Morgunblaðið - 08.04.2021, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 08.04.2021, Blaðsíða 55
ÍÞRÓTTIR 55 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 2021 Valdís Þóra Jónsdóttir tilkynnti í gær að hún ætlaði að láta stað- ar numið sem afrekskylfingur. Líkaminn þoli ekki meira eftir meiðsli síðustu ára eins og Val- dís lýsir í viðtalinu hér til hliðar en ýmislegt hefur verið reynt til að koma líkamanum í lag. Valdís afrekaði ýmislegt og keppti á Opna bandaríska meist- aramótinu fyrst Íslendinga en keppti einnig á Opna breska meistaramótinu. Mótin eru á meðal risamótanna í íþróttinni en í golfi og tennis er mest horft til þeirra móta. Stóru skrefin í afreksgolfi hjá Íslendingum virðast koma í gusum. Íslendingar höfðu aldrei verið með keppnisrétt á Evrópu- mótaröðinni en á þessari öld náðu Ólöf María Jónsdóttir og Birgir Leifur Hafþórsson því bæði með skömmu millibili. Síð- ar náðu þær Valdís, Ólafía Þór- unn Kristinsdóttir og Guðrún Brá Björgvinsdóttir því einnig með skömmu millibili. Manni þótti nánast óhugsandi að Íslendingur næði inn á risa- mót í golfi en þegar það hafðist náðu Valdís, Ólafía og Haraldur Franklín Magnús öll að afreka það. Að komast á stóra sviðið í golfíþróttinni er svolítið frá- brugðið því sem gerist til dæmis í sundi og frjálsum. Þar getur fólk náð árangri sem er viðmið fyrir stórmótin og fær þá keppn- isrétt. Kylfingarnir þurfa að næla í fá sæti sem eru í boði til að komast inn í „hlýjuna.“ Valdís náði því og er það flott afrek. Ég fjallaði um Íslands- mótið í Grafarholti árið 2009 þegar Valdís varð Íslandsmeist- ari í fyrsta skipti. Maður fékk á tilfinninguna að hún væri fremur óvenjulegt eintak. Var með for- ystuna megnið af mótinu ef ég man rétt en var ekki orðin tvítug. BAKVÖRÐUR Kristján Jónsson kris@mbl.is GOLF Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is „Þetta er sambland af nokkrum til- finningum. Tilfinningarnar voru yfirþyrmandi eftir að ég gaf þetta út en ég er góð núna. Þetta var rétt ákvörðun í stöðunni og nú kemur smá aðlögunartímabil,“ sagði kylf- ingurinn Valdís Þóra Jónsdóttir í samtali við Morgunblaðið. Valdís lagði í gær golfbúnaðinn á hilluna eftir glæsilegan feril, en hún er aðeins 31 árs. Þrálát meiðsli hafa gert henni afar erfitt fyrir síðustu ár. Hún segir ekki eitthvert eitt augnablik hafa skipt sköpum. Sársaukafullar meðferðir „Ekki beint þannig. Ég er búin að vera verkjuð í mjög langan tíma og fara í gegnum sársaukafullar meðferðir undanfarna mánuði og það eru takmörk fyrir því sem mað- ur getur gengið í gegnum,“ sagði hún. Valdís hefur reynt hvað hún getur að fá bót meina sinna og sársaukafullar meðferðir á borð við rafstuð í taugar og að brenna taugaenda hafa ekki skilað árangri. „Ég mæli ekki með þessu, ég hef upplifað þægilegri hluti,“ sagði Val- dís stutt í spuna. Valdís mun upp að vissu marki sakna þess að vera atvinnumaður í golfi, en hún viðurkennir að það hafi stundum tekið á. „Maður hitti og kynntist rosalega mörgu góðu fólki og eignaðist vini. Ég mun sakna þess að vera í þessu um- hverfi en ég mun ekki sakna þess að leggja líkama og sál í það sem tekur til þess að vera atvinnumaður. Það er ofboðslega mikið álag, andlega og líkamlega, og það er lýjandi.