Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.03.2021, Blaðsíða 4
FRÉTTIR VIKUNNAR
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.3. 2021
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 |eirvik.is | Opið virka daga10-18
– 3 tæki í einu og mögulegt að breyta samsetningu ryksugu eftir þörfum
– Allt að 60 til120 mínútna samfelldur gangtími
– Breiður ryksuguhaus sem hentar fyrir allar gerðir gólfefna
Skaftryksuga frá Miele með Li-ion rafhlöðu
Vikan hófst með hvelli, þó strangt
til tekið hafi sá hvellur komið á
föstudagskvöldi. Þrátt fyrir að elds-
umbrota hafi í og með verið vænst
og það í bakgarði höfuðborgarinnar,
virtist vera fössari í mannskapnum
og ekki allir með á nótunum fyrr en
gosið hafði á annan tíma.
Gosið hófst í sprungu í Geldinga-
dölum sunnan Fagradalsfjalls, ekki
ýkja stórt, og í fyrsta sinn sem gýs
á þeim slóðum í um 800 ár. Þar
myndaðist skjótt strýta um gíginn
og gosið tilkomumikið að sjá, en
óhætt að fara nokkuð nærri því þó
ekki væri vandalaust að komast að
því.
Þyrluþjónusta í höfuðborginni lifn-
aði skyndilega við og hafði ekki und-
an að fara með fólk í útsýnisflug yfir
gosstöðvarnar, en jafnframt lögðu
þúsundir land undir fót og fylltu
netið af sjálfumyndum af sér og
gosinu. Þar á meðal var ungur mað-
ur sem bauð kærustunni með sér,
lét lenda við hraunjaðarinn og bað
hennar. Hún sagði já.
Ferðaþjónustan vonaðist til þess að
gosið myndi gagnast fleirum en
þyrlusamfélaginu og komu gos-
myndum á framfæri í von um auk-
inn áhuga tilvonandi ferðamanna á
landinu. Af erlendum fjölmiðlum að
dæma var áhuginn á gosinu þó
fremur hóflegur.
Eins og borgarskáldið Tómas Guð-
mundsson benti á væri landslag lít-
ils virði, ef það héti ekki neitt. Þeg-
ar hófst því lífleg umræða um
nafngiftir, en flestar báru tillög-
urnar með sér að mönnum þættu
eldsumbrotin í minna lagi: Litla-
Hraun, Ræfill og Geldingur voru
þar á meðal.
Brasilískt súrálsskip kom til hafnar
í Reyðarfirði, en helmingur áhafnar-
innar var smitaður af kórónuveir-
unni.
Foreldar úr Fossvogsskóla fóru í
vettvangsferð í Korpuskóla, þar
sem börn þeirra áttu að sækja skóla
eftir að Fossvogsskóli var loks
rýmdur vegna myglu. Í Korpuskóla
voru þó miklar rakaskemmdir hið
fyrsta sem við blasti. Ráðhúsið
sendi frá sér tilkynningu um að þar
hefði engin mygla fundist, en borg-
arstjóri hefur ekki heldur fundist.
. . .
Jarðfræðingar fundu vísbendingar
um að gosið í Geldingadölum væri
dyngjugos og hraunið úr frum-
stæðri kviku á miklu dýpi. Dyngju-
gos geta varað árum og áratugum
saman. Varað var við gasmengun,
sem gæti fylgt gosinu.
Almenningur hélt áfram að sækja í
gosið, en þar á meðal voru ýmsir
sem voru afleitlega búnir til þess og
óvanir slíkum göngum. Þurfti fyrir
vikið að koma á annað hundrað
manns til aðstoðar í villum og vand-
ræðum myrkrinu. Björgunarsveitin
Þorbjörn frá Grindavík stikaði því
bestu gönguleiðina.
Nær öll íbúafjölgun í landinu á
liðnu ári varð á höfuðborgarsvæðinu
og nærliggjandi sveitarfélögum;
Akranesi, Suðurnesjum og allt aust-
ur á Selfoss.
Áhyggjur af kórónuveirusmitum
jukust verulega eftir að plágan hafði
lítið látið á sér kræla undanfarnar
vikur. Þau voru þó ekki mörg innan-
lands eða utan sóttkvíar, en Þór-
ólfur Guðnason sóttvarnalæknir
setti sig samt í stellingar.
Stjórn Festar skaut föstum skotum
á Samkeppniseftirlitið í skýrslu
sinni til aðalfundar félagsins, gagn-
rýndi vinnubrögð þess harðlega og
fann að störfum „óháðs kunnáttu-
manns“ sem skipaður var til þess að
fylgja eftir sátt um samruna Festar
og N1 árið 2018.
. . .
Íslendingar héldu áfram að þyrpast
á gosstöðvarnar þrátt fyrir að jarð-
fræðingar teldu líkur á langvinnu
gosi, sem varað gæti árum saman.
Þeim lá samt lífið á.
Allur er varinn góður og hafa gas-
nemar selst upp.
Gagnrýni á Samkeppniseftirlitið
hélt áfram að koma upp á yfirborið,
en Sigurður Hannesson hjá Sam-
tökum iðnaðarins sagði vantraust
hafa grafið um sig milli eftirlitsins
og atvinnulífsins, sem Páll Gunnar
Pálsson, forstjóri þess, hefði ekkert
gert til þess að draga úr. Svanhild-
ur Hólm Valsdóttir hjá Við-
skiptaráði tók í sama streng og taldi
skoðanaflutning embættismanna
ekki sefa þær áhyggjur.
