Fréttablaðið - 02.09.2021, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 02.09.2021, Blaðsíða 10
Langanes er 40 km langur skagi sem teygir sig til norð- austurs milli Þistilfjarðar og Bakkaflóa en yst mjókkar það í tilkomumikinn bjargtanga sem kallast Fontur. Örnefnið Fontur er til á að minnsta kosti fjórum stöðum á landinu og eru þeir á austanverðu landinu, þar á meðal tveir í Norðfirði. Merking orðsins er stólpi eða staur, samanber orðið skírnarfontur yfir ker á stalli, og orð- takið að standa eins og fontur sem þýðir hreyfingarlaus. Við Font eru þverhnípt sjávarbjörg sem eru allt að 70 m há og í þeim mikið fuglalíf. Þarna stendur fallegur viti frá 1950 sem leysti af hólmi eldri vita frá 1910 og 1914 en í vitanum er sjálfvirk veðurathugunarstöð. Löngum var búið á Langanesi en byggðin var strjál, enda útnesið víða grýtt og hrjóstrugt. Í staðinn voru mikil hlunnindi af bjargfuglatekju, reka og útræði sem stundað var úr víkum, oft við erfiðar aðstæður. Það er óhætt að mæla með heimsókn út á Langanes og víða skemmtilegar göngu- og fjallahjólaleiðir, ekki síst meðfram stórfenglegum fuglabjörgunum sem virðast endalaus. Frá Þórshöfn er 38 km akstur út á Skoruvík á Langanesi. Á leiðinni er gaman að koma við á kirkju- jörðinni Sauðanesi en þar er safn í gamla prestsetrinu. Frá Skoruvík er 12 km langur jeppaslóði út á Font sem einnig er skemmtileg fjallahjólaleið. Hana má einnig ganga eða fylgja björgunum vestan megin út á Font og þræða síðan björgin austan megin til baka. Má þá koma við á Skálum og skoða rústir áður blómlegs fiskimanna- samfélags og löggilts verslunarstaðar en þegar mest var bjuggu á Skálum 120 manns í kringum 1920. Við Font er gríðarlega mikið fuglalíf og auðvelt að berja augum lunda en einnig langvíu, teistu, álku, fýl og ritu. Við Skorarvíkurbjarg er síðan reisulegur kletta- drangur, Stórikarl. Þar er stærsta súlubyggð á Norður- landi og auðvelt að fylgjast úr návígi með þessum tígu- lega fugli sem oft er kallaður drottning Atlantshafsins. Þarna er einnig mikið af kríu og innar á nesinu má sjá vaðfugla og sjaldgæfar jurtir eins og f léttuna kletta- króða. Skammt frá vitanum er Engelskagjá, rauf sem nefnd er eftir enskri áhöfn skips, sem strandaði þar fyrir utan snemma á 18. öld, og gat klöngrast þar upp. Samt urðu mennirnir allir úti á leið til bæja úr vosbúð nema skipstjórinn. Eru skipverjarnir sagðir grafnir við trékross sem stendur við 5 km langan veg milli Skoru- víkur og Skála, en á honum er áletrunin: „Hér hvíla 11 enskir menn.“ n Fantaflottur fontur Fontur er sérlega fallega formaður bjargtangi með þverhníptum björgum sem eru heimkynni sjófugla og hvítleit af fugladriti. MYNDIR/ÓMB Skemmtilegar göngu- og fjalla- hjólaleiðir liggja út á Font að fal- legum vitanum. Við klettinn Stórakarl er hægt að fylgjast með súlu, drottningu Atlantshafsins, í návígi. Ólafur Már Björnsson augnlæknir og ljósmyndari. Tómas Guðbjartsson hjartaskurð­ læknir og náttúru­ unnandi. 10 Fréttir 2. september 2021 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐFÓKUS Á HJARTA LANDSINS 2. september 2021 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.