Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.03.2021, Qupperneq 6
VETTVANGUR
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.3. 2021
Fallegar vörur
fyrir heimilið
Sendum
um
land
allt
Tjarnargötu 2 | 230 Reykjanesbæ | Sími 421 3377 | bustod@bustod.is | www.bustod.is
Calia Pier
Ítalskt, gegnlitað nautsleður
3ja sæta sófi (226 cm) 339.000 kr.
2,5 sæta sófi (206 cm) 319.000 kr.
2ja sæta sófi (186 cm) 299.000 kr.
Mér líður eins og ég sé á bar meðmanni sem á ekki í góðu sam-bandi við áfengi og hann er að
byrja aftur á löngu og rosalegu leiðinlegu
sögunni sem hann var að segja áðan. Mig
langar ekki til að hlusta á hana en ég veit
að ég verð að sitja hérna allan tímann og
láta þetta ganga yfir mig. Annars er hættan
á að hann móðgist, elti mig uppi og segi
mér þessar sögur og fleiri. Ég er ekki til í
það.
Mér líður eiginlega líka eins og einhver
ofboðslega leiðinleg hljómsveit hafi verið að
tilkynna endurkomu með tónleikum um allar
koppagrundir og spilun á öllum útvarps-
stöðvum á þann hátt að það er engin leið að
komast undan því.
Nú er tíminn til að grafa djúpt eftir þol-
inmæðinni. Reyna að finna þessa bölvuðu
núvitund sem allir eru að tala um og sjá
björtu hliðarnar. Það getur reyndar verið
erfitt. Við erum búin að vera lengi í ein-
hvers konar Pollýönnuleik að selja okkur að
það hafi nú verið svo frábært að vera heima
dagana langa, njóta samvista með fjölskyld-
unni og koma ýmsu í verk sem hefur lengi
setið á hakanum.
En svo kemur að því að sölupunktar eins
og að geta unnið í náttfötunum hætta að
virka. Það er í alvöru ekki jafn spennandi
og það hljómar. Það er heldur ekkert neitt
sérstaklega spennandi að þurfa endalaust að
reyna að muna í hvaða sóttvarnahólfi maður
var, svo maður ráfi ekki út um allt, og fara
örugglega á rétt klósett. Við hefðum bara
algjörlega verið til í að sleppa þessu öllu.
Líka að bíða fyrir utan búðina eftir því að
réttri tölu er náð svo við getum keypt mjólk
og brauð. Okkur langar að njóta frelsisins
og gera allt það sem við gerum venjulega.
Alveg eins og við vorum aðeins byrjuð að
gera.
En svo kemur þetta. Ég veit ekki hvort
er verra: Að komast ekki út eða þurfa að
hlusta á alla sérfræðingana, sem að vísu
hafa ekki lagt fyrir sig mikla læknis-, veiru-
eða faraldursfræði en eru samt svo ofboðs-
lega miklir sérfræðingar. Vissu nákvæmlega
hvernig þetta myndi fara (að vísu bara eftir
á) og eru með allar lausnirnar á hreinu.
Það er samt pínu óþægilegt að lausnirnar
frá þessum hópum geta farið allt frá því að
gera ekki neitt og opna allt, yfir í að skella
öllu í lás, loka okkur inni og bíða veiruna af
okkur. En það er ekki eini tvískinnung-
urinn. Þannig geta sumir ekki beðið eftir því
að fá bóluefni svo þeir geti ferðast frjálsir
um allan heim en geta ekki hugsað sér að
taka á móti fólki sem hefur verið bólusett í
öðrum löndum. Með sama bóluefni. Við eig-
um að hafa áhyggjur af fölsuðum bólusetn-
ingarvottorðum en
það er óhugsandi
að við myndum
gera það sjálf!
Þetta er eitt af
því sem fylgir
þessari veiru og
þessu ástandi. Við
lokumst ekki bara
inni á heimilum okkar heldur í okkar eigin
huga. Við sjáum ekki til annarra landa og
áttum okkur ekki á því að ástandið hér á
versta degi er betra en það hefur best orðið
í flestum löndum í kringum okkur.
