Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.03.2021, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.3. 2021
LESBÓK
DAUÐINN Bandaríska leikkonan Riley Keough hefur lokið
svokölluðu myrkramóðurnámskeiði en tilgangur þess er að
búa fólk betur undir brotthvarf ástvina úr þessum heimi. Hún
greindi frá þessu á Instagram á dögunum en bróðir hennar,
Benjamin Keough, svipti sig lífi síðasta sumar, aðeins 27
ára að aldri. Keough, sem sjálf er 31 árs, var illa undir
það áfall búin og segir þessa erfiðu reynslu hafa kennt
sér að ekki sé síður mikilvægt að fólk búi sig undir
dauða en fæðingu ástvina. Hún vonast til að miðla af
þekkingu sinni og hvetur fólk til að ræða opinskátt
um dauðann enda bíði hann okkar allra. Keough er
dóttir söngkonunnar Lisu Marie Presley og þar af
leiðandi barnabarn rokkkóngsins sjálfs, Elvis Pres-
leys, og leikkonunnar Priscillu Presley.
Lærir til myrkramóður
AFP
Riley Keough
er dóttur-
dóttir Elvis
Presleys.
ROKK Hver man ekki eftir Lukas Rossi,
sigurvegaranum geðþekka úr raunveruleika-
sjónvarpstónlistarþættinum (toppið lengdina
á því orði!) Rock Star Supernova, sem Magni
okkar Ásgeirsson tók svo eftirminnilega þátt
í vestur í Bandaríkjunum fyrir hálfum öðrum
áratug? Hann er enn að syngja úr sér lifur og
lungu og nú er von á nýrri breiðskífu frá einu
af böndunum hans, Switchblade Glory. Hum-
an Toys nefnist hún og kemur út á tíu ára af-
mæli fyrri plötu þeirra sjálfskeiðunga sem
bar nafn bandsins. Með Rossi í Switchblade
Glory eru Kenny Aronoff á trommur, Steve
Polin á gítar og Josh Esther á bassa.
Enn að syngja úr sér lifur og lungu
Lukas Rossi er þekktur fyrir hressleika á sviði.
AFP
Max Cavalera iðar af sköpunargleði.
Fordæmalaus
tónlist
KRAFTUR Fáir menn eru afkasta-
meiri í málmheimum en Max Cava-
lera sem meðal annars hefur verið í
Sepultura, Soulfly, Cavalera
Conspiracy og Killer Be Killed. Nú
hefur kappinn sett á laggirnar nýtt
band, Go Ahead and Die, ásamt syni
sínum Igor Amadeus Cavalera, sem
spilar á gítar og bassa, auk þess að
syngja, og trymblinum Zach Colem-
an. Fyrsta breiðskífa sveitarinnar
kemur út í júní en tónlistarmynd-
band við fyrsta lagið, Truckload
Full Of Bodies, hefur þegar litið
dagsins ljós. Um er að ræða bræð-
ing milli þrass og dauðamálms og
vel er víst tekið á því. „For-
dæmalausir tímar kalla á fordæma-
lausa tónlist,“ segir Cavalera.
Glæpur er miðlægur í Systra-böndum, nýjum íslenskumframhaldsþætti, en eigi að
síður er ekki um ráðgátu að ræða.
Enginn sem séð hefur stikluna
vegna þáttarins þarf að velkjast í
vafa – þrjár vinkonur um fertugt
frömdu glæpinn þegar þær voru
fimmtán ára. Réðu jafnöldru sinni
bana í litlu þorpi úti á landi og hafa
haldið því leyndu í aldarfjórðung. En
svo finnast jarðneskar leifar hinnar
látnu og uppgjörið verður ekki
umflúið.
„Þetta er svolítið óvenjulegt,“ við-
urkennir Lilja Nótt Þórarinsdóttir,
sem leikur eina af vinkonunum, „oft
má ekki segja neitt fyrirfram, sér-
staklega þegar um glæpaþætti er að
ræða, en núna getur maður sagt ým-
islegt. Systrabönd er ekki svona
klassískur „nordic noir“-þáttur, þar
sem áhorfandinn fær ekkert að vita í
upphafi, heldur liggur strax fyrir að
þrjár vinkonur hafa lifað með ógeðs-
legu og tærandi leyndarmáli í 25 ár
og þegar líkið finnst þurfa þær að
horfast í augu við gjörðir sínar.“
Þar sem við erum vel upplýst í
upphafi segir Lilja Nótt nær að tala
um spennudrama en spennutrylli
þegar Systrabönd eru annars vegar.
„Mín trú er sú að áhorfendur komi
til með að fjárfesta tilfinningalega
meira í þessum karakterum en í
dæmigerðari glæpaþáttum þar sem
mesta púðrið fer í að ráða gátuna,“
segir hún.
Lífið fljótt að breytast
Systrabönd er í sex hlutum sem
koma í heild sinni inn í Sjónvarp
Símans Premium á miðvikudaginn
kemur. Fyrsti þátturinn verður svo
sýndur í línulegri dagskrá í Sjón-
varpi Símans á páskadag. Hver þátt-
ur er um klukkustund að lengd.
Lilja Nótt segir vinkonurnar hafa
unnið með ólíkum hætti úr þessari
erfiðu lífsreynslu. „Um það snýst
sagan. Lífið getur verið svo fljótt að
breytast og stundum erum við bara
einu unglingafylleríi frá því að rústa
því. Hvað gerum við þá? Vinkon-
urnar sammælast um að varðveita
þetta hræðilega leyndarmál og segja
engum frá. Það hefur að sjálfsögðu
sínar afleiðingar en leyndarmálið
gerir hvort tveggja í senn, sameinar
þær og sundrar þeim. Þær eru fast-
ar í vítahring. Minnið, það magnaða
fyrirbæri, spilar líka stórt hlutverk
en vinkonurnar muna atburðinn
ekki allar eins eftir allan þennan
tíma.“
Vinkonurnar eru ólíkar innbyrðis
Er ekki ein-
hver beygla í
okkur öllum?
Nýr íslenskur framhaldsþáttur, Systrabönd, kem-
ur í heild inn í Sjónvarp Símans Premium á mið-
vikudag. Lilja Nótt Þórarinsdóttir, sem leikur eitt
af aðalhlutverkunum, hefur tröllatrú á þættinum.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Lilja Nótt útilokar ekki að önnur sería af Systraböndum verði gerð.
„Við vorum alla vega búnar að finna út strax síðasta sumar hvað
gæti gerst í næstu seríu,“ upplýsir hún. Sjálf er hún til í tuskið.
„Gaman yrði að fara lengra með þessa karaktera og þar til bærir
aðilar hafa verið látnir vita að vilji okkar standi til þess. Annars velt-
ur það líklega mest á viðtökunum. Fyrst hér heima en síðan annars
staðar á Norðurlöndunum og í Bretlandi og svo vonandi víðar.“
Spurð hvað valdi vinsældum íslenskra glæpaþátta erlendis á um-
liðnum árum og misserum svarar Lilja Nótt:
„Það er í DNA okkar Íslendinga að segja
sögur. Við eigum elstu bækur í heimi, bú-
um í brjálaðri náttúru og erum hrein-
skilin að eðlisfari. Við sköpum líka al-
vörufólk í þessum þáttum sem
áhorfendur tengja við, ekki ein-
hverjar barbídúkkur. Síðast en ekki
síst eigum við fullt af hæfileikaríku
fólki í kvikmynda- og sjónvarps-
þáttagerð.“
Í okkar DNA að segja sögur
Silja Hauksdóttir leik-
stýrir Systraböndum.