Morgunblaðið - 08.04.2021, Síða 1

Morgunblaðið - 08.04.2021, Síða 1
2 1"'/8 1/. 47:))! -9/.5%,95+0* %"&%# $!%% "6&$# -63 295+0(0/635++5 F I M M T U D A G U R 8. A P R Í L 2 0 2 1 .Stofnað 1913 . 81. tölublað . 109. árgangur . LAGÐI GOLF- BÚNAÐINN Á HILLUNA SJÓNRÆNT HLJÓÐVERK FENEYJAFARA SIGURÐUR GUÐJÓNSSON 56STOLT AF FERLINUM 55 GIRNILEG TILBOÐ Í NÆSTU NETTÓ! Lægra verð - léttari innkaup Tilboðin gilda 8.—11. apríl Nautalund Þýsk 3.199KR/KG ÁÐUR: 3.999 KR/KG Now Vitamin D-3 1 /X•&E 1.169KR/STK ÁÐUR: 1.559 KR/STK -25% Heilsuvara vikunnar! Plómur 249KR/KG ÁÐUR: 498 KR/KG -20% -50% _ Þrátt fyrir að Brexit breyti ýmsu um tengsl Íslands og Bret- lands, þá felast fjölmörg tæki- færi fyrir Íslend- inga í nýju um- hverfi. Þetta er meðal þess, sem fram kemur í grein, sem Gunnar Þór Þórarinsson, íslenskur lögmaður í Lundúnum, ritar í Morgunblaðið í dag. Þar rekur hann helstu áhrif Brexit á samskipti landanna og hvað megi bæta. Þar á meðal nefn- ir hann fríverslunarsamning ríkjanna og annað nánara sam- starf. Gunnar Þór minnir á að Lund- únir séu enn sem áður ein helsta viðskiptaborg heims, en á milli Ís- lands og Bretlands séu gömul og gróin tengsl, sem rétt sé að rækta og treysta. Nú sé lag til þess. »32 Tækifæri í Brexit fyrir Íslendinga Gunnar Þór Þórarinsson Vegna mikillar gasmengunar á svæðinu við gos- stöðvarnar á Reykjanesskaga var svæðið rýmt í gærkvöldi. Hættuleg mengunargildi mældust á svæðinu. Þriðja gossprungan opnaðist á mið- nætti í fyrrinótt og segir Páll Einarsson, jarðeðl- isfræðingur og prófessor emeritus, að málið verði sífellt flóknara. Tilkoma nýju sprungnanna hefur væntanlega dregið úr kvikuflæðinu í syðsta og elsta eldvarpinu í Geldingadölum. »6 Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Hættuleg mengunargildi mældust við gosstöðvarnar _ Tvö skipafélög, Viking Ocean Cruises og Crystal Cruises, til- kynntu nú í byrjun apríl að þau hyggist bjóða upp á hringferðir um Ísland í sumar. Heimahöfn verður í Reykjavík og þar fara farþega- skipti fram. Byrjað er að auglýsa þessar ferðir erlendis. Hingað til lands koma skemmti- ferðaskipin Viking Sky og Crystal Endeavor. Hringferðirnar munu taka 8-10 daga og verður komið við í nokkrum höfnum á landsbyggð- inni. Skipin taka 400 og 930 far- þega í hverri ferð. Farþegarnir koma með flugi í gegnum Leifsstöð og fara í sýna- töku. Sýnataka verður síðan einnig gerð um borð í skipinu. Bæði skipa- félögin hafa látið Almannavarnir og ferðamálaráðherra vita af þess- um áformum sínum. »10 Sigla með farþega við Ísland í sumar Ljósmynd/Crystal Cruises Crystal Endeavor Mun sigla við Ísland. Freyr Bjarnason freyr@mbl.is Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir er með minnisblað í smíðum sem sent verður heilbrigðisráðherra í kjölfar frávísunar Landsréttar á kæru sóttvarnalæknis vegna úr- skurðar héraðsdóms um að ólög- mætt sé að skylda fólk í sóttvarna- hús. Þetta segir Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra. Um var að ræða fjögur aðskilin mál en þeim var öllum vísað frá vegna skorts á lögvörðum hags- munum. Dómur héraðsdóms er því enn í gildi. „Við munum í samein- ingu freista þess að ná þeim ár- angri eftir sem áður að takmarka líkur á smitum á landamærunum. Það er markmið og vonandi finnum við góðar leiðir til þess, en þær úti- loka samt sem áður ekki að við þurfum að leita leiða til að bæta lagaumhverfið,“ segir Svandís. Spurð hvort nýtt frumvarp verði lagt fram um sóttvarnahús segir hún fyrstu skrefin vera þau að fara yfir stöðuna á grundvelli gildandi laga. „Það skiptir máli að ný reglu- gerð taki gildi eins fljótt og hægt er og svo metum við á grundvelli þess hvort við þurfum að fara fram með einhvers konar breytingar á sótt- varnalögum til að styrkja grunn- inn,“ bætir hún við og segir nýja reglugerð taka gildi á allra næstu dögum. Hún gerir ráð fyrir að mál- ið verði rætt á ríkisstjórnarfundi á föstudaginn. Þar sem Landsréttur vísaði kæru Þórólfs frá stendur dómur héraðs- dóms um að ólögmætt sé að skylda fólk í sóttkvíarhús geti það sætt sinni sóttkví annars staðar. Spurð hvort ekki hefði verið ákjósanlegt að fá efnislega niður- stöðu í málið frá Landsrétti, í stað frávísunar, segir Svandís: „Ég held að það hefði verið mál- inu til góðs, sérstaklega þeim sjón- armiðum sem lúta að almannahags- munum, að fá efnislega umfjöllun í Landsrétti um þessi mál. Þetta eru mjög ríkir hagsmunir sem eru þarna undir fyrir samfélagið allt, þannig að það hefði verið gott fyrir málið.“ Ríkir hagsmunir undir - Sóttvarnalæknir smíðar nýtt minnisblað í kjölfar frávísunar - Ný reglugerð tekur gildi á allra næstu dögum - Ráðherra útilokar ekki breytingar á lagaumhverfinu MVonbrigði að fá ekki ... »2, 30

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.