Fréttablaðið - 29.07.2021, Síða 24

Fréttablaðið - 29.07.2021, Síða 24
Rétt er að minna á að nýjabrum og næm tilfinning fyrir því hvernig veröldin veltist er ekki kynslóðabund- in. Brautirnar eru fáanlegar með mjúklokun Mikið úrval rennihurðabrauta frá Þýsk gæðavara. Skútuvogi 1h - Sími 585 8900 www.jarngler.is MYNDLIST Iðavöllur: Íslensk myndlist á 21. öld Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhúsið Aðalsteinn Ingólfsson Það er alltaf varasamt að spá, sér­ staklega um framtíðina, er haft eftir þekktum spéfugli. Samt hafa söfn og sýningarstjórar ástundað það um árabil, af misjafnlega mikilli fyrirhyggju. Við könnumst öll við myndlistarsýningar þar sem sam­ tíminn er krufinn undir ýmsum formerkjum með allrahanda „fram­ sýnum“ verkum. Slíkar sýningar eru í eðli sínu meinlausir og oft áhuga­ verðir samkvæmisleikir, svo fremi sem skipuleggjendur taka sjálfa sig ekki of alvarlega. Þær geta raunar verið kærkomið tækifæri fyrir lítt þekkt hæfileikafólk og dregið fram í dagsljósið brýn viðhorf sem legið hafa í láginni. En þessar sýningar eru ekki „skráning listasögunnar“, eins og sumir aðstandendur þeirra virðast halda; sú saga verður ein­ ungis skráð af listfræðingum fjar­ lægrar framtíðar. Í kjölfar síðari heimsstyrjaldar var Bernard Buffet lýstur helsta vonarstjarna evrópskr­ ar samtímalistar; í dag er leitun að fólki sem kann á honum nokkur deili. Það er ýmislegt sem samsýning Listasafns Reykjavíkur, Iðavöllur, hefur með sér. Heiti hennar er flott, henni fylgir vönduð skrá og verkin á sýningunni gera sig (f lest) vel í því rými sem þau fá. Í stuttu máli er þarna um að ræða samsýningu fjórtán ungra myndlistarmanna, átta kvenna og sex karla – sem líkast til er lýsandi fyrir kynjahlutföllin í íslenskri samtímamyndlist akkúrat nú. Yfirlýst markmið sýningarstjór­ anna þriggja (Aldísar Snorradóttur, Markúsar Þórs Andréssonar og Ólafar Kristínar Sigurðardóttur) er að draga saman verk eftir „milli­ bilskynslóð“ íslenskra myndlistar­ manna, kynslóðina sem man eftir „heiminum án internets og snjall­ síma“, en tekst nú á við „aukinn hraða, meiri upplýsingaflæði, óljós­ ari landamæri, reikult kyngervi, breytt samskiptamynstur, nýja tækni“, um leið og hún man enn eftir því hvernig hlutirnir voru. „Þau upplifa endalok heimsins í vissum skilningi og leggja sitt af mörkum við nýtt upphaf,“ segir í kynningu. Af álitamálum Þetta eru stór orð, sömuleiðis sú staðhæfing að þátttakendur séu „leiðandi afl sinnar kynslóðar“. Rétt er að minna á að nýjabrum og næm tilfinning fyrir því hvernig veröldin veltist er ekki kynslóðabundin. Steinsnar frá Listasafni Reykjavíkur er til dæmis hálfsjötugur mynd­ listarmaður, Kjartan Ólason, að takast á við þennan hraða, óljósa og ógnvekjandi samtíma upp á hvern dag á vinnustofu sinni, sennilega af meiri einurð en nokkur þátttakenda á Iðavelli. Sem tengist því sem sérstaklega sótti á mig við endurtekna athugun á þessari sýningu; nefnilega hve fáir þátttakenda eru í raun að taka á því sem brunnið hefur á okkur á síðast­ liðnum árum, öllu því sem nefnt er hér að ofan, en einnig af leiddum fyrirbærum á borð við gervigreind, endalokum einkalífsins, kóvíð og náttúruvá á heimaslóðum. Þar sem finna má ávæning af slíkum álita­ málum í verkum þeirra, er það oft­ ast nær kirfilega samfléttað annars konar og einkalegri umfjöllun, eða þá að skavankar í sjálfri uppsetning­ unni drepa á dreif meginatriðum þess sem menn vilja sagt hafa. Dæmi um hið síðarnefnda er innsetning Bjarka Bragasonar, sem er sýnilega ætlað að benda á við­ kvæmt ástand vistkerfanna með samanburði á gömlu plöntusafni og vídeólúppu af jarðvegsúrgangi á safnhaugi; þar ber hið fyrrnefnda það síðarnefnda ofurliði í rýminu. Svipað misvægi – bæði hug­ mynda legs og uppsetningarlegs eðlis – skemmir sennilega fyrir Arn­ ari Ásgeirssyni, sem skeytir saman smágerðar lágmyndir af „lyfjaneyt­ endum“ og risastóra og afar hagan­ lega smíðaðri tilvísun í það sem við getum kallað „eftirlitsmenningu“. Einhvers konar tengingu vantar á milli þessara tveggja þátta. Og „Myrkraherbergi“ Rebeccu Erin Moran er tæpast nógu víðáttumik­ ið, ógnvekjandi og sexí til að vekja upp þær kenndir sem tengdar eru við slík afdrep í „alvörulöndunum“. Margbrotin merkingarsvið Í rauninni mundi stór hluti sýndra verka á þessum tiltekna „velli“ gera sig ágætlega í öðru samhengi, jafn­ vel undir merkjum hins einkalega og móderníska, og þá á ég ekki ein­ göngu við málarana tvo og vefar­ ann, Guðmund Thoroddsen, Styrmi Örn Guðmundsson og Örnu Óttars­ dóttur – sem öll eru framúrskarandi á sínum „eigin“ forsendum. Hildigunnur Birgisdóttir er síðan að leita merkingar í hinu lítilfjör­ lega og „ómerkilega“, efniviði sem hún tínir upp af götu sinni, rétt eins og dadaistar gerðu fyrir margt löngu. Hér má einnig spyrja sig hvað nákvæmlega verk Elínar Hansdótt­ ur gera fyrir „konseptið“ sem útlist­ að er í formála, þar sem þau koma rakleiðis úr tiltölulega afmarkaðri veröld hugmyndafræðilegs mín­ ímalisma, ganga mjög mikið út á afbyggingu rýmis. Sem er kannski ekki það sem okkur er efst í huga. En eru auðvitað ágæt fyrir sinn hatt. Stílhrein vídeóverk Doddu Magg­ ýjar eru síðan „einkalegri“ en flest annað á sýningunni og til þess fallin að leiða áhorfandann í innheima, fremur en að tengja hann við heim­ inn hið ytra. Sem er væntanlega það sem höfundar sýningar eru á hött­ um eftir. Innsetning Önnu Rúnar Tryggvadóttur af vélvæddum trjám er sömuleiðis nokkuð vel þekkt – og helst til augljóst – tilbrigði um þemað „náttúra og vélmenning“. Þrátt fyrir útskýringar í skrá er mér fyrirmunað að skilja hvað límbandsverk Arnars Alexanders Ámundasonar á gluggum safnsins og íslenskur torfbær á hjólum eftir Evu Ísleifsdóttur gera fyrir þau þemu sem hér eru undir. En þar er sjálfsagt um að kenna glámskyggni minni. Í mínum huga standa tveir þátt­ takenda aðallega undir þeim kröf­ um sem ámálgaðar eru í aðfara­ orðum sýningarinnar, Anna Júlía Friðbjörnsdóttir og Páll Haukur Björnsson. Hvorugt þeirra gefur sig út fyrir að vera sérstaklega aðgengi­ legt í myndlist sinni, en þegar verk þeirra eru brotin til mergjar, opnast okkur óvenjulega mörg, margbrotin og lagskipt merkingarsvið, sem í sameiningu segja okkur heilmikið um tilveru og mennsku, með sér­ stakri áherslu á núning mennsku og náttúru. Af þeim tveimur er Páll Haukur bæði verr í sveit settur rýmislega og torræðari. Á stundum er eins og hann teymi áhorfandann vísvitandi inn í heim þekkingar­ og skilningsleysis „þar sem ekkert merkir nokkuð“, eins og segir í sýn­ ingarskrá. Þar reynir, góðu heilli, á hyggjuvit áhorfandans. n Umbrot og tilfærslur Verk eftir Arnar Ásgeirsson vísar í eftirlitsmenninguna. Flæðarmál eftir Styrmi Örn Guðmundsson. kolbrunb@frettabladid.is Sýning Sævars Karls á Mokka verð­ ur opnuð í dag, 29. júlí, og stendur til 22. september. Á sýningunni eru glæný og nýleg kyrralífsmálverk unnin hér heima og í München þar sem Sævar Karl er með vinnustofu og dvelur hluta af árinu. Sævar Karl hefur stundað mynd­ listarnám við ýmsa listaháskóla hérlendis, í Þýskalandi og Austur­ ríki. Hann hefur sýnt víða um heim, meðal annars í Þýskalandi, Frakklandi, á Ítalíu og Englandi. „Mér finnst kyrralífsmyndir eiga vel við á Mokka,“ segir Sævar Karl. „Rýmið sjálft er eins og úr gamalli bíómynd.“ n Sævar Karl á Mokka Eitt af verkum Sævars Karls á sýningunni á Mokka. 16 Menning 29. júlí 2021 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐMENNING FRÉTTABLAÐIÐ 29. júlí 2021 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.