Fréttablaðið - 02.09.2021, Síða 1
1 7 2 . T Ö L U B L A Ð 2 1 . Á R G A N G U R f rettab lad id . i s F I M M T U D A G U R 2 . S E P T E M B E R 2 0 2 1
Segja plasti stríð
á hendur
Klám og tónlist
Lífið ➤ 32 Menning ➤ 24
Forvitnir ferðamenn fylgdust með ungum ofurhugum kæla sig niður í blíðunni á Akureyri með því að stökkva í sjóinn við Hof, menningarsetur Akureyrar. Ágústmánuður var sá heitasti frá upphafi
mælinga á Akureyri eftir að júlímánuður var einnig sá hlýjasti frá upphafi og virðist ekkert lát á góðviðrisdögum í höfuðborg norðursins. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN
Þrátt fyrir lög sem tryggja
eiga aðgang fólks með þroska-
hömlum að námi nýtur það
ekki sömu tækifæra og aðrir.
ser@frettabladid.is
MENNTAMÁL „Enn er það svo að
ungmenni með þroskahömlun
njóta ekki sömu tækifæra til fram-
haldsnáms og aðrir Íslendingar á
sama aldri,“ segir Sara Dögg Svan-
hildardóttir, verkefnisstjóri við
samhæfingu námsframboðs og
atvinnutækifæra hjá Landssam-
tökunum Þroskahjálp.
„Kerfið veit nákvæmlega hvað
það eru margir í þessum hópi í
hverjum árgangi, en virðist hafa
gleymt því þegar hvert skólaár
byrjar,“ segir Sara Dögg enn fremur.
„Samfélagið er enn að hafna þessum
hópi fólks.“
Hálfur annar áratugur er frá því
að aðgengi fólks með þroskahömlun
að framhaldsskólanámi var tryggt
með lögum. Sara Dögg segir að fjár-
magn hafi aldrei fylgt þeirri laga-
breytingu. Fyrir vikið hafi aðbún-
aður fyrir framhaldsnám fólks
með þroskahömlun ekki verið sem
skyldi, hvorki hvað rými varðar né
fjölda nemenda.
„Þess vegna er enn þá allur gangur
á því hvort ungmenni með þroska-
hömlun komast í framhaldsskóla á
haustin. Skólarnir þurfa að velja og
hafna vegna plássleysis,“ segir Sara
Dögg. „Og í rauninni eru þetta ekki
nema tíu til tólf skólar á landinu,
aðallega í Reykjavík, sem telja sig
geta sinnt starfsbrautarnáminu
fyrir þennan nemendahóp.“
Sara segir Menntamálastofnun
hafa biðlað reglulega til skólayfir-
valda um að taka við fleiri nemend-
um með þroskahömlun, en svörin
hafi verið rýr og úrbætur engar.
„Það komast um 50 nemendur með
þroskahömlun í framhaldsnám á
ári – og ef það eru fleiri í árgangin-
um þá komast þeir einfaldlega ekki
að. Þeirra bíður þá ekkert.“
Og ekki segir Sara ástandið í
háskólum landsins betra. „Það er
pláss fyrir tólf manns í diplómanám,
það er allt og sumt,“ segir hún. „Í dag
er það svo að ungmenni með þroska-
hömlun þrá að komast í alls kyns
verknám, tækninám og listnám,
líka á háskólastigi, en koma þar að
lokuðum dyrum. Við sem samfélag
erum einfaldlega ekki enn búin að
tryggja þeim rétt til náms.“ ■
Ungmennum með þroskahömlun
ekki enn tryggður réttur til náms
Saga Dögg
Svanhildardóttir
verkefnisstjóri.
Mmm ...
Safarík vínber eru
best núna!
Pssst ...
Cotton candy
vínberin eru
komin
FASTEIGNIR „Varan í hillunum er
sums staðar nánast búin,“ segir
Kjartan Hallgeirsson, formaður
Félags fasteignasala, um stöðu mála.
Kjartan segir að það sem hafi leitt
til gríðarlegrar aukningar í sölu fast-
eigna á einu ári sé uppsöfnuð eftir-
spurn, breytingar á markaði og ýmis
ruðningsatriði. Fasteignasalar telja
að ásókn í nágrannabyggðir haldi
áfram að aukast. SJÁ SÍÐU 4
Tómlegt úrval á
fasteignamarkaði
Kjartan Hall-
geirsson, for-
maður Félags
fasteignasala.