Fréttablaðið - 29.07.2021, Page 28

Fréttablaðið - 29.07.2021, Page 28
 Hryllingur á verðlaunapalli Titane (2021) Franski leikstjórinn og handritshöfundurinn Julia Ducournau kom, sá og sigraði sögulega á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Cannes fyrr í þessum mánuði þar sem hún varð önnur konan í sögu verðlaunanna til að hljóta Gullpálmann fyrir bestu myndina. Jane Campion braut þann glervegg 1993 með The Piano. Sigur Ducournau þykir einnig marka tímamót þar sem Titane er ekki allra og hefur þegar verið stimpluð „mest sjokkerandi mynd ársins 2021“. Hún gengur enda fram af fólki og heldur áhorfendum í stöðugri óvissu um hvaða ósköp muni eiga sér stað næst. Titane er lýst sem fallegri, myrkri og sjúkri fantasíu með í senn martraðarkenndri og prakkaralegri gusu kynlífs og ofbeldis sem flýtur áfram í krafti ægi- legs ljósaflóðs og dynjandi tónlistar. Greinilega bylgja sem má láta sig hlakka til að skelli á Íslands ströndum. toti@frettabladid.is kolbrunb@frettabladid.is Hryllingsmyndir eru eðlis síns og viðfangsefna vegna iðulega litnar hornauga. Vinsældir þeirra eru hins vegar það almennar að ekkert lát er á framleiðslu þeirra. Hrollvekjur hafa einnig ríka til- hneigingu til þess að rjúka upp í vinsældum þegar ógnir á borð við kjarnorkuvá og farsóttir vofa yfir. Fréttablaðið dustar hér rykið af nokkrum sígildum og ólíkum hryll- ingsmyndum sem allar eru og voru verðugar verðlauna. n The Innocents (1961) Leikstjórinn Jack Clayton teflir hér fram Deborah Kerr í hlutverki barnfóstru sem óttast að börnin sem hún gætir séu andsetin. Einstaklega fáguð hrollvekja þar sem tekst fullkomlega að skapa ógnvænlegt and- rúmsloft og um leið er á áhugaverðan hátt leikið með hugmyndina um að allt hið óhugnanlega sem gerist sé hugsanlega hugarburður barnfóstrunnar. Við kjósum hins vegar að trúa á draugana, enda er það svo miklu skemmtilegra. Invasion of the Body Snatchers (1956) Leikstjórinn Don Siegel, sem er þekktastur fyrir Dirty Harry, er í frábærla vænisjúkum ham í þessari fyrstu kvikmyndaaðlögun sögunnar The Body Snatchers eftir Jack Finney. Í bæ í Kaliforníu taka íbúar hver á fætur öðrum ógnvænlegum breytingum og verða sálarlausar útgáfur af sjálfum sér. Frábær og tímalaus hrollvekja sem hefur komist á lista yfir bestu kvik- myndir allra tíma. Mynd sem fær áhorfandann hvað eftir annað til að naga neglurnar. The Shining (1980) Leikstjórinn Stanley Kubrick tekur eina fyrstu og þekktustu sögu Stephens King tröllataki í The Shining þar sem rithöfundurinn Jack Torrence sest að með eigin- konu og syni á afskekktu hóteli, missir vitið og ógnar um leið lífi eiginkonu sinnar og sonar sem er skyggn. Jack Nicholson er á barmi þess að ofleika í hlutverki hins vit- skerta rithöfundar, en fyrir vikið er það hrollvekjandi skemmtun að fylgjast með honum. Danny Lloyd er síðan átakanlega umkomulaus í hlutverki hins unga sonar. Hvert óhugnanlega atriðið rekur annað í magnaðri kvikmynd þannig að hin viðkvæmu hljóta að grípa nokkrum sinnum fyrir augun, þeir harðgerðari fyllast sæluhrolli. The Birds (1963) Sígilt fjaðrafok meistara Alfreds Hitchcock er algjör- lega ómótstæðileg hrollvekja um fugla sem skyndi- lega byrja að ráðast á fólk. Hluti hrollsins felst í því að vita að þetta gæti mögulega gerst í raunveruleik- anum. Það er einfaldlega mjög auðvelt að tortryggja máva eftir að hafa horft á þessa snjöllu kvikmynd. The Exorcist (1973) William Friedkin braut alla múra siðvendni og góðra gilda í þessari tímamótamynd gerðri eftir einni áhrifamestu hryllingsbók síðustu aldar, The Exorcist eftir William Peter Blatty, um baráttu kaþólskra presta við að flæma illan anda úr líkama hinnar þrettán ára gömlu Reagan. Enginn sem sá myndina á sínum tíma varð alveg samur og hún eltir enn nýja sem gamla áhorfendur langt inn í svefninn. The Others (2001) Alejandro Amenábar töfrar fram mynd sem er full af dularfullum persónum og afar drungalegu andrúmslofti. Nicole Kidman er móðirin sem verndar börn sín í húsi þar sem draugagangur virðist ríkja. Leikstjórinn var tilnefndur til BAFTA- verðlauna fyrir besta handrit og Kidman var tilnefnd til Golden Globe og BAFTA fyrir leik sinn í hrollvekju sem sannarlega hittir í mark. The Sixth Sense (1999) Leikstjórinn M. Night Shyamalan og hinn ungi Haley Joel Osment í aðalhlutverkinu slógu báðir hressi- lega í gegn með þessari draugalegu mynd sinni um ungan dreng sem er þjakaður af því að vera stöðugt með framliðna fyrir augunum. Bruce Willis sýndi á sér mýkri hlið sem barnasálfræðingurinn sem reynir að hjálpa drengnum að glíma við drauga sína en á heldur betur eftir að fá á baukinn sjálfur. MYNDIR/SKJÁSKOT Hrollvekjur þykja yfirleitt ekki merkilegur pappír og fá sjaldan uppreist æru á fínum verðlaunahátíðum. Slíkt kemur þó fyrir. The Silence of the Lambs fékk Óskarinn sem besta myndin og hryll- ingsmyndin Titane eftir Julia Ducournau hlaut nýlega Gull- pálmann í Cannes. VR býður upp á opið hús í Árbæjarsafni um Verslunarmannahelgina Hermes: þar sem saga VR hefst Þann 27. janúar árið 1891 var Verzlunarmannafélag Reykjavíkur, VR, stofnað á fundi á veitingahúsinu Hermes við Lækjargötu, en húsið stendur nú á Árbæjarsafni. Félagið fagnar því 130 ára afmæli sínu í ár. Af því tilefni býður VR upp á opið hús í Árbæjarsafni um Verslunar- mannahelgina, frá fimmtudegi til mánudags. VR hvetur öll áhugasöm til að sækja safnið heim og koma við í húsinu þar sem saga VR hófst. 20 Lífið 29. júlí 2021 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 29. júlí 2021 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.