Enn greindust ný smit, ekki ýkja
mörg þó, þar á meðal hjá nokkrum
grunnskólanemum í sóttkví.
Bændur hyggjast leggja af þann-
forna sið að fljúgast á og munu
Bændasamtökin og búgreinafélög
sameinast um mitt næsta ár ef allt
gengur vel.
Við endurmat kom á daginn að
skuldastaða ríkissjóðs er betri en
gert var ráð fyrir á liðnu ári. Samt
sem áður er gert ráð fyrir að skuld-
ir ríkisins hækki um 1.500 milljarða
króna á árabilinu 2019-25, sem flest-
um finnst víst meira en nóg.
Enn voru sagðar af því fréttir að
staða bólusetninga myndi senn
glæðast, en nú er miðað við að það
gerist eftir páska. Á það eru menn
mistrúaðir, en það væri hreint
páskakraftaverk ef takast myndi að
bólusetja þorra þjóðarinnar fyrir
mitt ár, eins og stjórnvöld tönnlast
á.
. . .
Þátttaka Íslands í bóluefna-
samstarfi Evrópu komst í uppnám
þegar Evrópusambandið birti nýja
reglugerð um útflutningshömlur á
bóluefni, sem tóku til Íslands og 16
annarra landa. Samkvæmt henni
mætti lítið ef nokkuð flytja af bólu-
efni til Íslands, en forseti fram-
kvæmdastjórnar ESB fullvisaði
Katrínu Jakobsdóttur forsætisráð-
herra um það í síma, að það væri
ekkert að marka reglugerðina, Ís-
landi yrði áfram reddað bóluefni.
Katrín þakkaði kærlega fyrir vel-
vildina, en ítrekaði að hún vildi að
reglugerðinni yrði breytt. Hún
gengi í berhögg við EES-samning-
inn.
Sama dag friku stjórnvöld út vegna
lítillegrar aukninga smita og gripu
til mjög hertra sóttvarnaraðgerða,
þar sem landinu var svo að segja
skellt í lás í þrjár vikur og páskarnir
ekki alveg sú upprisuhátíð sem að
var stefnt. Fermingum var frestað
og bakarí landsins og veislueldhús
skyndilega með mörg tonn af óseldu
marsipani og majonesi undir
skemmdum.
Kári Stefánsson hjá Íslenskri
erfðagreiningu lét í ljós þá skoðun
að gefa þyrfti ferðum Pólverja milli
Íslands og Póllands betri gaum, þar
væri smittíðni mjög há en margir
Pólverjar þátttakendur í sam-
félögum í báðum löndum.
Hin nýja dyngja í Geldingadölum
hélt áfram að taka á sig mynd,
sprunga kom á gíginn og annar
myndaðist.
Íbúðum í byggingu fækkaði milli
ára, en aðalhagfræðingur Samtaka
iðnaðarins segir að það megi rekja
til stefnu um þéttingu byggðar á
kostnað nýrra hverfa.
Landið er ekki lokaðra en það að
250 manns tóku þátt í tökum á
tískusýningu tískuhússins Yves
Saint Laurent í Reynisfjöru.
Samkeppnisstofnun sendi frá sér
langa yfirlýsingu í kjölfar fjölmiðla-
umfjöllunar um sig, þar sem gagn-
rýni var þó aðeins að mjög litlu leyti
svarað. Þar var hins vegar látið í
veðri vaka, að ef Festi lokaði versl-
un sinni á Hellu, kynni eftirlitið að
grípa til aðgerða gegn henni.
. . .
Undanfarna viku höfðu greinst sjö
ný kórónuveirusmit utan sóttkvíar.
Rannsókn er hafin á lyfi sem nota
má til þess að meðhöndla íslensku
blæðinguna, arfgenga heilablæð-
ingu, sem finna má hér á landi.
Sjávarútvegsfyrirtækið Brim bætt-
ist í hóp þeirra fyrirtækja, sem
gagnrýna starfshætti Samkeppnis-
eftirlitsins. Guðmundur Kristjáns-
son, forstjóri Brims, segir eftirlitið
skaða samkeppnishæni Íslands, það
þvælist fyrir atvinnulífinu án sjáan-
legrar ástæðu eða árangurs.
Vogar höfnuðu því að veita Lands-
neti framkvæmdaleyfi fyrir Suður-
nesjalínu 2, en núverandi lína er í
hættu vegna landrofs.
Fræðimenn telja að veruleg gas-
mengun komi frá eldgosinu í Geld-
ingadölum, þar sem þúsundir tonna
af brennisteinsdíoxíði og koldíoxíði
losni dag hvern, sem setur loftslags-
markmið Íslendinga óneitanlega í
annað ljós. Jafnvel upp í loft.
Innfæddir fara
í túristagos
Jarðeldar hófust í Geldingadölum á Reykjanesskaga fyrir liðna helgi. Íslenskur almenningur lét sig ekki vanta í nátt-
úruhamfarirnar, þó sumir kvörtuðu undan því að þangað hefði hvorki verið gerður vegur mé mathöll samdægurs.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
21.3.-26.3.
Andrés Magnússon
andres@mbl.is