Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.03.2021, Page 15

Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.03.2021, Page 15
orðin slæm af slitgigt í hnjánum að standa allt- af upp á endann langa daga í tökum. Það er auk þess mikill burður í starfinu; maður þurfti oft að bera þunga búninga og efnisstranga, þannig að hnén voru orðin ansi léleg og ég þurfti að fá spelkur frá Össuri sem virkuðu mjög vel en mér fannst þær ansi ljótar og fyr- irferðarmiklar og kvartaði mikið yfir útliti þeirra. Eftir að hafa kvartað í töluverðan tíma buðu þeir mér vinnu,“ segir Helga Rún sposk. Þannig að það var eiginlega tilviljun að þú fékkst þessa vinnu? „Það var algjör tilviljun! Bara af því ég kvartaði svo mikið undan útlitinu,“ segir hún og hlær. „Þetta voru mjög fyrirferðarmiklar hnjá- spelkur, en héldu vel við hnén og minnkuðu verki og bólgur. Þær voru hins vegar hræði- lega ljótar og hæfðu alls ekki dömu sem vildi vera í pilsum og kjólum,“ segir Helga Rún og segist hafa tekið þátt í að hanna penni og fal- legri spelkur eftir að hún fór að vinna hjá fyrir- tækinu. „Í dag vinn ég sem textíl- og vöruhönnuður í rannsóknar- og þróunardeildinni og held utan um frumgerðarsaumastofu Össurar. Þar setj- um við saman nýjar hugmyndir, búum til snið- in og finnum efni eða búum þau til. Svo þegar varan er tilbúin til framleiðslu fylgi ég henni oft eftir og fer út og hjálpa til við að setja upp framleiðslulínu. Stundum þjálfa ég starfsfólkið af því þá er ég búin að prófa og æfa alla fram- leiðsluferla hér heima. Teymið sem ég er í hannar spelkur fyrir flesta liði líkamans en einnig aðstoða ég aðra hópa í rannsóknardeild- inni,“ segir hún. „Það er miklu meiri textíll í spelkunum en var áður og minna plast og járn; notendurnir eru orðnir kröfuharðari um þægindi og útlit á stoðtækjum,“ segir Helga Rún. „Það sem er svo frábært í mínu starfi er að ég er ein af fáum í rannsóknar- og þróunar- deildinni sem eru með í ferlinu frá upphafi til enda á vörunni; allt frá því að hugmyndirnar fæðast og þar til varan kemur tilbúin út úr framleiðslunni. Þetta er eins og meðganga og fæðing og maður fyllist stolti yfir að vera með í svona skemmtilegri nýsköpun,“ segir Helga Rún og segir að hluti af vörum Össurar sé framleiddur í Tijuana í Mexíkó og fari hún því oft þangað en einnig til Asíu. „Það hefur orðið mikil framþróun hjá spelkuhönnunarhópnum okkar og í dag eru þessar spelkur orðnar fyrirferðarlitlar og hægt að vera í þeim undir leggings og það sést ekki að þú sért í þeim undir. Við höfum hannað mjaðmaspelkur sem sjást ekki undir jakkaföt- um. Þetta er allt annað líf,“ segir Helga Rún sem segist enn nota sínar spelkur þegar álagið er mikið. Helga Rún er afar ánægð hjá Össuri. „Ég bíð eftir því að komast út um dyrnar á morgnana til að komast í vinnuna. Þetta er mjög skapandi og gefandi vinna. Þetta er tarnavinna sem hentar mjög vel fyrir konu eins og mig sem er með bakgrunn í leikhúsi og sjónvarpi. Maður lærir að nærast á törnum; vinna undir álagi og finna adrenalínið flæða.“ Eina hattadaman á landinu Þrátt fyrir að vera í fullri vinnu hjá Össuri læt- ur Helga Rún það ekki duga og vinnur oft að ýmsum aukaverkefnum, auk allra námskeið- anna. „Ég fann það fjótt að til að halda mér skap- andi yrði ég líka að vera svolítið í mínum gömlu verkefnum með. Einhvers staðar verð- ur maður að fylla á tankinn því það er erfitt að vera hugmyndaríkur átta tíma á dag eftir pöntun. Því tek ég að mér að sérhanna fyrir fólk og gera hatta en nú vel ég mín verkefni. Ég geri oft hatta fyrir leikhúsin því í rauninni