.3.-26.3. Andrés Magnússon andres@mbl.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.