Morgunblaðið - 09.04.2021, Síða 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. APRÍL 2021
Scholl
fyrir gönguna
& hlaupin
Scholl vörurnar fást í apótekum, Hagkaup, Fjarðarkaup, Stoð og á Heimkaup.is
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„KLIPPTU BARA FYRIR FIMMHUNDRUÐ.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að botna setningar
hvort annars.
ÉG HATA ÞAÐ ÞEGAR
FÓLK ANGRAR MIG
ÞETTA LEIT ÚT
EINSOG RÖÐ
HVER VILL SÍÐUSTU KÖKUSNEIÐINA? ÞETTA ER
HEIL KAKA!
ÉG VEIT!
GEFÐU MÉR NOKKRAR
MÍNÚTUR!
KVIKMYNDAEFTIRLITIÐ
KLIPPING
3.000
KR.
FÁUMOKKUR … ÍTALSKAN
Íslenska Gámafélagið hefur
hlotið ýmsar viðurkenningar í
gegnum tíðina. Það hlaut Kuðung-
inn, umhverfisverðlaun umhverf-
isráðuneytisins, árið 2008 og var
valið fyrirtæki ársins bæði árið
2010 og 2011 hjá VR.
„Vinnan hefur líklega tekið of
mikinn tíma í mínu lífi,“ segir Jón
um áhugamálin. „En samt er það
útivistin og ferðalög sem hafa allt-
af heillað. Ég lagði þónokkra
stund á lengri hlaup um tíma og
náði að fara nokkur af lengri
hlaupunum, s.s Laugaveginn og
Hengilinn, en það er fátt skemmti-
legra en að hlaupa úti í nátt-
úrunni. Í dag verð ég að láta mér
nægja að labba og geri þó nokkuð
af því.“
Fjölskylda
Sonur Jóns með fyrrverandi
sambýliskonu sinni, Kristínu Jó-
hannsdóttur, f. 10.8. 1963, kennara
er 1) Birkir Jónsson, f. 17.8. 1986,
búsettur í Brussel ásamt sam-
býliskonu sinni, Margréti Sigurð-
ardóttur, og tveim börnum þeirra,
Sigurlaugu Lilju og Kristínu
Elísu. Börn Jóns með fyrrverandi
eiginkonu sinni, Elfu Dögg Þórð-
ardóttur, f. 11.6. 1972, fram-
kvæmdastjóra eru 2) Arnór Jóns-
son, f. 9.5. 1997, nemi, búsettur í
Reykjavík; 3) Sandra Jónsdóttir, f.
24.5. 2000, búsett í Reykjavík
ásamt sambýlismanni sínum, Pétri
Guðbirni Sigurðarsyni, og eiga
þau eina dóttur, Heklu Maríu; 4)
Einar Dagur Jónsson, f. 22.9.
2006, nemi í Vallaskóla á Selfossi.
Systkini Jóns eru Aðalheiður
Frantzdóttir, f. 28.2. 1949, fram-
kvæmdastjóri Mæðrastyrks-
nefndar, og Pétur Ingi Frantzson,
f. 6.3. 1955, umsjónarmaður Tjald-
svæðisins í Hveragerði og fyrrver-
andi ofurhlaupari.
Foreldrar Jóns: Frantz Adolph
Pétursson, f. 5.5. 1930, starfaði
lengstum sem verkstjóri hjá SVR
og síðan húsvörður í Ármúlaskóla,
búsettur í Reykjavík, og Sig-
urbjörg Skagfold Kristinsdóttir, f.
24.10. 1929, d. 11.11. 2018, starfaði
mikið á gæsluvöllum Reykjavík-
urborgar og m.a. sem húsvörður í
Ármúlaskóla. Foreldrar Jóns
gengu í hjónaband árið 1947 með
leyfi forseta þar sem Frantz hafði
ekki aldur til að kvænast.
Jón Þórir
Frantzson
Anna Hallfríður Sölvadóttir
húsfreyja í Hornbrekku á Höfðaströnd, Skag.
Sveinbjörn Sveinsson
bóndi í Hornbrekku
Aðalheiður Sveinbjörnsdóttir
húsmóðir í Reykjavík
Kristinn Albert Sæmundsson
smiður í Reykjavík
Sigurbjörg Skagfold
Kristinsdóttir
húsvörður í Reykjavík
Guðrún Jóhannsdóttir Grundtvig
húsfreyja í Hringverskoti
Sæmundur Pálmi Jónsson
bóndi í Hringverskoti í Ólafsfirði
Helga Halldórsdóttir
húsfreyja í Reykjavík
Björn Benediktsson
sjómaður í Reykjavík
Ísafold Helga Björnsdóttir
húsmóðir í Reykjavík
Pétur Þorgrímsson
forstjóri SVR
Ingibjörg Þóra Kristjánsdóttir
húsfreyja í Viðey og Laugarnesi
Þorgrímur Jónsson
bóndi í Viðey og Laugarnesi í Reykjavík
Úr frændgarði Jóns Þóris Frantzsonar
Frantz Adolph Pétursson
fv. verkstjóri í Reykjavík
Sigtryggur Jónsson yrkir á Boðn-armiði:
Ég af gleði’ og gáska hlæ
og gleymi sorg og böli.
Á morgun sprautu’ af fæser fæ
og fagna því með öli.
Þessi vísa kallar fram í hugann
stöku Níelsar skálda:
Ég að öllum háska hlæ
á hafi sóns óþröngu.
Mér er sama nú hvort næ
nokkru landi eða öngu.
Magnús Halldórsson yrkir:
Þótt af lífsins dropum dignir,
dvel við eitt.
Ýmist hvessir eða lygnir,
yfirleitt.
Broddi B. Bjarnason yrkir við
ljósmynd:
Harður þessi heimur er
híma hross í frosti og byl.
Bara að veðrið batni hér
og blessað vorið veiti yl.
Þessi staka Hólmfríðar Bjart-
marsdóttur á Sandi er vinaleg og
hlý:
Morgungolan kyssir kinn
klökknar hjarn í spori.
Okkur flytur andvarinn
ilm frá liðnu vori.
Árið 1878 gaf Almenna bóka-
félagið út úrvalsstökur eftir 120
höfunda, sem Kári Tryggvason
hafði valið, og segir um efni bók-
arinnar að hann hafi haft það fyrir
meginreglu að kjósa það helst sem
hann kunni og hafði mætur á. Ég
hef áður tekið stökur úr þessu kveri
í Vísnahorn og hér eru fleiri. Stein-
grímur Baldvinsson í Nesi orti:
Allt sem þjóðin átti og naut,
allt sem hana dreymir,
allt sem hún þráði og aldrei hlaut
alþýðustakan geymir.
Kristján Fjallaskáld orti:
Allt þó sýnist blítt og bjart
blysum fyrir hvarma,
innra getur manni margt
megna vakið harma.
Konráð Vilhjálmsson orti:
Björt á fjalla bláum múr
breiðir allan ljóma.
Lind af hjalla hoppar úr
hjarns og mjallar dróma.
Egill Jónasson kvað:
Gekkstu þannig lífsins leið
langa götu og breiða:
gerðir aðeins út úr neyð
öðrum manni greiða.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Vísur úr
ýmsum áttum