er ég eina hattadaman á landinu og þess vegna er stundum kvabbað í mér,“ segir Helga Rún og segir að tímabilið fyrir hrun hafi verið skemmtilegt. „Það var rosalegur uppgangur og útrásar- víkingarnir voru að fara á Ascot og Wimbledon og þá gerði ég mikið af höttum á konurnar. Og það var aldrei spurt um verð. Svo voru kjóla- meistarar að sauma á þær kjólana. Eitt skipti á Ascot átti ég marga hatta því það voru ansi margar íslenskar konur þar það árið. Svo hef ég saumað hatta á konur sem hafa verið á leið í konungleg brúðkaup. Þá koma þær með lista, en það er alveg sérstakt „dresscode“ fyrir hvert boð. Og þú ert með höfuðfat í öll skiptin. Svo eru börðin misstór eftir því hvar þú ert í goggunarröðinni en höfuðföt í Bretlandi segja til um þína stétt og stöðu, og hefur verið þann- ig í gegnum aldirnar,“ útskýrir Helga Rún. Er einhver eftirspurn eftir höttum í dag? „Nei, ekki mikil. Kynslóðin sem notaði jarð- arfarahatta er horfin,“ segir Helga Rún og segist hafa haft mikið að gera í hattagerðinni á árum áður. „Það var hefð hér áður að konur væru með höfuðfat við sorgarathafnir og þá oft í stíl við kápuna. Þá þurftu þær heldur ekki að leggja á sér hárið. Ég gerði líka herrahatta og ég segi í dag að ég sauma fyrir öll kyn.“ Vaknar á nóttunni með hugmyndir Helga Rún sýnir blaðamanni inn í vinnustof- una þar sem má sjá saumavélar, efnisstranga, plastbox full af dóti og stórt vinnuborð. Þarna gerast galdrarnir. „Ég hef oft verið spurð hvað mér hafi fund- ist skemmtilegast á ferlinum. En það er bara þannig að það sem ég er að vinna að hverju sinni, það er skemmtilegast! Ég fer alltaf inn í verkefnin og verð heltekin af þeim. Ég vakna oft á nóttunni með hugmyndir og lausnir. Ég er allan sólarhringinn með hugann við vinn- una,“ segir Helga Rún. Helga Rún neitar því að það sé brjálað að gera hjá sér. Hún segist hafa nógan tíma til að fara í sjósund, sund, pílates og halda matar- boð. Í frítíma gerir hún einnig upp gömul hús- gögn og í gegnum árin hefur hún saumað mik- ið á fjölskylduna; allt frá brjóstahaldara með spöngum og stuttbuxum á manninn til búninga á litlu strákana. Helga Rún segist hafa kennt drengjunum snemma að sauma, enda er annar þeirra að feta í hennar fótspor. Nú á hún tvær tengdadætur sem hún segist hlakka til að sauma meira á. Önnur fékk meira að segja út- skriftarkjól um daginn. „Þetta er ekkert mál. Ég er vön því í gegn- um tíðina að nota tímann vel og skipuleggja mig. Ég er svo heppin að geta unnið við áhuga- mál mitt.“ Gjarnan þurfti Helga Rún að dytta að búningum á setti, eins og hjá Helgu Brögu í Fóstbræðrum. Helga Rún er hér að mála lukkudýrið Sprota. Lögreglubangsinn sést hér á mynd ásamt sonum Helgu Rúnar þegar þeir voru litlir.Spaugstofan var gjarnan í flottum og flóknum búningum sem Helga Rún saumaði. Helga Rún vann lengi með Fóstbræðrum. Hér má sjá hópinn úr sápuóperunni Bílastæðavörðunum. Lukkudýr landsins eru flest gerð af Helgu Rún, sem stendur hér við hlið Georgs mörgæsar. Helga Rún gerði oft búninga fyrir heimildamyndir en hér má sjá hana á setti myndar um trúar- bragðasögu Íslands. Hún kafaði djúpt í heimildavinnu svo búningar yrðu sem trúverðugastir. Þegar Helgu Rún fannst styttur bæjarins vanta höfuðföt saumaði hún á þær hatta eftir máli. ’ Þannig að hnén voru orðin ansi léleg og ég þurfti að fá spelkur frá Össuri sem virkuðu mjög vel en mér fannst þær ansi ljótar og fyrirferðarmiklar og kvartaði mikið yfir útliti þeirra. Eftir að hafa kvartað í töluverð- an tíma buðu þeir mér vinnu. 28.3. 2021 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.