Fréttablaðið - 02.09.2021, Page 28
Jónas Sen skrifar um mikil-
vægi klassískrar tónlistar, sem
hann segir ekki einkennast af
yfirborði heldur rista djúpt.
Jónas Sen
Mamma mín var spíritisti en pabbi
efahyggjumaður. Trúmál voru því
sjaldan rædd við matarborðið og
við fórum aldrei í kirkju. Klass-
ísk tónlist var hins vegar dýrkuð,
kannski voru þau eins konar trúar-
brögð. Hún var hin fullkomna tján-
ing æðstu fegurðar.
Rithöfundurinn Philip K. Dick,
höfundur sagnanna sem myndir á
borð við Blade Runner, Total Recall
og Minority Report eru byggðar á,
dýrkaði Beethoven. Í einni bókinni
hans segir hann að Beethoven hafi
verið Elía spámaður endurborinn.
Á vissan hátt má segja að klass-
ísk tónlist sé á sömu hillu og trúin á
Guð. Hún er forn og grundvallast á
alls konar hefðum.
Rétt eins og smágert íkon er tákn
fyrir óendanlegan, andlegan veru-
leika og sakramenti kirkjunnar,
brauð og vín, umbreytist í hold og
blóð Krists, þá er verður lítil tóna-
hending að einhverju miklu meira
í klassískri tónlist.
Stærri tónverk eru y f irleitt
smíðuð úr einföldu tónefni sem
tónskáldið hefur meðhöndlað á
ýmsan hátt. Úr verður framvinda
þar sem allt mögulegt kemur fyrir.
Lítil hending í sónötu eftir Mozart,
kannski bara einn brotinn hljómur,
verður oft að stórfenglegri tónlist.
Ekkert gerist í poppinu
Í venjulegu popplagi af þeirri
gerðinni sem er spilað á Bylgjunni
gerist hins vegar ekkert; einföld lag-
lína er endurtekin aftur og aftur og
hljómagangurinn er sá sami æ ofan
í æ. Aðeins ein stemning er ríkjandi
og hún varir venjulega í örfáar mín-
útur.
Auðvitað er ekkert að þessu; ég
hlusta oft á þannig músík sjálfur
og hef gaman af. En hún ristir ekki
djúpt; megnið af henni byggist á
klisjum og endurtekningum. Þann-
ig tónlist heyrist gjarnan í Eurovisi-
on-keppninni og í poppmyndbönd-
unum er hún oftar en ekki ríkulega
skreytt klámfengnum tilburðum.
Hefur kveðið svo sterkt að því að
klámmyndaleikstjórar hafa meira
að segja verið fengnir til að leik-
stýra slíkum myndböndum.
Poppið, rétt eins og klámið, geng-
ur út á æskuna, líkamann og dýrk-
unina á því nýja. Sumarsmellurinn
í ár er hallærislegur eftir nokkra
mánuði. Tískan í dag ræður; við
höfnum hinu gamla, kannski vegna
þess hve við óttumst dauðann.
Tískan er víðs fjarri í klassíkinni
Klassísk tónlist einkennist hins
vegar af innri strúktúr, ekki yfir-
borði. Og oft eru bestu verk klass-
ískrar tónlistar samin á efri árum
þess sem á í hlut. Mestu snilldar-
verk Beethovens tilheyra síðasta
tímabilinu í lífi hans. Sömu sögu er
að segja um flest önnur tónskáld.
Tískan er víðs fjarri; það er inni-
haldið sem gildir.
Hingað til hefur stöðnun ekki
einkennt form klassískrar tónlistar.
Eitthvað gerist ávallt í slíkri tónlist.
Hún er útópísk og felur í sér vonina
um að tilteknar aðstæður geti orðið
að einhverju öðru og meira. Eins og
fram kom hér að ofan þá verður ein
lítil hending oft að stórfenglegri
sinfóníu. Allt annað en kyrrstaða
ríkir í þannig sinfóníu.
