Fréttablaðið - 29.07.2021, Page 1
f r e t t a b l a d i d . i sf r e t t a b l a d i d . i s
1 4 7 . T Ö L U B L A Ð 2 1 . Á R G A N G U R F I M M T U D A G U R 2 9 . J Ú L Í 2 0 2 1
Þrettán prósent starfsmanna
Menntamálastofnunar segjast
hafa orðið fyrir einelti í starfi.
Meirihluti starfsfólks treystir
hvorki forstjóra né yfirstjórn.
thorvaldur@frettabladid.is
M E N NTA M ÁL Þrett án prósent
starfsmanna Menntamálastofn-
unar (MMS) segjast hafa orðið fyrir
einelti í starfi og 25 prósent starfs-
manna segjast hafa orðið vitni að
því að aðrir starfsmenn hafi orðið
fyrir einelti á síðustu tólf mánuðum.
Þetta eru niðurstöður könnunar
á vegum mennta- og menningar-
málaráðuneytisins í vor.
Í sömu könnun kemur fram að 61
prósent starfsmanna stofnunarinn-
ar ber ekki traust til forstjóra MMS,
Arnórs Guðmundssonar, og 60 pró-
sent starfsmanna bera ekki traust til
yfirstjórnar stofnunarinnar. Svar-
hlutfall starfsmanna var 98 prósent.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins hafa þrír starfsmenn sagt
upp vegna þess sem þeir lýsa sem
stjór nunar vanda, stef nuleysi,
henti leika stefnu, skorti á yfirsýn
yfir verkefni og fjármál og eineltis-
tilburðum forstjórans.
Einn starfsmaður, sem vill ekki
koma fram undir nafni, segir starfs-
menn vinna undir ógnarstjórnun og
þöggunarmenningu sem birtist til
dæmis í hótunum um brottrekstur. Í
viðhorfskönnun menntamálaráðu-
neytisins lýsa sumir starfsmenn
starfsanda sem þungum, þeir séu
hræddir um störf sín og þori ekki
að tjá skoðanir sínar.
„Fólk er hrætt við að verða refsað,
sett út í kuldann og jafnvel sagt upp
ef það vill rökræða málin,“ segir í
ummælum starfsmanna.
Einn starfsmaður sem sagt hefur
upp störfum gengur svo langt að
bera starfsandann hjá MMS saman
við stjórnunartilburði í alræðis-
ríkjum. Sorglegt sé að þurfa að flýja
vinnustað til margra ára.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
eineltismál koma upp hjá Mennta-
málastofnun. Í niðurstöðum og
úrbótatillögum skýrslu ráðgjafar-
fyrirtækis um eineltismál, sem gerð
var í fyrra að beiðni menntamála-
ráðuneytisins, var stjórnun MMS
metin áhættuþáttur fyrir félagslega
og andlega heilsu á vinnustaðnum
og lagt til að verkferlar í eineltis-
málum yrðu yfirfarnir.
Uppsöfnuð óánægja meðal starfs-
manna MMS gagnvart yfirstjórn
beinist einna helst að forstjóra
stofnunarinnar. Hafa starfsmenn
ítrekað óskað eftir umbótum. Ráðu-
neytið hefur nú ráðið mannauðs-
fyrirtækið Auðnast til að vinna
umbótaáætlun og gera heilsufars-
mat á starfsmönnum MMS og mun
sú vinna hefjast að loknu sumarfríi.
Arnór Guðmundsson, forstjóri
MMS, staðfestir að málið sé í ferli
í samstarfi við ráðuneytið en vill
ekki tjá sig nánar um það að svo
stöddu.
„Það verður unnið með ráðgjöf-
um við að fara í gegnum þessi atriði
og ná fram sjónarmiðum starfsfólks
og vinna úr þessu,“ segir Arnór. n
Starfsmenn Menntamálastofnunar
treysta hvorki forstjóra né yfirstjórn
Arnór Guð-
mundsson, for-
stjóri Mennta-
málastofnunar.
Mmm ...
Grillaðir ávextir
alveg grillað góðir!
COVID-19 Valtýr Stefánsson Thors
barnasmitsjúkdómalæknir telur
ótímabært að bólusetja yngri börn
gegn Covid-19.
„Ef við horfum á faraldurinn hér á
Íslandi þá hafa núna um og yfir átta
hundruð börn smitast af Covid og
ekkert þeirra veikst alvarlega,“ segir
Valtýr.
Þrátt fyrir að ekkert gefi til kynna
hingað til að bóluefni virki illa á
börn eða valdi aukaverkunum sem
ekki hafa sést hjá fullorðnum telur
hann farsælla að bíða nokkra mán-
uði eftir meiri gögnum. „Ef við ætlum
að bólusetja heilbrigð börn þá verður
þetta að vera öruggt.“ SJÁ SÍÐU 4
Telur ekki liggja á
að bólusetja börn
Valtýr Stefánsson
Thors barnasmit-
sjúkdómalæknir.
Íslendingar eru ekki vanir því að láta sólina fara til spillis þegar hún sýnir sig. Reykvíkingar hafa fengið að þola grámyglulegt veður á meðan aðrir Íslendingar njóta sumarsins en í gær brutust sólargeisl-
arnir loks í gegnum skýjahuluna. Engan þarf því að undra að sólþyrstir Reykvíkingar hafi flykkst í sólbað í Nauthólsvík. Veðurspár benda til þess að nokkuð verði skýjað á næstu dögum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI