Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.03.2021, Page 29

Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.03.2021, Page 29
og Lilja Nótt segir aðstæður að öll- um líkindum hafa fært þær saman. „Þær koma úr litlu þorpi þar sem erfiðara er að velja sér vini. Það er alls ekki víst að þær hefðu verið vin- konur í Hagaskóla. Þær hafa allar átt erfitt, hver á sinn hátt, og eru fyrir vikið með sinn bakpoka í lífinu. En á það svo sem ekki við um okkur öll? Er ekki einhver beygla í okkur öllum? Svo var samfélagið miklu lok- aðra fyrir 25 árum en það er í dag, ekki síst í litlum þorpum.“ Á misjöfnum stað í lífinu Brestir hafa komið í vináttu af minna tilefni en vinkonurnar þurfa eigi að síður að gæta vel hver að annarri, svo ekkert leki út. Þær eru á ákaflega misjöfnum stað í lífinu. Ein er prestur, önnur matreiðslu- meistari og sú þriðja sjúkraliði. Sú síðastnefnda hefur verið í klóm fíkniefna en er edrú þegar okkur ber að garði. Að vonum þarf þó að passa sérstaklega vel upp á hana. Lilja Nótt leikur prestinn sem vegnað hefur vel í lífinu – alltént út á við. Hún á lítið barn þegar við hitt- um hana og fyrir vikið er meira í húfi fyrir hana en hinar vinkonurnar. Hún hefur mögulega mestu að tapa. Matreiðslumeistarinn hefur farið aðra leið – sökkt sér í vinnu og sett alla aðra fram fyrir sig. Þannig tekst henni að ýta leyndarmálinu á undan sér. Lilja Nótt kveðst hafa notið hvers dags við gerð Systrabanda. „Fyrir það fyrsta er handritið ógeðslega spennandi og í annan stað er hóp- urinn sem kom að þessu verkefni í einu orði sagt æðislegur.“ Hugmyndin er runnin undan rifj- um Jóhanns Ævars Grímssonar sem fékk Björgu Magnúsdóttur, Jó- hönnu Friðriku Sæmundsdóttur og Silju Hauksdóttur til liðs við sig við handritsgerðina. Silja sér jafnframt um leikstjórnina og Jóhanna leikur eitt aðalhlutverkanna. Lilja Nótt og Ilmur Kristjánsdóttir, sem leikur þriðju vinkonuna, komu svo að þró- un karakteranna á lokametrunum. „Það var frábært að koma inn undir lokin og fá þannig að hafa áhrif og atkvæðisrétt við borðið og taka sjálf þátt í að gefa mínum kar- akter aukna dýpt. Það er ekki oft sem maður fær það vald. Þetta gaf okkur Silju, Jósu og Ilmi líka dýr- mætt tækifæri til að vinna fjórar saman áður en farið var í tökur. Ég er ekki í nokkrum vafa um að það hefur skilað sér.“ – Finnst þér þú þá eiga meira í verkefninu en ella? „Já, alveg tvímælalaust. Ég hef verið mjög heppin með hlutverk á mínum ferli en þetta á alveg sér- stakan stað í hjartanu. Ég var að upplifa eitthvað alveg nýtt og sér- stakt.“ Mun höfða til breiðs hóps Systrabönd er að mestu um og unn- inn af konum. Lilja Nótt segir það í senn frábært og áhugavert en legg- ur samt áherslu á, að ekki sé um „kvennaþátt“ að ræða í þeim skiln- ingi að hann sé bara fyrir konur. „Það myndi ekki skipta nokkru máli fyrir glæpinn, söguna eða grunn- plottið ef karakterunum yrði breytt í karla. Ég held hins vegar að það sé meira spennandi að hafa þetta konur enda erum við ekki eins vön að sjá þær í þessum aðstæðum. Konur eru gjarnan hafðar opnari og tilfinninga- lega þroskaðri en karlar í sögum sem þessari.“ Lilja Nótt er ekki í vafa um að Systrabönd muni höfða til breiðs hóps áhorfenda, kvenna og karla. „Áhorfendur koma til með að spyrja sig inn í hvaða hlutverk þeir passi. Sem betur fer lenda fæst okkar í að- stæðum sem þessum en margir munu eigi að síður eflaust spyrja sig hvað þeir myndu gera í þessum sporum. En höfum hugfast að eitt er að halda hvað við myndum gera og annað hvað við svo gerum í raun og veru ef til þess kemur. Þetta tvennt þarf alls ekki að fara saman.“ Lilja Nótt hefur óbifandi trú á Systraböndum. „Ég get ekki útskýrt það en ég hef mjög góða tilfinningu fyrir þessum þætti. Við lögðum hjarta og sál í verkefnið og Silja er alveg mögnuð manneskja; fluglæs á tilfinningalegan þroska fólks. Fyrir vikið eru Systrabönd laus við alla melódramatík sem auðvelt hefði ver- ið að detta í með sögu af þessu tagi. Ef til vill er það hámark sjálfsdýrk- unarinnar að geta ekki beðið eftir þætti með sjálfum sér en þannig er það nú samt,“ segir hún hlæjandi. Lilja Nótt Þórarins- dóttir í hlutverki sínu í Systraböndum. Ljósmynd/Lilja Jónsdóttir 28.3. 