Fréttablaðið - 29.07.2021, Page 32
RITSTJÓRN
ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD
auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN
Torg ehf.
DREIFING Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is 550 5000
Stefáns Ingvars
Vigfússonar
n Bakþankar
Mér líður aldrei vel í Kringl-
unni, ekki illa en ekki vel.
Kringlan er eins og vakandi
draumur: draumur um
vinnuna, draumur um uppgjör
við foreldri, maka eða æskuvin.
Draumur sem ég vakna þreyttur
eftir. Ég vil síður fara í Kringl-
una, en þangað verða öll að
fara, kannski mánaðarlega eða
á tveggja mánaða fresti. Þangað
fer ég í stutterma skyrtu, í
haustjakka, í vetrarúlpu, þegar
ég á erindi við margs konar
neyslu sem þarf að afgreiða á
sem skemmstum tíma. Tíminn
stendur í stað og ég gleymi
því hvernig veðrið er, hversu
mikil umferð var, hversu mörg
smituðust í gær, að ég sé alvöru
lifandi manneskja með þarfir,
vonir og þrár. En öll þurfum við
Kringluna, það er fasti; dauði,
skattur, Kringlan.
Ég kaupi húðvörur og gleymi
f lóðunum í Vestur-Evrópu, ég
kaupi spil og gleymi f lóðunum
í Kína og ég finn dofa, með
tvo poka á vinstri handlegg.
Ég skoða vistvænu vörurnar
og gleymi skógareldunum í
Norður-Ameríku. Ég er með
fjóra poka og klappa mér á
bakið fyrir að vera byrjaður að
kaupa jólagjafir snemma í ár,
eins og ég ætla alltaf að gera.
Ég fæ mér mat á Stjörnutorgi,
fyrstu mathöllinni, og hnífa-
pörin eru úr trefjaplasti sem
er voða vistvænt og ég gleymi
jöklinum Oki. Það er komið
kvöld en ég veit það ekki, það er
farið að dimma, farið að hausta
en ég veit það ekki. Þegar ég stíg
út úr Kringlunni losna ég úr
álögunum og segist aldrei ætla
aftur þangað inn, en það er lygi.
Dauði, skattur, Kringlan. n
Kringlan
Tíminn er dýrmætur. Komdu með gamla
Apple úrið þitt og fáðu 20.000 kr. upp í
nýtt og snjallara Apple Watch Series 6 LTE.
Úr
uppí
úr!
20.000
krónur
uppí
Úrlausn
fylgir með
í 4 mán.
* Skv. Neyslukönnun Gallup. ** Íbúar á höfuðborgarsvæðinu á aldrinum
35–65 ára lesa Fréttablaðið daglega að meðaltali, skv. prentmælingum Gallup.
Með því að auglýsa í Fréttablaðinu
og á frettabladid.is nærðu til
rétta fólksins.