Fréttablaðið - 29.07.2021, Blaðsíða 11
Þorsteinn
Pálsson
n Af Kögunarhóli
Á föstudag í síðustu viku sendi rík-
isstjórnin frá sér þrenn skilaboð:
1. Að ráði sóttvarnalæknis
tilkynnti hún nýjar sóttvarnaað-
gerðir mánuði eftir að lýst var yfir
sigri á kórónuveirunni og að Ísland
stæði fremst í heiminum.
2. Fyrir miðjan ágúst yrði hún
tilbúin með plan til að eyða allri
óvissu og með framtíðarsýn um
það hvernig við vildum hafa bólu-
sett Ísland.
3. Heilbrigðisráðherra sagði
að ekki mætti eyðileggja sam-
stöðu þjóðarinnar með pólitískri
umræðu.
Nýmælið í þessu er fyrirheit um
stóra planið með framtíðarsýn til
að eyða allri óvissu eftir tvær vikur.
Óvissuvandinn
Helsti pólitíski óvissuvandinn
hefur frá byrjun faraldursins falist
í því að stærsti stjórnarflokkurinn
hefur sagt eitt við kjósendur en
samþykkt annað við ríkisstjórnar-
borðið.
Fyrst voru það óbreyttir þing-
menn Sjálfstæðisflokksins, sem
töluðu gegn tillögum sóttvarna-
læknis. Þeir töluðu einnig gegn
því að Ísland tryggði sér bóluefni
á grundvelli aðildar að innri
markaði Evrópusambandsins.
Þegar að því kom að taka þurfti
afstöðu til nýrra aðgerða, mánuði
eftir að ríkisstjórnin hafði lýst
yfir fullum sigri, sagði dómsmála-
ráðherra að þær væru óþarfar, en
flokkurinn myndi samt sam-
þykkja þær.
Það er já, já og nei, nei pólitík
af þessu tagi sem veldur óvissu
og grefur undan trausti á þeim
ákvörðunum, sem teknar eru. Og
hún gerir að engu þá takmörkuðu
möguleika á fyrirsjáanleika, sem
atvinnulífið þarfnast.
Hætt er við að ný skýrsla um
framtíðarsýn komi að litlu haldi
meðan þessi pólitík er jafn áhrifa-
rík og raun ber vitni.
Andrými
Á fimmtudagsmorgni fyrir réttri
viku sagði forsætisráðherra í þessu
blaði að „ekki væri hægt að draga
sömu aðgerðir upp úr poka.“ Hún
bætti við að ríkisstjórnin og vís-
indamenn yrðu að fá andrými til
að meta stöðuna.
Forsætisráðherra skýrði nauð-
syn á andrými með þeirri hæv-
ersku athugasemd að það fylgdi
því að vera fremstur í röðinni að
enginn annar hefði forskrift fyrir
okkur til að fara eftir.
Sóttvarnalæknir sá hlutina í
öðru ljósi. Síðar þennan sama dag
sagði hann: „Við vitum alveg hvað
það er sem þarf að gera.“
Og til að strá salti í sárið bætti
hann við: „Það er eins og menn á
Íslandi telji að það sé nóg að hefta
útbreiðslu hér og þá sé Covid lokið.
Það er bara ekki þannig.“
Daginn eftir dró forsætisráð-
herra sömu gömlu aðgerðirnar upp
úr poka austur á Egilsstöðum.
Á hvaða forsendum?
Þannig blasir við: Ofan á já, já og
nei, nei pólitík stærsta stjórnar-
flokksins bætist að forsætisráð-
herra virðast sjá stöðu Íslands í
öðru ljósi en sóttvarnalæknir.
Óhjákvæmilega vaknar þessi
spurning: Á hvaða forsendum
ætlar ríkisstjórnin að skrifa stóra
Beðið eftir plani
planið um framtíðarsýnina?
Er það sú sýn forsætisráðherra
að við þurfum að búa til nýja for-
skrift fyrir heiminn? Eða er það
alþjóðleg vísindaleg þekking og
íslensk reynsla sóttvarnalæknis?
Eða er það já, já og nei, nei pólitík
stærsta ríkisstjórnarflokksins?
Hér skal ekki dregið úr mikilvægi
þess að koma með plan. En ríkis-
stjórnin þarf að ræða forsendurnar
við þjóðina. Meðan hún getur það
ekki er skiljanlegt að heilbrigðisráð-
herra mælist til þess að lokað verði
fyrir pólitíska umræðu.
Víðara samhengi
Það er samhengi milli veiru og
verðmætasköpunar. Planið, sem
beðið er eftir, kallar því á fram-
tíðarsýn frá víðu sjónarhorni:
1. Eyða þarf þeirri óvissu, sem
já, já og nei, nei pólitíkin veldur
atvinnulífi og skólum.
2. Gera þarf Landspítalanum
kleift að takast á við faraldur af
þessu tagi til lengri tíma í stað við-
varandi neyðarástands.
3. Gefa þarf öllu atvinnulífinu
skýra framtíðarsýn á möguleika til
aukinnar verðmætasköpunar með
stöðugum gjaldmiðli og án gjald-
eyrishafta.
4. Loka þarf fimmtíu milljarða
króna gati í fjármálaáætlun ríkis-
stjórnarinnar.
5. Svara þarf betur hvernig á
að ná markmiðum í loftslags-
málum.
Úrlausnarefnin kalla á skýra sýn.
Markmiðið er að draga úr óvissu
vegna veirunnar, byggja traustari
undirstöður fyrir sköpun verð-
mæta og tryggja að sameiginlegur
sjóður landsmanna verði sjálfbær
á ný.
Það er sannarlega skortur á
plani. n
fjölskylduna“
„Ég kem með
Á ferdalag.is getur þú fundið allt það helsta
um ævintýrin sem Ísland hefur upp á að bjóða.
Komdu með í ferðalag!
FIMMTUDAGUR 29. júlí 2021 Skoðun 11FRÉTTABLAÐIÐ