2021 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29 BIÐ Kempubandið Hollywood Vampires hefur aflýst tónleikaferð sinni um Evrópu, sem fyrirhuguð var í sumar, vegna óvissunnar sem enn ríkir vegna kórónuveirufarald- ursins. Vampírurnar eru af dýrari gerðinni en bandið skipa Joe Perry úr Aerosmith, Alice Cooper og leik- arinn Johnny Depp. „Takk fyrir að sýna þessu skilning og við munum snúa aftur og rokka fyrir ykkur um leið og allt verður komið í eðlilegt horf í heiminum á ný,“ segir í til- kynningu frá þremenningunum. Vampírur fresta Evróputúr Johnny Depp er einn vampíringa. AFP Skáldsagan Jack eftir Marilynne Robinson er komin út í þýðingu Karls Sigurbjörnssonar. Jack er týndur sonur prestsins Johns Ames í smábænum Gilead. Ástir takast með honum og kennaranum Dellu Mil- es sem er líka prestsdóttir. En fagurt samband þeirra er þyrnum stráð. Della er svört á hörund og aðskilnaður kynþáttanna er þá enn ríkjandi víða í Bandaríkjunum. „Mögnuð skáldsaga um ást og átök, trú og siðgæði, illsku og hugrekki, vanmátt og von,“ segir í kynn- ingu útgefanda, Uglu. Bækur Robinson hafa hlotið öll helstu bók- menntaverðlaun Bandaríkjanna og verið þýddar á 35 tungumál. FAGURT SAMBAND EN ÞYRNUM STRÁÐ BÓKSALA 17.-23. MARS Listinn er tekinn saman af Eymundsson 1 Það hófst með leyndarmáli Jill Mansell 2 Herbergi í öðrum heimi María Elísabet Bragadóttir 3 Eldarnir Sigríður Hagalín Björnsdóttir 4 Heimferðarsett Prjónafjelagið 5 Andlit á glugga Ýmsir 6 Snerting Ólafur Jóhann Ólafsson 7 Í leyndri gröf Viveca Sten 8 Aprílsólarkuldi Elísabet Jökulsdóttir 9 Fyrsta málið Angela Marsons 10 Spegilmennið Lars Kepler 1 Pétur tjaldar Sven Nordqvist 2 Martröð í Hafnarfirði Rakel Þórhallsdóttir 3 Litlir lærdómshestar – stafir Elízabeth Golding 4 Risasyrpa – botnlaus byggingarvinna Walt Disney 5 Kíkjum í dýragarðinn Anna Milbourne 6 Hvar er Skellur – leitum og finnum Walt Disney 7 Lára fer í leikhús Birgitta Haukdal 8 Blokkin á heimsenda Arndís Þórarinsdóttir /Hulda Sigrún Bjarnadóttir 9 Orri óstöðvandi: Bókin hennar Möggu Messi Bjarni Fritzson 10 Sóley og töfrasverðið Eygló Jónsdóttir Allar bækur Barnabækur Á náttborðinu liggja þrjár bækur: Karamazovbræðurnir eftir Fjodor Dostojevskíj, Sorgargondóll eftir Tómas Tranströmer og Faire l’Amour eftir Jean- Philippe Toussaint. Þær tvær fyrr- nefndu fékk ég sendar frá Íslandi og reyndust báðar vera í þýðingu Ingi- bjargar Haralds- dóttur. Hún er í mínum huga mikill meistari. Sorgargondól las ég fyrir nokkrum árum í þýðingu Njarðar P. Njarðvík og það er undarleg tilfinning að lesa hálfgleymt ljóð í nýrri þýðingu. Báð- ar þýðingar eru góðar. Þriðja bókin er belgísk skáldsaga frá 2003 um samband sögumanns og konu að nafni Marie Madeleine Marguerite de Montalte. Sagan gerist á sólarhring í Tókíó. Þetta er fyrsta bókin í fjórleik, höfund- urinn hlaut Medici-verðlaunin 2005 fyrir aðra bókina. Kunningi lánaði mér hana, mér finnst hún góð. Nýlega las ég Yosoy: Af líkams- listum og hugarvíli í hryllingsleik- húsinu við Álafoss frá 2005 eftir Guðrúnu Evu Mín- ervudóttur. Mjög skemmtileg bók. Ýmsir aðilar koma saman af ýmsum ástæðum og setja upp hryllingsleik. Margar áhugaverð- ar persónur. Bókin rímar vel við nýrri verk Guðrúnar, sér í lagi Aðferðir til að lifa af frá 2019. Bókin sem ég bíð eftir er fram- haldið af Örlagaborginni – Brota- brot úr afrekasögu frjálshyggj- unnar – fyrri hluti, eftir Einar Má Jónsson. Hún kom út 2012, hafði mikil áhrif á mig og á mikið er- indi við samtímann. Mér skilst að Einar Már sé að vinna í framhaldinu og veit að ég er ekki einn um að bíða spenntur. GYLFI Þ. GUNNLAUGSSON ER AÐ LESA Hálfgleymt ljóð í nýrri þýðingu Gylfi Þ. Gunn- laugsson er stærðfræði- nemi við École normale supérieure í París. DUXIANA Reykjavik | Ármuli 10 | Reykjavik | +354 5 68 99 50 | www.duxiana.is GÆÐI OG ÞÆGINDI SÍÐAN 1926 DUX 6006 - SVÆÐISMEÐFERÐ Í örfáum einföldum skrefum geturðu sett upp rúmið þitt til að mæta þörfum þínum.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.