Starfsmannablaðið (B.S.R.B.) - 15.09.1944, Page 6

Starfsmannablaðið (B.S.R.B.) - 15.09.1944, Page 6
4 STARFSMANNABLAÐIÐ 2. umrœða um verkfallsrétt opinberra starfsmanna Miðvikudaginn 1. sept. 1915 var út- býtt í efri deild Alþingis frumvarpi til laga um verkfall opinberra starfsmanna. Frumvarp þetta náði samþykki eftir nokkrar umræður í báðum deildum þingsins og var afgreitt sem lög, en síðan hefur verið hljótt um efnishlið laganna þar til fyrir skemmstu, er stjórn B. S. R. B. beindi fyrirspurn til félaga bandalagsins varðandi lög þessi. Fyrirspurnin var á þá leið, hvort félög- in teldu ekki rétt að krefjast niðurfell- ingar laganna, þannig að samtök opin- berra starfsmanna yrðu jafnrétthá öðr- um stéttarsamtökum og starfi þá eftir þeirra venjum í samræmi við lög um stéttarfélög og vinnudeilur. Með þessari fyrirspurn til félaganna má segja, að önnur umræða um verk- fallsrétt opinberra starfsmanna hefjist. Eftir rétt 29 ár er málið tekið upp að nýju til athugunar, en að þessu sinni eru það stéttasamtök opinberra starfs- manna, sem hef ja umræðurnar. Og um- ræðurnar eru hafnar í nánu sambandi við eitt mesta áhuga- og hagsmunamál mikils þorra bandalagsfélaga, frumvarp til laga um laun starfsmanna ríkisins, sem milliþinganefnd hefir samið að til- hlutan ríkisstjórnarinnar. Því svo und- •annan tón um gildi starfs okkar, þegar bornar eru fram óskir opinberra starfs- manna um sjálfsagðar og réttlátar kjarabætur. Sjálfsagt er að taka það fram — og ég er viss um, að ég mæli þar fyrir munn allra starfsmanna ríkis og bæja— að það er langt frá því, að þeir hafi löngun til þess að gera verkföll. Og áreiðanlega munu þeir ekki beita verkfallsréttinum, nema í ítrustu nauð- syn. En um fram allt geta þeir ekki þolað það að vera að lögum stimplaðir sem glæpamenn, þótt þeir ræði um að leggja niður störf, þegar allar aðrar leiðir til sanngjamar lausnar á kjara- málum þeirra hafa verið reyndar ár- angurslaust árum saman og svo virðist sem ríkis- og löggjafarvaldið sitji á rétti þeirra í skjóli hinna úreltu verkfalls- laga frá 1915. Hvað eftir annað hafa verið sam- þykktar einróma á Alþingi þings- ályktanir sem fela í sér yfirlýsing- ar um nauðsyn á endurskoðun launa- kerfisins, og hvað eftir annað hafa nefndir verið settar á laggirnar til að undirbúa málið, enda ringulreiðin, ósamræmið og öngþveitið komið á það stig, að fjármálaráðuneytið ,að sögn skrifstofustjórans, er nærri daglega í vandræðum að greiða úr flækjum hinna 77 laga og enn fleiri ráðherra úrskurða um launagreiðslur starfsmanna ríkisins. Hér þarf því skjótra og gagngerðra um- bóta við, og ekki aðeins um að ræða mál, sem snertir hagsmuni og réttlæt- isvitund starfsmannanna sjálfra, held- ur er þetta réttlætis og menningarmál allrar þjóðarinnar. Bandalag starfs- manna ríkis og bæja getur því með góðri samvizku beitt allri orku sinni að lausn þessa máls, og hefur þar sér hver félagsmaður sitt hlutverk að vinna. Liggið því ekki á liði ykkar, félagar góðir.

x

Starfsmannablaðið (B.S.R.B.)

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Starfsmannablaðið (B.S.R.B.)
https://timarit.is/publication/1580

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.