Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.04.2021, Qupperneq 29
skammaður fyrir varnarleik í bumbu-
boltanum.
Alltént var reglan ekki ófrávíkj-
anlegri en svo að afgreiðslumaðurinn
skipti um skoðun og leysti Loverboy
aftur til sín og lét mig hafa snælduna.
Gott ef hann borgaði mér ekki á milli
líka. Sennilega hefur hann séð sæng
sína upp reidda, ella hefði ég verið lík-
legur til að standa við borðið hjá hon-
um fram að lokun – og jafnvel lengur.
Að því búnu rauk ég þráðbeint út
að Nætursölu og náði vagninum aftur
í Þorpið. Og svei mér ef þríburapabb-
inn lét hann ekki svífa á bakaleiðinni!
Ég á þessa merku hljómsnældu
enn og geymi hana á góðum stað á
sveitasetri mínu – við hliðina á Tony
Adams-treyjunni og gítarnögl sem
Rob Trujillo notaði í Egilshöllinni
sumarið 2004.
Hvers vegna er ég að rifja þetta
upp núna? spyrjið þið ykkur vænt-
anlega. Jú, fjörutíu ár eru um helgina
liðin frá því Eddie, Old Bob, Dick and
Gary með Tenpole Tudor kom út. Ef-
laust hefur tekið einhverjar vikur eða
mánuði fyrir frægð þeirra að skola á
land á Akureyri, í öllu falli sé ég nú að
Get Lucky með Loverboy kom ekki
út fyrr en í október sama ár. Það þýð-
ir að heimsókn mín í plötubúðina hef-
ur ekki átt sér stað fyrr en í nóv-
ember eða desember 1981. Að
minnsta kosti leið ekki á löngu þar til
ég eignaðist aðra breiðskífu Tudor-
anna, Let the Four Winds Blow, en
hún kom út í nóvember 1981. Hana
keypti ég í vínylplötuformi og skipti í
það sinnið við hljómdeild KEA í
Hafnarstrætinu.
Brennt barn forðast eldinn.
Wikimedia
Tenpole Tudor þegar sem mestur völlur var á rokkabillípönkbandinu góða árið
1981. F.v. Gary Long, Edward Tudor-Pole, Bob Kingston og Dick Crippen.
18.4. 2021 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29
AÐLÖGUN Fyrst var það skáld-
saga, síðan bíómynd með Harrison
Ford og nú er The Mosquito Coast
orðin að sjónvarpsþætti. Justin
Theroux fer með aðalhlutverkið en
hann er einmitt bróðursonur höf-
undar skáldsögunnar, Pauls Ther-
oux. Hermt er af uppfinningamann-
inum Allie Fox sem er á flótta
undan yfirvöldum í Bandaríkjunum
og sest að í Mexíkó ásamt eigin-
konu sinni, Margot, sem Melissa
George leikur. Þátturinn hefur
göngu sína á Apple TV+ 30. apríl.
The Mosquito Coast á skjáinn
Melissa George leikur í þættinum.
AFP
BÓKSALA 7.-13. APRÍL
Listinn er tekinn saman af Eymundsson
1
Handbók fyrir Ofurhetjur 6
Elias/AgnesVahlund
2
Herra Fnykur
David Walliams
3
Barnið í garðinum
Sævar Þór Jónsson/
Lárus Sigurður Lárusson
4
Bókasafnsráðgátan
Martin Widmark
5
Stríð og kliður
Sverrir Norland
6
Í leyndri gröf
Viveca Sten
7
Rím og roms
Þórarinn Eldjárn/Sigrún Eldjárn
8
Eldarnir
Sigríður Hagalín Björnsdóttir
9
Oreo fer í skólann
Sylvia Erla Melsted
10
Undir 1000 kr. fyrir tvo
Áslaug Björg Harðardóttir
1
Eldarnir
Sigríður Hagalín Björnsdóttir
2
Aprílsólarkuldi
Elísabet Jökulsdóttir
3
Bróðir
Halldór Armand
4
Aðferðir til að lifa af
Guðrún Eva Mínervudóttir
5
Dvergurinn frá Normandí
Lars-Henrik Olsen
6
Dýralíf
Auður Ava Ólafsdóttir
7
Hið heilaga orð
Sigríður Hagalín Björnsdóttir
8
Snerting
Ólafur Jóhann Ólafsson
9
Bókasafn föður míns
Ragnar Helgi Ólafsson
10
Dauðabókin
Stefán Máni
Allar bækur
Innbundin skáldverk
Eins og svo oft áður er ég með
nokkrar bækur í vinnslu, sumar á
pappír en líka hljóðbækur. Ég er
nýbyrjuð á hljóðbókinni The Rose
Code eftir Kate
Quinn. Fyrri
bækur hennar
The Alice Net-
work og The
Huntress héldu
mér fram á síð-
ustu blaðsíðu og
því beið ég
spennt eftir The
Rose Code. Skáldsögur Kate
Quinn gerast í síðari heimsstyrj-
öld og í þessari bók erum við
stödd í Bletchley Park. Þar eru
þrjár ólíkar konur að hefja störf
við að leysa dulkóðun í von um
að hjálpa til við að vinna stríðið
og um leið breyta lífi sínu til hins
betra.
