Fréttablaðið - 20.08.2021, Blaðsíða 4
Kennurum sem eiga að
starfa þarna hryllir við
þeirri tilhugsun að
vera með 90 börn
þarna eins og til
stendur.
Agnar Freyr Helgason, fulltrúi í
skólaráði Fossvogsskóla.
Unnur Björnsdóttir úr stjórn
Foreldrafélags Fossvogsskóla
segir hverfisbúa sársvekkta
með að framkvæmdir við
skólann hafi legið niðri í
sumar og senda þurfi nem
endur út um hvippinn og
hvappinn.
gar@frettabladid.is
SKÓLAMÁL „Þetta er bara klúður
ofan á klúður,“ segir Unnur Björns
dóttir, stjórnarmaður í Foreldra
félagi Fossvogsskóla, um ástand
mála þar.
Mikil reiði er meðal foreldra
barna í Fossvogsskóla því enn er
ekki hægt að hefja kennslu í skóla
byggingunni eftir áralanga viður
eign borgaryfirvalda við myglu sem
leikur húsnæðið grátt. Er kennsla
hefst verður aðeins yngsti árgangur
inn á skólalóðinni og hefur nám sitt
í færanlegum kennslustofum. Börn
in í öðrum, þriðja og fjórða bekk fá
kennslu í kjallara íþróttahúss Vík
ings og elstu tveimur árgöngunum
er áfram ekið í Korpuskóla.
Unnur á eitt barn í Fossvogsskóla
og annað sem lauk þar námi í vor.
Þriðja barn Unnar er á leikskól
anum Kvistaborg sem er nú lokuð
vegna framkvæmda til að vinna bug
á myglu og börnin sem þar eru fá í
staðinn inni í húsnæði í Safamýri.
„Við vitum ekkert um þetta hús
næði í Safamýri. Það sorglegasta er
að það er ekki búið að lyfta hamri
á hvorugum staðnum. Það er bara
búið að vera að henda rusli,“ segir
Unnur sem býr steinsnar frá bæði
Kvistaborg og Fossvogsskóla.
„Það hefur ekki verið nein hreyf
ing. Það hafa verið tveir menn að
henda rusli við Fossvogsskóla í allt
sumar. Það tók átta vikur að fjar
lægja asbest. Það tók svo langan
tíma af því að þau voru svo sein að
sækja um leyfi,“ segir Unnur.
Stöðuna segir Unnur afleita fyrir
fólk sem sé vant því að ganga með
börn sín í skólann eða leikskólann.
„Þetta er einfaldlega meiri háttar
rask á daglegri rútínu fyrir fólk með
börn. Þetta er að hafa áhrif á fjölda
vinnustaða,“ bendir Unnur á og
gagnrýnir hægaganginn harðlega.
„Það er það sem mér svíður mest.
Börnin mín fengu hausverk en þau
urðu líka bílveik af því að keyra í
rútu upp í Korpuskóla. Ég er sam
mála því að auðvitað eigum við
ekki að hafa skemmt húsnæði en
lausnirnar sem eru í boði eru ekki
að bæta neitt. Það þarf að leita
almennilegra lausna. Kínverjar gátu
byggt spítala á tíu dögum,“ minnir
Unnur á.
Þá segir Unnur að svo virðist sem
enginn raunverulegur vilji sé til að
bæta ástandið. Það endurspeglist í
því að lausnin eigi að vera að senda
þrjá árganga af börnum ofan í
gluggalausan kjallara.
Unnur segir eitt barn sitt „sloppið
úr Fossvogsskóla“ og sé „sem betur
fer“ að fara í Réttarholtsskóla. Þar
hafi að vísu komið upp mygla en
tekið hafi verið á því af festu.
„Í Réttó hafa framkvæmdir verið
í gangi í allt sumar. Þar hafa verið
vörubílar á kvöldin og allt að gerast.
Þau fengu færanlega kennslustofu
sem verður tilbúin í október, það er
komið plan frá skólastjóranum og
þetta verður í lagi,“ lýsir Unnur.
Engin svör fengust frá Reykjavík
urborg í gær um Fossvogsskóla. n
Gengur hægt í Fossvogi miðað við að
spítali var reistur í Kína á tíu dögum
Foreldrar nem-
enda við Foss-
vogsskóla hitt-
ust við skólann
í gær áður en
skólaráð hittist
á fundi sem
boðaður var
með stuttum
fyrirvara.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ÓTTAR
Það sorglegasta er að
það er ekki búið að
lyfta hamri á hvor-
ugum staðnum.
