Fréttablaðið - 02.09.2021, Qupperneq 10
Langanes er 40 km langur skagi sem teygir sig til norð-
austurs milli Þistilfjarðar og Bakkaflóa en yst mjókkar
það í tilkomumikinn bjargtanga sem kallast Fontur.
Örnefnið Fontur er til á að minnsta kosti fjórum stöðum
á landinu og eru þeir á austanverðu landinu, þar á meðal
tveir í Norðfirði. Merking orðsins er stólpi eða staur,
samanber orðið skírnarfontur yfir ker á stalli, og orð-
takið að standa eins og fontur sem þýðir hreyfingarlaus.
Við Font eru þverhnípt sjávarbjörg sem eru allt að 70 m
há og í þeim mikið fuglalíf. Þarna stendur fallegur viti
frá 1950 sem leysti af hólmi eldri vita frá 1910 og 1914
en í vitanum er sjálfvirk veðurathugunarstöð. Löngum
var búið á Langanesi en byggðin var strjál, enda útnesið
víða grýtt og hrjóstrugt. Í staðinn voru mikil hlunnindi
af bjargfuglatekju, reka og útræði sem stundað var úr
víkum, oft við erfiðar aðstæður.
Það er óhætt að mæla með heimsókn út á Langanes og
víða skemmtilegar göngu- og fjallahjólaleiðir, ekki síst
meðfram stórfenglegum fuglabjörgunum sem virðast
endalaus. Frá Þórshöfn er 38 km akstur út á Skoruvík
á Langanesi. Á leiðinni er gaman að koma við á kirkju-
jörðinni Sauðanesi en þar er safn í gamla prestsetrinu.
Frá Skoruvík er 12 km langur jeppaslóði út á Font sem
einnig er skemmtileg fjallahjólaleið. Hana má einnig
ganga eða fylgja björgunum vestan megin út á Font og
þræða síðan björgin austan megin til baka. Má þá koma
við á Skálum og skoða rústir áður blómlegs fiskimanna-
samfélags og löggilts verslunarstaðar en þegar mest var
bjuggu á Skálum 120 manns í kringum 1920.
Við Font er gríðarlega mikið fuglalíf og auðvelt að
berja augum lunda en einnig langvíu, teistu, álku, fýl
og ritu. Við Skorarvíkurbjarg er síðan reisulegur kletta-
drangur, Stórikarl. Þar er stærsta súlubyggð á Norður-
landi og auðvelt að fylgjast úr návígi með þessum tígu-
lega fugli sem oft er kallaður drottning Atlantshafsins.
Þarna er einnig mikið af kríu og innar á nesinu má sjá
vaðfugla og sjaldgæfar jurtir eins og f léttuna kletta-
króða. Skammt frá vitanum er Engelskagjá, rauf sem
nefnd er eftir enskri áhöfn skips, sem strandaði þar
fyrir utan snemma á 18. öld, og gat klöngrast þar upp.
Samt urðu mennirnir allir úti á leið til bæja úr vosbúð
nema skipstjórinn. Eru skipverjarnir sagðir grafnir við
trékross sem stendur við 5 km langan veg milli Skoru-
víkur og Skála, en á honum er áletrunin: „Hér hvíla 11
enskir menn.“ n
Fantaflottur fontur
Fontur er sérlega fallega formaður bjargtangi með þverhníptum björgum sem eru heimkynni sjófugla og hvítleit af fugladriti. MYNDIR/ÓMB
Skemmtilegar
göngu- og fjalla-
hjólaleiðir liggja
út á Font að fal-
legum vitanum.
Við klettinn
Stórakarl er
hægt að fylgjast
með súlu,
drottningu
Atlantshafsins, í
návígi.
Ólafur Már
Björnsson
augnlæknir og
ljósmyndari.
Tómas
Guðbjartsson
hjartaskurð
læknir og náttúru
unnandi.
10 Fréttir 2. september 2021 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐFÓKUS Á HJARTA LANDSINS 2. september 2021 FIMMTUDAGUR