Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.03.2021, Síða 12

Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.03.2021, Síða 12
Þ að ríkir mikil litagleði á heimili Helgu Rúnar Pálsdóttur sem tek- ur brosandi á móti blaðamanni í blómakjól, sem hún hefur sjálf- sagt saumað sjálf. Á vegg í stof- unni blasir við stórt bútasaumsteppi frá Gvate- mala sem Helga Rún heldur mikið upp á, enda saga í hverjum þræði. Við setjumst í notalega stofuna og fáum okkur heitt te og ræðum lífs- starfið en Helga Rún hefur sannarlega oft ver- ið konan á bak við tjöldin, á þönum með nál og tvinna á lofti, nú eða með handsaumavél sem henni áskotnaðist og hefur létt henni lífið. „Líf mitt er búið að vera ansi litskrúðugt, enda segi ég alltaf að lífið sé í lit. Ég hef komið að mörgum skemmtilegum verkefnum og allt- af haft nóg að gera,“ segir Helga Rún og sýpur á heitu teinu. Stífar skoðanir á fötum Helga Rún var ekki há í loftinu þegar hún fór að hanna og sauma sín eigin föt. „Ætli þetta hafi ekki allt byrjað með því að ég var lesblind og mjög góð í stærðfræði, en sniðagerð og saumskapur er í raun mikil stærðfræði. Þá fór ég að búa mér til allt mögu- legt og saumaði á mig föt, alveg frá sjö ára aldri. Ég átti þó eftir að klára alls kyns nám síðar, þrátt fyrir lesblinduna,“ segir Helga Rún og segist hafa lært að sauma af sjálfri sér. „Mamma var vonlaus að sauma! En hún átti samt saumavél. Ég hafði líka stífar skoðanir á fötum og hverju ég vildi klæðast og setti oft saman einhvern furðufatnað. Ég var strax bú- in að ákveða þrettán ára hvað ég ætlaði að verða þegar ég yrði stór og það hefur allt ræst og mikið meira en það. Ég ákvað að verða fatahönnuður og stofna mitt eigið fyrir- tæki,“ segir Helga Rún sem kláraði mennta- skóla og fór þaðan í Iðnskólann þar sem hún kláraði klæðskeranám og síðar tók hún meist- araréttindi í faginu. Síðustu tíu árin hefur hún verið formaður sveinsprófsnefndar í klæð- skurði. „Eftir Iðnskólann fór ég til Danmerkur og lærði fatahönnun og þar byrjaði ég að læra hattagerð sem er ólík klæðskerafaginu. Ég stofnaði þá mitt eigið fyrirtæki, Prem, og rak það í 23 ár,“ segir Helga Rún en eftir námið í Danmörku lá leiðin til London þar sem hún lærði leikmynda- og búningahönnun, ásamt því að vera í hattagerð. „Ég ætlaði nú aldrei að flytja aftur heim, en það var erfitt að fá atvinnuleyfi í Englandi, þannig að ég kom heim og fór að vinna við bún- ingahönnun. Svo ílengdist ég hér eftir að ég hitti manninn minn,“ segir hún en Helga Rún er gift Alfreð Sturlu Böðvarssyni, heimspek- ingi og ljóshönnuði. Hálfnakin í frakka Eftir heimkomuna frá London starfaði Helga Rún við búningahönnun fyrir Íslensku óper- una, leikhúsin og einnig sá hún um búninga fyrir Spaugstofuna í þrettán ár. Hún tók einn- ig að sér búningagerð fyrir Fóstbræðraseríur og ýmsar heimildamyndir. Var ekki gaman að vinna með Spaugstof- unni? „Jú, það var ansi gaman og þeim datt ótrú- legustu hlutir í hug. Ég þurfti oft að gera mikla og stórfenglega búninga á stuttum tíma. Það voru fundir á miðvikudagsmorgnum klukkan níu og þá var farið yfir málin. Svo hafði maður þann dag til að safna saman bún- ingum og búa til búninga fyrir tökurnar, því það var byrjað í tökum strax á fimmtudags- morgni,“ segir Helga Rún og segist hafa verið með þeim í tökum og hafi oft þurft að grípa í nálina til að klára eitt og annað. „Þarna komu oft upp ansi brjálaðar hug- myndir. Einu sinni gerði ég og saumakonur RÚV, þær Ingibjörg og Stefanía, Stubbabún- inga og í annað sinn hannaði ég og við saum- uðum fjóra hvalabúninga og vorum að því langt inn í nóttina,“ segir hún og segir vinnuna með þeim félögum hafa verið afar skemmti- lega. Einnig hafi verið mikið fjör að vinna með Fóstbræðrum. „Það var oft lítið sofið og stundum tók það því ekki að fara heim á milli tökudaga. Bún- ingafólkið er mætt fyrst á morgnana til að klæða leikara í fyrir smink og svo í lok dags þarf að þrífa búningana og hafa allt tilbúið fyr- ir næsta dag. Og stundum verða breytingar og það er aldrei sagt nei; maður bara reddar þessu, það er bara svoleiðis,“ segir Helga Rún og rifjar upp skondna sögu. „Einu sinni var ég í tökum uppi á Mosfells- heiði þegar kallað var: „Það þarf að bæta við konu!“ Ég sagðist ekki vera með neina auka- kvenbúninga. Ég þurfti því bara að fara úr föt- unum og lána Randveri þau. Ég greip bara frakka sem var notaður í aðra senu og stóð hálfnakin í honum á meðan upptökurnar fóru fram,“ segir hún og hlær. „Í annað skipti vorum við úti í bæ í tökum þegar Örn Árna kemur hlaupandi og segist þurfa stóran brjóstahaldara. Ég var ekkert með neinn aukabrjósthaldara þannig að ég vippaði mér úr mínum og lánaði honum, enda er ég með stór brjóst. Maður bara reddar þessu.“ Stóru skórnir hans Flosa Helga Rún hefur oftar þurft að grípa til sinna ráða til að redda hlutunum á setti. Get ég kannski fengið skóna þína lánaða? Klæðskerameistarinn, fata- hönnuðurinn, leikmynda- og búningahöfundurinn og hattadaman Helga Rún Páls- dóttir hefur komið víða við á fjölbreyttum og litríkum ferli. Í dag vinnur hún hjá Össuri en vinnuna fékk hún eftir að hafa kvartað yfir útliti spelkna sem hún þurfti að nota. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Morgunblaðið/Ásdís ’ Ég hljóp að honum og bauð góðan dag og horfði niður á skóna hans og sagði svo: „Við erum að taka upp heimildamynd um Jón Sigurðsson, má bjóða þér að horfa á senu? Og get ég kannski fengið skóna þína lánaða á meðan?“ „Ég hef oft verið spurð hvað mér hafi fundist skemmtilegast á ferlinum. En það er bara þannig að það sem ég er að vinna að hverju sinni, það er skemmtilegast! Ég fer alltaf inn í verkefnin og verð heltekin af þeim,“ segir Helga Rún Pálsdóttir. VIÐTAL 12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.3. 2021

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.