Umbreyting hins líkamlega
Og ekki bara í sinfóníu. Tökum
Goldberg-tilbrigðin eftir Bach sem
dæmi. Þau hefjast á aríu, sem þó
er ekki sungin eins og vaninn er
með aríur, heldur leikin á sembal.
Engu að síður er um söng að ræða,
hástemmda sönglínu sem í sjálfu
sér er afar fábrotin. En svo taka
við um þrjátíu tilbrigði sem ekki
nokkur leið væri að syngja.
Þar sem söngur er hin náttúru-
lega tónlistartjáning líkamans má
segja að í Goldberg-tilbrigðunum
felist umbreyting hins líkamlega
(aríunnar) í eitthvað sem er handan
líkamans (tilbrigðin).
Við erum meira en hold
Í hnotskurn er þetta trúin á að við
séum meira en hold og blóð. Að við
séum meira en útlit, nafn og kenni-
tala. Að yfirborð og innra eðli sé
ekki endilega það sama. Er það
ekki afneitun á hugmyndafræði
klámsins?
Saga okkar hefur í aldanna rás
einkennst af trúnni á hæfileika
mannsins til að sigrast á umhverf-
inu, auka möguleika sína, verða
meira en hann er í dag. Þessa útóp-
ísku hugsun er að finna í vísindum
og allri list sem stendur undir nafni.
Þar á meðal klassískri tónlist.
Klám í stað ástar
Að hafna slíkri tónlist, eða öllu
heldur hugsuninni sem einkennir
hana, og vilja þess í stað stemn-
ingsmúsík þar sem ekkert gerist, er
að vilja klám í stað ástar. Hvað er
klám annað en það þegar manns-
líkaminn er orðinn að hlut þar sem
innihaldið skiptir engu máli og allt
snýst um yfirborðið?
Þjóðfélagið fyrirlítur klám þegar
það er kynferðislegs eðlis, en það
dýrkar klámið í öðrum myndum.
Við viljum bara yf irborðslega
músík sem er þægileg áheyrnar.
Hún á að vera notalegt eyrnakon-
fekt sem skapar réttu stemninguna.
Líka klassíkin. Tónlist sem krefst
athygli er oftar en ekki afgreidd sem
óskiljanleg.
Þetta eru þungar vangaveltur. En
mikilvægar. Klassísk tónlist er falleg
og hún er innihaldsrík. Hún skiptir
máli. n
Klámvæðing klassískrar tónlistar
Mestu snilldarverk Beethovens tilheyra síðasta tímabilinu í lífi hans.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Í Goldbergtil-
brigðunum feist
umbreyting
hins líkamlega
(aríunnar) í
eitthvað sem
er handan
líkamans (til-
brigðin).
Rithöfundurinn Philip K. Dick
dýrkaði Beethoven.
Á vissan hátt má segja
að klassísk tónlist sé á
sömu hillu og trúin á
Guð. Hún er forn og
grundvallast á alls
konar hefðum.
BÆKUR
Stafavísur. Lestrarnám
í ljóði og söng
Höfundar: Ýmsir hagyrðingar
Ritstjórar: Ragnar Ingi
Aðalsteinsson og Steinunn
Torfadóttir
Myndskreytingar: Dagmar
Agnarsdóttir
Fjöldi síðna: 75
Útgefandi: Bókafélagið –
BF útgáfa
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
Lengi hefur verið vitað að söngur og
ljóðmál eru besta leiðin til þess að
kenna börnum þá list að tala og lesa.
