Morgunblaðið - 08.04.2021, Síða 39
Morgunblaðið/Eggert
Bingó Jónsi mætir í kvöld og tekur
lagið fyrir þátttakendur.
Fjölskyldubingó mbl.is verður á
sínum stað á fimmtudagskvöldið
þar sem þau Siggi Gunnars og Eva
Ruza sjá til þess að færa fjöl-
skyldum landsins bingótölurnar
beint heim í stofu.
Í síðustu viku mætti Páll Óskar
Hjálmtýsson og tók lagið fyrir
þátttakendur fjölskyldubingósins
en þá var haldinn sérstakur páska-
þáttur.
Í kvöld mætir söngvarinn Jón
Jósep Snæbjörnsson, betur þekkt-
ur sem Jónsi, í bingósettið og held-
ur uppi stuðinu fyrir þátttakendur.
Ásamt þeim Sigga og Evu verð-
ur furðu-DJ-inn í setti, tóm gleði
og fullt af stórglæsilegum vinn-
ingum.
Allar upplýsingar um þátttöku og
útsendingu má finna með því að
fara inn á heimasíðu bingósins á
www.mbl.is/​bingo.
Allar fyrirspurnir vegna bingósins
er hægt að senda á bingo@mbl.is.
Jónsi tekur lagið
fyrir bingó-
þátttakendur
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 2021
Kristjana Arnarsdóttir, íþrótta-
fréttakona á Rúv og Gettu betur-
spyrill, er þessa dagana að vinna í
því að taka upp úr kössum og
flytja aftur heim til sín eftir að
hafa búið í heilt ár heima hjá
tengdaforeldrum sínum og for-
eldrum sínum.
Ástæðan fyrir flutningunum var
sú að Kristjana ásamt kærasta
sínum, atvinnugolfaranum Haraldi
Franklín Magnús, ætlaði sér að
flytja til Spánar og búa þar í
nokkur ár. Parið ætlaði sér að
flytja um miðjan mars árið 2020
eftir að Gettu betur lauk. Ekkert
varð þó úr þeim plönum eftir að
Covid-19 fór af stað og endaði
parið með því að vera búin að
leigja íbúðina sína út og þurfa að
flytja aftur í foreldrahús.
„Við vorum búin að ákveða
þarna fyrir jólin árið 2019 að 2020
ætluðum við bara að svona, jæja
nú sláum við þessu bara upp í smá
kæruleysi, förum út. Af því að
kærastinn minn er nú svona at-
vinnugolfari og að vera golfari á
Íslandi er kannski ekki „ideal“,
það er betra að vera golfari á
Spáni. Þannig að við vorum búin
að ákveða að slá þessu svona upp í
að hann var kominn inn í sterkari
mótaröð og bara nú fer ég með
þér og ég verð bara kylfusveinn
og við förum á mótin og ég læri
spænsku og fáum okkur tapas og
drekkum rauðvín og verum í kósí.
En svo bara frestaðist þetta alltaf
um viku og viku og viku og allt í
einu vorum við búin að vera allan
þennan tíma heima hjá foreldrum
okkar,“ útskýrir Kristjana í viðtali
við Síðdegisþáttinn á K100.
Búið að ganga á ýmsu
Kristjana slær þó á létta strengi
og segir atburðarásina vera þeirra
Covid-sögu.
„Eins og ég horfi á þetta, fólk
er búið að vera að glíma við alls
konar og þetta er búið að vera
hundleiðinlegt fyrir alla og það er
bara þannig. Við erum bara einn
af þessu stóra mengi sem er búið
að vera að glíma við Covid og
þetta var bara svona okkar saga.
Við ætluðum þvílíkt að slá þessu
upp í eitthvað „he he“ og bara
skella okkur út og hafa gaman og
fyrir vikið fengum við bara að
vera eins og unglingar á uppeldis-
heimilunum okkar. En sem betur
fer eigum við frábær sett af for-
eldrum svo þetta gekk bara furðu
vel. En við reyndum að komast
heim á gamlárskvöld og vorum
læst úti og ég þurfti að skríða inn
um gluggann 31 árs gömul og
þetta var allt svona. Þannig að
það er ýmislegt búið að ganga á
en við erum alla vegana komin á
lokaáfangastaðinn aftur,“ segir
hún.
Kristjana og Haraldur héldu
plönum sínum alltaf opnum í upp-
hafi faraldursins og bjuggust þau
við því að komast út. Fljótlega
kom þó í ljós að af því yrði ekki
en hún segir þó að þau hafi skellt
sér saman út í þrjá mánuði. Hún
viðurkennir að þrátt fyrir að það
hafi verið notalegt að búa í for-
eldrahúsum hafi hún hlakkað til
að flytja aftur heim til sín.
„Mómentið þegar ég þurfti að
skríða inn um gluggann heima hjá
mér þá fékk ég svona nei, nú fer
þetta að verða gott, þetta er kom-
ið ég þarf að fara að koma mér
heim, ég er orðin þrjátíu ára,“
segir Kristjana og hlær.
Nú er Haraldur úti á meðan
hún er ein að sjá um að flytja þau
aftur inn í gömlu íbúðina. Krist-
jana segir það ekki mjög spenn-
andi að flytja aftur á sama staðinn
enda sé hún bara að raða hús-
gögnunum aftur á sama staðinn.
Það hafi þó verið skrítin upplifun
að flytja aftur heim og að upplifa
sig sem „ungling“ aftur.
Viðtalið við Kristjönu má nálg-
ast í heild sinni á K100.is.
Kristjana Arnarsdóttir Flutti heim í foreldrahús í eitt ár.
Flutti í foreldrahús
í ár: „Þetta var bara
svona okkar saga“
Kristjana Arnarsdóttir, íþróttafréttakona á Rúv og
Gettu betur-spyrill, flutti ásamt kærasta sínum, Har-
aldi Franklín Magnússyni, aftur í foreldrahús þar sem
þau hafa búið undanfarið ár. Parið hafði sett íbúðina
sína á leigu og stefndi á að flytja til Spánar þegar
heimsfaraldurinn skall á og stöðvaði öll plön. Nú ári
síðar er parið aftur að flytja heim til sín eftir að hafa
fengið að vera eins og unglingar á uppeldisheimilum
www.gilbert.is
Hjá Gilbert úrsmið sérhæfum
við okkur í úrsmíði, hönnun
og framleiðslu úra
Sumarlínurnar
2021
komnar í hús
Bláu húsin v/Faxafen • Sími 553 7355 • Vefverslun selena.is
Vefverslunselena.is
* Bíkíní
* Tankiní
* Sundbolir
* Strandfatnaður