“ Valdís Þóra var um tíma tekju- laus þegar kórónuveirufaraldurinn skall á, en hún vinnur nú sem íþróttastjóri í heimabæ sínum Akranesi. Fyrst og fremst voru það meiðslin sem urðu til þess að hún ákvað að hætta, en Valdís bendir á að fjárhagslega hliðin geti verið snúin. Maður fer djúpt niður „Ég hef verið íþróttastjóri á Skaganum og er því ekki lengur tekjulaus, en Covid spilar inn í þar sem það er erfiðara að fá styrki inn í árið og það er mjög kostnaðar- samt ferli að vera atvinnumaður í golfi. Þetta kostar ofboðslega mikið og svo hefur það áhrif á skapið í manni að vera verkjaður. Það er mjög lýjandi andlega að vera alltaf að finna til. Það vita það allir sem eru alltaf að finna fyrir verkjum. Það er lýjandi og þreytandi og maður fer djúpt niður, en hátt upp á sama tíma í einhverjum að- stæðum. Þetta er mikil barátta.“ Valdís er einn farsælasti kylf- ingur Íslandssögunnar og hún lítur stolt til baka á glæsileg afrek. „Ég var ofboðslega ánægð þegar ég komst inn á Evróputúrinn, þar sem ég spilaði frábært golf í úrtöku- mótinu. Svo var það rosalega gam- an þegar við unnum Evrópumeist- aratitil landsliða. Ég fór svo á Opna bandaríska, fyrst Íslendinga, og það er mikið afrek sem ég er stolt af. Ég er líka stolt að vera sú sem hefur náð bestum árangri á er- lendri grundu af íslenskum kylf- ingum; ég var tvisvar í þriðja sæti á sterkum mótum erlendis, sem ég er mjög stolt af,“ sagði Valdís. Erfitt að vera í sviðsljósinu Keppnisskap Valdísar hefur vak- ið athygli og stundum verið gagn- rýnt af utanaðkomandi aðilum. Val- dís viðurkennir að hún muni lítið sakna þess að vera í sviðsljósinu. „Það er erfitt að vera í sviðsljós- inu. Bæði út af fólki sem styður þig og svo líka út af fólki sem er ekkert hrifið af þér. Það sem er erfiðast er að fólk sér stuttar klippur af þér sem íþróttamanni, bæði á góðum og slæmum augnablikum, og það ákveður eitthvað í hausnum á sér varðandi persónuna þína. Það fólk þekkir mig samt ekkert, það þekkir ekki manneskjuna Valdísi Þóru. Það sér mig bara bregðast við eftir að ég slæ högg. Ég sakna þess ekki að vera undir vökulu auga margra. Það má einhver annar vera í því.“ Valdís er ekki viss hvað framtíðin ber í skauti sér, en golf mun vænt- anlega áfram leika hlutverk í henn- ar lífi. „Ég er með vinnu sem íþróttastjóri hérna uppi á Skaga, en svo geri ég eflaust eitthvað annað í framtíðinni. Ég er búin að læra hluti sem eru engan veginn tengdir golfi sem ég væri til í að vinna við í framtíðinni. Ætli ég verði samt ekki alltaf eitthvað örlítið með putt- ann í þessari íþrótt áfram,“ sagði Valdís Þóra Jónsdóttir við Morgun- blaðið. Fólk þekkir ekki mann- eskjuna Valdísi Þóru - Lagði golfkylfurnar á hilluna 31 árs - Er stolt af glæsilegum afrekum Ljósmynd/seth@golf.is Á Skaganum Valdís Þóra Jónsdóttir lætur gott heita í keppnisgolfi. Aron Elís Þrándarson er í liði um- ferðarinnar í dönsku úrvalsdeild- inni í knattspyrnu í annað sinn á stuttum tíma. Twitter-síða deild- arinnar birti lið 23. umferðarinnar í