Kynslóð fram af kynslóð hafa Íslend-
ingar numið tungumálið í gegnum
söng og kveðskap, því það er einhver
galdur í „stuðlanna þrískiptu grein“
sem virðist valda því að hugurinn
nemur betur það sem boðað er í
bundnu máli. Þannig eru ljóðmál og
söngur örvun fyrir málþroska barna
og hjálpa vafalaust einnig til við
lestrarnám þeirra. Sá er einmitt til-
gangurinn með útgáfu bókarinnar
Stafavísur sem nýlega kom út. Hug-
myndin að tilurð hennar mun ein-
mitt hafa sprottið upp af umræðum
um „tengsl ljóð- og sönglistar við
hljóðrænt form tungumálsins“ eins
og fram kemur í formálsorðum.
Í bókinni eru vísur og ljóð eftir
ýmsa höfunda um bókstafina og
eiginleika þeirra. Hver vísa kennir
einn staf. Bókin er í fallegu, litríku
broti, skemmtilega myndskreytt og
ljóðunum fylgja einnig gítargrip og
nótnaskrift. Öllu er þessu haganlega
fyrir komið þannig að hver opna er
tileinkuð einum staf, ljóðinu sem
honum tengist og laginu sem syngja
má við það, ásamt fallegri mynd-
skreytingu sem undirstrikar enn
frekar líkindin við hljóð eða form
bókstafsins. Bókin er þess vegna afar
handhæg og efni hennar aðgengilegt
í alla staði.
Bókin er gefin út með styrk
Kvæðamannafélagsins Iðunnar og
Ingunnar Wernersdóttur. Dr. Ragnar
Ingi Aðalsteinsson, bragfræðingur og
Steinunn Torfadóttir, lektor í lestrar-
fræði, ritstýrðu og skrifa formála og
inngang. Höfundar eru ýmis skáld
og þekktir hagyrðingar sem fengu
frjálsar hendur við efnistökin svo
fremi að vísurnar væru rétt gerðar
samkvæmt hefðum og bragfræði.
Í formála segir að vísnasmíðin hafi
svo verið vegin og metin með tilliti
til bragreglna og kennslufræði.
Augljóst er að metnaður hefur
verið lagður í alla gerð bókarinnar,
jafnt inntak sem útlit. Vísurnar
sjálfar eru „gullnáma orðaforða og
málskilnings sem síast inn í vitund
barna gegnum sönginn“ eins og bent
er á í inngangsorðum. Sumar eru við
þekkt lög, við aðrar hafa verið samin
ný lög. Að því verki komu Gylfi
Garðarsson sem einnig sá um að
skrifa nóturnar og hljómsetja lögin,
Bjarni Hafþór Helgason og Björgvin
Þ. Valdimarsson tónskáld – valinn
maður í hverju rúmi. Einn vísna-
höfundanna, Sigurður Sigurðarson,
samdi bæði ljóð og lag.
Á baksíðu segir að bókin sé gerð
í því augnamiðið að „örva lestrar-
áhuga barna og létta þeim fyrstu
skrefin á brautinni“. Raunar gerir
bókin f leirum léttara fyrir en
börnunum, því að ef farið er inn á
youtube.com og sleginn inn titill
bókarinnar má heyra lögin sungin af
Margréti Eir og leikin af Pétri Valgarð
Péturssyni á gítar og Þóri Úlfarssyni
á píanó. Er því auðvelt fyrir kennara
og uppalendur að nálgast sönglögin
ef nótnaskrift nægir ekki.
„Lengi býr að fyrstu gerð“ segir
máltækið. Þess vegna er þakkarvert
þegar metnaður og alúð eru lögð við
það sem yngstu kynslóðinni stendur
til boða. Hér hefur fjöldi listamanna
lagt sitt af mörkum til að skapa nýtt
og spennandi efni. Afraksturinn ber
þess ódulin merki, því hér hefur vel
tekist til. n
NIÐURSTAÐA: Falleg og vönduð
bók sem leiðir börn á vit bóklest-
urs með ljóðum og söng.
Stendur ennþá stafrófið frá a-ö
24 Menning 2. september 2021 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐMENNING FRÉTTABLAÐIÐ 2. september 2021 FIMMTUDAGUR