Fréttablaðið - 02.09.2021, Síða 6
Ú
tb
oð
Nánar á:
hfj.is/utbod
Hafnarfjarðarbær óskar eftir tilboðum
verktaka í uppbyggingu 4. hæðar
Suðurgötu 41 í Hafnarfirði.
Verkhluti (starfsgrein) er: Trésmíðar
Á vegum verktaka skal vera húsasmíða
meistari, með löggildingu iðnmeistara
skv. lögum um mannvirki nr. 160/2010,
skipulags og byggingarlögum nr. 73/1997
og byggingarlögum nr. 54/1978. Á vegum
verkkaupa er byggingarstjóri vegna
uppbyggingar á 4. hæð. Á sama tíma og
verkið stendur yfir verða framkvæmdir í
gangi á 1., 3. og 4. hæð.
Útboðsgögn verða send rafrænt til þeirra
aðila sem eftir því óska með beiðni á
netfangið: utbod@vsb.is. Í beiðni skal
koma fram nafn lögaðila og tengiliðar,
símanúmer og netfang vegna samskipta.
Tilboðum skal skilað í síðasta lagi 13.09.21.
Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en
10.12.21.
Lífsgæðasetur St. Jó -
uppbygging á 4. hæð
Málin sem brenna á
stjórnmálaflokkunum
Tæpur mánuður er nú til næstu alþingiskosninga og stjórnmálaflokkar eru í óðaönn að kynna
þær áherslur sem þeir vilja að næsta ríkisstjórn hafi að leiðarljósi. Fréttablaðið hefur undanfarna
daga gert þeim flokkum sem mælast inni á þingi skil og fjallað lauslega um stefnu þeirra.
Græn störf og
jafnrétti kynjanna
Vinstri græn fengu síðast ell-
efu þingmenn með tæplega
sautján prósentum atkvæða.
Í könnun Gallup á dögunum
mældist flokkurinn með fjór-
tán prósenta fylgi.
Helstu áherslur:
1. Umhverfismál: VG vill að
Ísland sé í forystu um rót-
tækar, raunhæfar og réttlátar
aðgerðir í umhverfismálum,
draga úr losun, efla græna
fjárfestingu og auka kolefnis-
bindingu.
2. Heilbrigt atvinnulíf: Fjöl-
breytt atvinnulíf er heilbrigt
atvinnulíf segir VG. Skapa á
ný og fjölbreytt græn störf
eftir Covid og koma í veg
fyrir langtímaatvinnuleysi.
Tryggja félagslegar áherslur
í uppbyggingunni, öflugri
stuðning við barnafjöl-
skyldur og bætta framfærslu
hinna tekjulægri.
3. Jafnrétti: VG segir jafn-
rétti kynjanna og mannrétt-
indi allra vera undirstöðu
heilbrigðs lýðræðissam-
félags. Halda eigi áfram að
útrýma kynbundnu ofbeldi
í samfélaginu og launamun
kynjanna.
Hærri barnabætur og
alvöru loftslagsaðgerðir
Samfylkingin hlaut um tólf
prósent atkvæða og sjö þing-
menn í kosningunum 2017.
Að undanförnu hefur Sam-
fylkingin mælst með fylgi í
kringum ellefu prósent.
Helstu áherslur:
1. Barna- og fjölskyldumál:
Samfylkingin vill greiða
barnafjölskyldum hærri
barnabætur og gera það í
hverjum mánuði. Jafnframt
vill flokkurinn hækka þak á
greiðslur í fæðingarorlofi í
samræmi við launaþróun.
2. Eldri borgarar: Flokkurinn
vill hækka mánaðarlegt frí-
tekjumark eldra fólks vegna
lífeyrissjóðsgreiðslna úr 25
þúsund krónum í 50 þúsund
krónur.
3. Loftslagsmál: Samfylk-
ingin vill að losun gróður-
húsalofttegunda verði
dregin saman um minnst
sextíu prósent fyrir árið
2030. Flokkurinn vill jafn-
framt hefja undirbúning
að Keflavíkurlínu sem yrði
græn tenging milli Reykja-
víkur og Keflavíkurflugvallar
og styðja tæknilausnir til að
fanga og farga kolefni.
Loftslagsmál
og ný stjórnarskrá
Píratar hlutu rúm níu prósent
atkvæða og sex þingmenn í
kosningunum 2017, sem var
nokkuð lakara en þeir náðu
í kosningunum árið áður. Í
könnunum hefur flokkurinn
mælst með um ellefu til þret-
tán prósenta fylgi.
Helstu áherslur:
1. Efnahags- og loftslagsmál:
Píratar mæla fyrir kerfis-
breytingum til þess að takast
á við loftslagsvána. Þá taki
efnahagsstjórn mið af þeim
í auknum mæli. Þá telja þeir
að endurskipuleggja verði
stjórnsýslu og hefja samstarf
við aðila vinnumarkaðarins.
2. Ný stjórnarskrá: Píratar
vilja innleiða stjórnarskrá
stjórnlagaráðs. Muni inn-
leiðingin fela í sér frekari lýð-
ræðisumbætur, mann réttindi
og stjórnarskrárbundið auð-
lindaákvæði.
3. Spillingarvarnir og réttlæti:
Píratar boða ýmsar aðgerðir
gegn sérhagsmunum og
óæskilegum áhrifum stjórn-
málamanna og fyrirtækja.
Telur flokkurinn að aðgerðir
þeirra muni leggja grunninn
að betra samfélagi.
Hægt er að nálgast umfjöllun um áherslur flokkanna í aðdraganda kosninganna á vef Fréttablaðsins
thorgrimur@frettabladid.is, kristinnpall@frettabladid.is
N Ý F O R M
h ú s g a g n a v e r s l u n
h ú s g a g n av e r s l u n
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Mikið úrval af HVÍLDARSTÓLUM
með og án rafmagns lyftibúnaði
Komið og
skoðið úrvalið
gar@frettabladid.is
GARÐABÆR „Útlit er fyrir að kistu
reitir Garðakirkjugarðs munu fyll
ast áður en árinu 2022 lýkur og því
áríðandi að fyrirhuguð stækkun
verði framkvæmd sem allra fyrst,“
segir í bréfi Garðasóknar þar sem
óskað er eftir auknu fjárframlagi.
Garðasókn segir rekstrarstöðuna
erfiða og biður um aukna þátttöku
Garðabæjar í áætluðum 47,2 millj
óna króna kostnaði við stækkunina.
„Jafnframt er farið fram á að bærinn
hraði vinnu sinni eins og unnt er við
undirbúning og framkvæmd verks
ins svo ekki komi upp sú erfiða staða
að neita þurfi bæjarbúum um kistu
grafir í garðinum.“ ■
Bærinn hjálpi svo ekki þurfi að
neita Garðbæingum um kistugrafir
Garðakirkja og
Garðakirkju-
garður eru á
Álftanesi.
FRÉTTABLAÐIÐ/
STEFÁN
6 Fréttir 2. september 2021 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