Núna þegar svo margir líta til Bretlands
sem einhvers konar fyrirmyndar í bólusetn-
ingu þá er eins og fólk gleymi því að í heilt
ár hefur þessi þjóð verði í nokkurs konar
stofufangelsi með gríðarlegum fjölda smita
og dauðsfalla. Þar hefur varla verið eðlilegt
skólahald í meira en nokkrar vikur, versl-
unum lokað og fólki bannað að vera á ferli.
Eða sjáið þið Katrínu Jakobsdóttur í spor-
um Boris Johnson að segja fólki að það
megi fara út fyrir hússins dyr einu sinni á
dag og að hámarki í klukkutíma?
Þetta er bara eins og þetta er. Það er
ekkert við þessu að gera. Við verðum bara
að taka þessu. Þetta er vont en það venst.
Og svo framvegis…
’
En svo kemur að því að
sölupunktar eins og að geta
unnið í náttfötunum hætta að
virka. Það er í alvöru ekki jafn
spennandi og það hljómar.
Á meðan ég man
Logi Bergmann
logi@mbl.is
Jæja
Ég er ekki bindindismaður.Stundum hef ég meira aðsegja verið óþægilega langt
frá því. Þess vegna er það svolítið
sérstakt að bindindishreyfingin,
IOGT, skuli hafa farið þess á leit
við mig nú nýlega að stýra ráð-
stefnu um vímuefnavarnir, hver
skuli vera íslenska leiðin. Var þá
til samanburðar það sem kallað
hefur verið portúgalska leiðin,
sem þeir helst guma af sem vilja
opna sem mest á frjálsræði við
notkun vímuefna. Svo er til
sænska leiðin og norska leiðin, en
allar þessar leiðir voru ræddar á
fyrrnefndri ráðstefnu og hafði
sérstaklega verið boðið sérfræð-
ingum frá Noregi og Svíþjóð að
ræða málin ásamt íslensku kunn-
áttufólki á þessu sviði.
Það voru reyndar fleiri en bind-
indishreyfingin, IOGT, sem stóðu
að þessari ráð-
stefnu. Það
gerðu líka
FRÆ, Félag
áhugafólks um
forvarnir og
heilsueflingu, og
Náum áttum,
samstarfsvett-
vangur fé-
lagasamtaka og
stofnana, og þarna var einnig
ræðumaður frá Foreldra-
samtökum gegn áfengisauglýs-
ingum að ógleymdum sérfræðingi
Embættis landlæknis.
Ég geri ráð fyrir því að ég hafi
verið þarna staddur vegna þess að
ég hef beitt mér ásamt þessum
samtökum fyrir því að Ísland
standi við eigin lög og eigin stefnu
í heilsufarsmálum, leyfði ekki
áfengisauglýsingar, héldi sig við
þá afstöðu að gefa ekki gróðaöfl-
um lausan tauminn í áfengissölu
og færi þar með að ráðleggingum
alþjóðlegra heilbrigðisyfirvalda.
Með öðrum orðum, ég þótti verð-
ugur fulltrúi varfærinnar íhalds-
semi í þessum málaflokki.
Ekki er ég feiminn við að gang-
ast við því að vera málsvari að-
halds og forvarna. Þegar ég var
stórreykingamaður á mínum yngri
árum í Bretlandi þótti mér ekkert
notalegra en að fara í bíó og horfa
þar á tvær þrjár bíómyndir í röð
með popp, kók og nóg af sígar-
ettum. Gerði ég þetta stundum að
loknum prófum. Ef ég hins vegar
hefði verið spurður hvort ég vildi
leyfa reykingar í íslenskum bíóum
hefði ég greitt atkvæði gegn því.
Hvers vegna? Ég hefði svarað því
til að ég vildi stuðla að umhverfi
sem hjálpaði mér, letti mig en
ekki hvetti, til að gera það sem ég
vissi að gerði mér illt.