Unnur Björns-
dóttir,
stjórnarmaður
í Foreldrafélagi
Fossvogsskóla.
AFGREIÐSLUTÍMI
Mán.–fös. 10–18 | Lau. 11–16
www.betrabak.is
HÄSTENS VERSLUN
Faxafeni 5, Reykjavík
588 8477
AFGREIÐSLUTÍMI
Mán.–fös. 1–18 | Lau. 1–16
www.betrabak.is
Komdu til okkar og prófaðu einstök
gæði Hästens rúmanna.
Starfsfólk okkar er tilbúið að aðstoða
þig og veita frekari upplýsingar.
VERTU VAKANDI Í
FYRSTA SKIPTI
Á ÆVINNI
hjorvaro@frettabladid.is
STJÓRNMÁL Forseti Íslands, Guðni
Th. Jóhannesson, og Eliza Reid for
setafrú áttu í gær fund með Friðriki
krónprins og Mary krónprinsessu
í höllinni Amalienborg í Kaup
mannahöfn.
Forsetahjónin sækja um þessar
mundir World Pride þar í borg en
Mary krónprinsessa er verndari
viðburðarins.
Forseti Íslands f lutti setningar
ræðu á alþjóðaráðstefnu um
mannréttindi í Øksnehallen í Kaup
mannahöfn í gær.
Guðni heldur svo framsöguræðu
á Þjóðþinginu danska á alþjóðleg
um viðburði, „Interparliamentary
Plenary Assembly“ í dag. Búist er
við því að rúmlega 200 stjórnmála
menn frá 53 löndum verði viðstadd
ir viðburðinn.
Eliza mun síðan halda ávarp á
ráðstefnunni „Refugees, Borders
and Immigration“ í Málmey í Sví
þjóð í dag þar sem sjónum verður
beint að stöðu hinsegin flóttafólks
og hælisleitenda.
Auk þess sækja forsetahjónin
Jónshús heim í ferðinni og hitta þar
Íslendinga búsetta í Danmörku. n
Forsetahjónin
fluttu framsögu
Forsetahjónin í höllinni í gær.
einarthor@frettabladid.is
SKÓLAMÁL „Fundinum lyktaði í
raun og veru með því að bæði for
eldrar og starfsfólk töldu ekki
boðlegt að hefja nám í tengibygg
ingunni hjá Víkingi og að Reykja
víkurborg yrði að finna aðra lausn
fyrir skólastarfið,“ segir Agnar Freyr
Helgason, fulltrúi í skólaráði Foss
vogsskóla.
Skólaráðið og borgaryfirvöld
komu saman til fundar seinni
partinn í gær til að ræða þá stöðu
sem upp er komin í skólanum.
Eins og Fréttablaðið hefur greint
frá á að koma börnum í 2. til 4.
bekk fyrir í kjallara í íþróttahúsi
Víkings í Víkinni þar til færanlegar
kennslustofur koma til landsins.
Foreldrar telja húsnæðið óboðlegt
sem kennsluhúsnæði og krefjast
þess að önnur lausn verði fundin.
Fréttablaðið ræddi við Alex
öndru Briem, varaformann skóla
og frístundaráðs, og sagðist hún
ekki vita annað en að aðstaðan í
íþróttahúsinu væri fín. Þá væri um
tímabundna ráðstöfun að ræða og
áætlanir geri ráð fyrir að færanlegu
kennslustofurnar verði komnar í
gagnið eftir þrjár vikur.
Aðspurður segir Agnar Freyr að
aðstaðan í kjallaranum sé óboðleg.
„Í fyrsta lagi er þetta gangur og þetta
er ekki rými sem hentar til kennslu.
Kennurum sem eiga að starfa þarna
hryllir við þeirri tilhugsun að vera
með 90 börn þarna eins og til
stendur.“
Agnar segir að foreldrar taki
því með fyrirvara að færanlegu
kennslustofurnar verði komnar í
gagnið eftir þrjár vikur. „Af gefinni
reynslu þá þarf maður að taka slík
um tímasetningum með fyrirvara
þannig að þetta gæti orðið lengri
tími.“
Aðspurður hvort hann telji lík
legt að borgin finni lausn á mál
inu á næstu dögum, segir Agnar að
borgin sé búin að mála sig út í horn
og möguleg úrræði komi of seint.
„Það er lítill tími til stefnu en það
er verið að reyna að skoða aðra val
kosti að því er ég best veit.“ n
Óboðlegt að hefja starfið í tengibyggingu Víkings
4 Fréttir 20. ágúst 2021 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