Ég er langt komin með Snert-
ingu eftir Ólaf Jó-
hann Ólafsson og
tími eiginlega
ekki að klára
hana alveg strax.
Ólafur Jóhann er
einn af mínum
uppáhalds-
höfundum og eins
og svo oft áður
tekst honum að fara með mig í
ferðalag endurminninga og upp-
gjörs. Í þetta sinn er tebolla pakk-
að í töskuna og
ferðinni heitið til
Japan.
Talandi um Jap-
an, þá las ég ný-
lega stutta jap-
anska skáldsögu í
anda Allt í
himnalagi hjá
Eleanor Oli-
phant. Bókin heitir Convenience
Store Woman og fjallar um Keiko
Furukura, 36 ára konu sem hefur
frá bernsku átt erfitt með að
skilja reglur samfélagsins. Þegar
hún var 18 ára
hóf hún störf í
matvöruverslun
og fannst hún
loksins hafa
fundið sína hillu.
Þegar hún sýnir
engin merki um
að stefna á há-
leitari markmið
fer fjölskylda hennar og kunn-
ingjar að ýta á eftir því að hún
„haldi áfram með líf sitt“. Keiko
gerir sitt besta til þess að uppfylla
samfélagslegar kröfur, en þó á
sínum eigin forsendum og út-
færslan verður vægast sagt
skrautleg.
Síðasta bókin sem ég ætla að
nefna er ekki skáldsaga, heldur er
hún fræðileg og
heitir Invisible
Women: Data
Bias in a World
Designed for
Men. Þar fjallar
Caroline Criado
Perez um ýmis
viðfangsefni, allt
frá almenn-
ingsklósettum til snjómoksturs
og skoðar þau með kynjagler-
augum. Hún fjallar um það
hvernig það gleymist oft að skoða
kynjabreytuna og að áhrifin verði
þau að það halli gjarnan á konur
þar sem karlar verði viðmiðið en
konur frávik. Þetta er áhugaverð
bók en ekki fljótlesin, ég hef bara
verið að lesa einn kafla í einu.
TINNA ÞURÍÐUR ER AÐ LESA
Ferðalag endurminninga
Tinna Þuríður
Sigurðardóttir
er tölvunar-
fræðingur.
Tenpole Tudor var stofnuð í
Bretlandi árið 1977 af söngv-
aranum Edward Tudor-Pole,
gítarleikaranum Bob Kings-
ton, bassaleikarnum Dick
Crippen og trymblinum Gary
Long. Þar af leiðir nafn fyrstu
breiðskífunnar, Eddie, Old
Bob, Dick and Gary, sem er
tilbrigði við gamalt stef í
ensku máli, any old Tom, Dick
or Harry. Fimmti maðurinn
var raunar genginn í bandið
þegar platan kom út. Sá heitir
því ágæta nafni Munch Uni-
verse. Lög eins og Swords of a
Thousand Men og Wünderbar náðu bærilegu flugi en skömmu eftir
næstu plötu, Let the Four Winds Blow, sem einnig kom út 1981 og
innihélt smellinn Throwing My Baby Out With the Bathwater,
leystist bandið upp. Tudor-Pole, sem er svo sem nafnið gefur til
kynna af merkum aðalsættum, einbeitti sér að leiklist lengi eftir
það en hefur í seinni tíð dustað rykið af Tenpole Tudor. Er þó eini
upprunalegi meðlimurinn í bandinu í dag.
Frægðarsólin skein ekki lengi
Edward Tudor-Pole er karl í krapinu.
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík, sími 588 0200, eirvik.is
samlegt ka
nýmalað,
engin h lki.
á
y
–