Bisnessöflin láta ekki að sér
hæða á þessu sviði frekar en öðr-
um. Dapurlegt er að sjá hve
margir framleiðendur og fjöl-
miðlar eru tilbúnir að fara á bak
við bannið við áfengisauglýsingum
og það mega menn líka vita að ef
eða þegar kannabis verður viður-
kennd neysluvara á borð við sæl-
gæti þá verður hún seld sem slík.
Þetta segi ég einmitt vegna þess
að í þeim ríkjum Bandaríkjanna
sem farið hafa í farveg lögleið-
ingar, er sælgætisiðnaðurinn ein-
mitt að skoða hvernig búa megi til
eftirsóknarvert nammi með slík-
um efnum.
Á ráðstefnunni sem hér segir
frá kom í ljós að portúgalska leið-
in er allt önnur en við höfum haft
spurnir af. Það fylgir nefnilega
sögunni af portúgölsku leiðinni að
Portúgalar hafi afglæpavætt
neyslu vímuefna samfara stór-
efldum stuðningi við fíkniefna-
neytendur, fjárhagslega og fé-
lagslega. Höfundar þessarar
leiðar hafa sagt að afglæpavæð-
ingin ein hefði aðeins orðið til ills
ef þessi mikli viðbótarstuðningur
hefði ekki komið til sögunnar. Og
er þá komið að því að segja nokk-
ur orð um íslensku leiðina. Í lang-
an tíma hefur enginn verið ákærð-
ur fyrir að neyta kannabis.
Ákæra, hafi hún á annað borð
tengst slíkri neyslu, hefur þá ver-
ið vegna afleiddra brota, að aka
undir áhrifum eða annars slíks.
Þetta hefur ver-
ið skynsamleg
stefna af hálfu
íslenskra yfir-
valda, að láta
notandann í
friði en sporna
gegn sölu og
dreifingu.
Eða viljum
við ekki gera
það? Það vilja Portúgalar, það
vilja Norðmenn og Svíar, sem
ganga lengst í forvörnum, og það
hafa Íslendingar viljað. Það er
helst á Alþingi að vilji sé til þess
að fella alla varnarmúra gegn vá-
gestum sem fíkniefni óneitanlega
eru, hvort sem það er tóbak,
áfengi, kannabis eða kókaín. Mest
er vörnin í því fólgin að fá að vita
af hálfu umhverfisins, foreldra,
skólans, löggjafans, þeirra sem
annt er um heilsufar og heilsuefl-
ingu að best sé að vera laus við
þetta eftir því sem við ráðum við.
Þá smíðum við líka umhverfi sem
hjálpar okkur í þá áttina. Það ætti
að vera íslenska leiðin. Á ráð-
stefnunni var horft til umhverfis-
mats og spurt hví ekki heilsufars-
mat; að við allar lagabreytingar
sem snúa að afmörkuðum þáttum
eða hópum verði spurt um almenn
áhrif á heilsufar í samfélaginu.
Einnig kom fram mikilvægi þess
að setja heildræna stefnu með að-
gerðaáætlun í stað einstakra laga-
breytinga sem geta oft haft ótil-
ætluð áhrif eða afleiðingar fyrir
aðra en upphaflegan markhóp
lagabreytinganna. Og vel að
merkja, sjálfan markhópinn mætti
eflaust skilgreina stærri en iðu-
lega er gert, það vita aðstand-
endur þeirra sem ánetjast fíkni-
efnum betur en aðrir. Fram til
þessa hefur íslenska leiðin ekki
refsað í reynd heldur læknað og
hjálpað. En hún leggur heldur
ekki blessun yfir það sem við öll
vitum, alla vega innst inni, að ger-
ir okkur illt. Til að framfylgja ís-
lensku leiðinni þarf engar laga-
breytingar, bara aukið fjármagn
til forvarna og síðan til aðstoðar
og hjálpar.
Íslenska leiðin í
vímuefnavörnum
Úr ólíkum
áttum
Ögmundur Jónasson
ogmundur@ogmundur.is
’
Og vel að merkja,
sjálfan markhópinn
mætti eflaust skilgreina
stærri en iðulega er gert,
það vita aðstandendur
þeirra sem ánetjast fíkni-
efnum betur en aðrir.