gær. Aron lék vel fyrir OB gegn Hor- sens en leiknum lauk með 1:1- jafntefli. Aron hefur leikið stærra hlutverk hjá OB eftir að Michael Hemmingsen tók við liðinu af Jakob Michelsen. Miðjumaðurinn var einnig í liði umferðarinnar í síðustu umferð fyrir landsliðspásuna. Aftur valinn í lið umferðarinnar Ljósmynd/aafk.no/Srdan Mudrinic Danmörk Aron Elís Þrándarson vekur athygli um þessar mundir. Landsliðskonan Sif Atladóttir sneri aftur á knattspyrnuvöllinn í gær eftir átján mánaða hlé. Greindi hún frá þessu á Twitter í gær en Sif lék síðast með liði sínu Kristianstad í október 2019. Sif er 35 ára og eign- aðist sitt annað barn á síðasta ári og hefur verið í fæðingarorlofi. Kristianstad mætti í gær U23-ára landsliði Svía í vináttuleik en tíma- bilið í sænsku úrvalsdeildinni hefst 18. apríl næstkomandi. Sif á að baki 82 A-landsleiki og hefur átt fast sæti í landsliðinu und- anfarin ár. sport@mbl.is Sneri aftur eftir fæðingarorlof Morgunblaðið/RAX Reynd Sif Atladóttir virðist vera komin aftur á ferðina. Frakklandsmeistararnir í Paris St. Germain standa vel að vígi eftir fyrri leikinn gegn Bayern München í átta liða úrslitum Meistaradeildar karla í knattspyrnu því liðið gerði sér lítið fyrir og vann 3:2-útisigur í ótrúleg- um leik í München í gær. Liðin mættust í úrslitaleik keppninnar á síðustu leiktíð. PSG byrjaði af gríðarlegum krafti því Kyliam Mbappé kom liðinu yfir strax á þriðju mínútu og á 28. mín- útu var staðan orðin 2:0 eftir að Marquinhos skoraði. Eric Choupo- Moting minnkaði muninn á 37. mín- útu og var staðan eftir við- burðaríkan fyrri hálfleik 2:1. Sú staða breyttist í 2:2 á 60. mínútu þegar Thomas Müller skoraði. Mbappé skoraði sitt annað mark og þriðja mark PSG á 68. mínútu og gulltryggði sigurinn. Chelsea vann Porto 2:0 á útivelli en leikurinn fór fram í Sevilla á Spáni. Mason Mount og Ben Chil- well skoruðu á 32. og og 85. mínútu. Síðari leikirnir fara fram næsta þriðjudag. sport@mbl.is Bayern München tapaði á heimavelli AFP Útisigur Kylian Mbappe fagnar öðru marki sínu í München í gær. Mastersmótið í golfi hefst í dag á hinum glæsilega Augusta Nation- al-velli í Georgíu- ríki í Bandaríkj- unum. Mótið fer ávallt fram á sama vellinum og sker sig að því leytinu úr hvað varðar risamótin fjögur hjá körlunum í íþróttinni. Mótið er fyrsta risamót ársins hjá körlunum. Mótið fer vanalega fram í apríl en í fyrra var því frestað fram í nóvember vegna heimsfar- aldursins. Í þetta skiptið líður því innan við hálft ár á milli Masters- móta. Í nóvember í fyrra sigraði Dustin Johnson frá Bandaríkjunum og hef- ur hann verið í efsta sæti heimslist- ans um hríð. Völlurinn var nokkuð frábrugðinn í nóvember af ýmsum ástæðum. Flatirnar voru til dæmis miklu mýkri og völlurinn var á margan hátt viðráðanlegri viður- eignar en vanalega. Tiger Woods sigraði eftirminni- lega fyrir tveimur árum en hann er nú fjarri góðu gamni enda slasaður eftir bílslys. Meistarinn Dustin Johnson verður í dag í ráshópi með Lee Westwood og áhugamanninum Tyler Strafaci. Fimm mán- uðir á milli Mastersmóta Dustin Johnson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.