Fréttablaðið - 29.07.2021, Síða 30
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is,
Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson
jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056:
Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
Á dögunum gaf tónlistar-
maðurinn Snorri Helgason út
lagið Haustið '97 af væntan-
legri plötu sinni Víðihlíð.
Hann náði að nýta tímann
vel milli bylgna í að spila og
opnaði djassstaðinn Skugga-
baldur fyrr í mánuðinum.
steingerdur@frettabladid.is
Nú á dögunum gaf tónlistarmaður-
inn ástsæli Snorri Helgason út lagið
Haustið '97 sem er uppfullt af gleði
og nostalgíu. Hann segir það óð til
unglingsára sinna og nokkurs konar
sjálfspepp um að elta drauma sína
og treysta á eigið innsæi.
„Haustið '97 var ég reyndar bara
13 ára en lagið er meira byggt á
minningum og fílingnum þegar ég
var svona 15 til 16 ára um aldamót-
in. Unglingafyllerí í Öskjuhlíðinni,
fyrstu sleikirnir og sjoppuhangs og
svoleiðis. Mig vantaði bara eitthvað
sem rímaði við „stöð“ og þess vegna
varð sögusvið lagsins að vera '97,“
segir hann og hlær.
Lagið er af væntanlegri EP-plötu
sem mun bera heitið Víðihlíð og
kemur út í ágúst.
„Þetta er alveg korter í þemaplötu
þar sem lögin fjögur sem hún hefur
að geyma eru öll svona nost algísk
popplög. Víðihlíð er einmitt nafnið
á götunni sem ég ólst upp við. Við
tókum hana upp að mestu á einu
kvöldi í desember í stúdíóinu hjá
Guðmundi Óskari úti á Granda og
erum búnir að vera að föndra við
hana síðan.
Við fengum svo hana Matthildi
Haf liðadóttur, sem er geggjuð
söngkona, til að koma og syngja
með mér í þessu og hún negldi
alveg þennan næntís poppdívu-
söngstíl sem við vorum að leita að,“
útskýrir Snorri.
Á alltaf góðan lager
Myndir þú segja að ástandið undan-
farið ár hafi á einhvern hátt litað
tónsmíðar þínar?
„Ekki beint, nei. Ég er bara búinn
að hafa dálítið meiri tíma til að
semja og pæla og fá hugmyndir
þannig að ég sit á fullt af „stöffi“. En
það er svo sem ekkert nýtt. Ég á allt-
af dágóðan slatta af lögum á lager,“
segir Snorri.
Má kannski tengja nostalgíu-
þrána í Haustinu '97 á einhvern hátt
við að sakna einfaldari tíma?
„Já og nei. Þetta voru einfaldari
tímar en þetta voru líka miklu
f lóknari tímar. Það er f lókið að
vera unglingur með stórar tilfinn-
ingar en kunna ekki að beina þeim
í réttan farveg.“
Lagið er nokkuð poppað miðað
við annað efni frá Snorra.
„Ég held að ég þori að fullyrða að
ég hafi ekki dýft mér svona hressi-
lega ofan í popplaugina síðan í
Sprengjuhöllinni í denn. Það vottar
ekki fyrir skugga í þessu lagi. Bara
sól og stemming.“
Nú þegar smitum fer fjölgandi og
fólk er aftur farið að halda sig meira
til hlés er líklega kjörinn tími til að
gefa út tónlist í þessum stíl til að
lyfta andanum.
„Ég held það. Ég held að allir hafi
gott af því að hlusta á þetta lag. Taka
þetta einu sinni á dag eins og lýsi.“
Þjóðlög og grín
Snorri og eiginkona hans Saga Garð-
arsdóttir náðu að nýta tímann ágæt-
lega milli bylgna.
„Við skutumst út á land núna rétt
fyrir síðustu skeiningu. Við fórum
á Patreksfjörð og vorum eina nótt
í Flatey á leiðinni heim. Á Patró
náðum við að gera svona „double-
whammy“-gigg; ég spilaði mitt
þunga þjóðlagasett og svo var Saga
með uppistand eftir hlé. Það virkar
furðu vel, þetta kombó. Þyngsli og
grín eru nefnilega tvær hliðar á
sama peningnum, höfum við kom-
ist að.“
Nú opnaðir þú ásamt f leirum
djassstaðinn Skuggabaldur, hvernig
hafa viðtökurnar verið?
„Viðtökurnar hafa verið svaka-
lega góðar. Við vissum ekki alveg
hvað við værum að fara út í en svo
sáum við strax þegar við opnuðum
og hversu vel fólk tók í þetta að við
yrðum að vera með „live“ músík á
hverju kvöldi, sem við höfum verið
með og það hefur gengið þrusuvel.“
Er eitthvað f leira á döfinni hjá
þér?
„Bara gleði og meiri músík.“
Haustið '97 er hægt að nálgast á
öllum helstu streymisveitum. n
Nostalgískur óður
til unglingsáranna
Snorri kaus að tímasetja sögusvið lagsins árið '97 því það rímaði best við orðið stöð. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓTTAR
Þyngsli og grín eru
nefnilega tvær hliðar á
sama peningnum,
höfum við komist að.
Þetta voru einfaldari
tímar en þetta voru
líka miklu flóknari
tímar. Það er flókið að
vera unglingur með
stórar tilfinningar en
kunna ekki að beina
þeim í réttan farveg.
22 Lífið 29. júlí 2021 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
990
1.590
1.990
8” Pizza af matseðli
og ½ ltr gos
12” Pizza af matseðli
og 2x ½ ltr gos
16” Pizza af matseðli
og 2 ltr gos
Hádegis
tilboð
2
1
3
Fjarðargata 11 · Dalvegur 32b
spadinn.is
Í boði alla daga frá kl. 11:00–16:00