Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.04.2021, Blaðsíða 32
SUNNUDAGUR 18. APRÍL 2021
AVANA model 2570
L 224 cm Leður ct. 15 Verð 509.000,-
L 244 cm Leður ct. 15 Verð 529.000,-
LEUCA model 3186
L 167 cm Leður ct. 15 Verð 369.000,-
L 207 cm Leður ct. 15 Verð 419.000,-
ESTRO model 3042
L 164cm Leður ct. 10 Verð 359.000,-
L 198 cm Leður ct. 10 Verð 399.000,-
ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla
LEVANTE model 3187
L 204 cm Leður ct. 25 Verð 459.000,-
L 224 cm Leður ct. 25 Verð 479.000,-
CASA býður upp á vaxtalausar raðgreiðslur
(Visa / Euro) í allt að 6 mánuði.
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
Opið virka daga 10-18, laugardaga 11-15
ETOILE model 2623
L 200 cm Leður ct. 25 Verð 549.000,-
L 230 cm Leður ct. 25 Verð 599.000,-
„Ég hef átt langar nætur og góðar nætur, einhverja slæma daga
og helling af góðum dögum og á þessum tíma hef ég breyst úr
kórdreng í rokksöngvara og nú er ég búinn að skrifa bókarlufsu
um það,“ segir Brian Johnson, söngvari bárujárnsbandsins AC/
DC til ríflega fjörutíu ára, í yfirlýsingu. Endurminningar hans,
The Lives of Brian, koma út í október hjá Penguin Michael Jo-
seph í Bretlandi og Dey Street Books í Bandaríkjunum.
„Endurminningar Brians lýsa ótrúlegu andartaki í rokksög-
unni. Allir sem vilja átta sig á rótum Brians og tækifærinu sem
hann fékk þegar hann gekk til liðs við AC/DC eiga ógleyman-
lega þeysireið fyrir höndum,“ segir Mauro DiPreta, aðalritstjóri
Dey Street Books. Johnson vann sem verkamaður og var hætt-
ur afskiptum af tónlist þegar Bon Scott, söngvari AC/DC, lést
með sviplegum hætti árið 1980 og hnippt var í Johnson. Back in
Black var eldskírnin, ein mest selda plata allra tíma.
Brian Johnson ásamt
Malcolm og Angus Yo-
ung á tónleikum með
AC/DC árið 1984.
AFP
Kórdrengur varð rokkari
Brian Johnson ásamt eiginkonu sinni Brendu fyrir
þremur árum. Hann er orðinn 73 ára gamall.
AFP
Brian Johnson, söngvari AC/DC, sendir
frá sér endurminningar sínar í haust.
„Það var mikið um að vera við
einn aðalinnganginn í stórhýsi
utanríkisráðuneytisins um hálf
fjögur leytið í dag. – Kennedy for-
seti hafði boðað til blaðamanna-
fundar kl. 4 og fréttamenn blaða,
útvarps- og sjónvarpsstöðva drifu
að.“
Þannig komst heimild-
armaður Morgunblaðsins í
Washington, Haraldur J. Hamar,
að orði í blaðinu 18. apríl 1961.
„Slíkir dagar eru alltaf stórir
hjá fréttamönnum hér í borg,
sérstaklega upp á síðkastið, eftir
að Kennedy tók við forseta-
embættinu. Það orð fór af Eisen-
hower, að fundir hans með
blaðamönnum hefðu stundum
verið leiðinlegir. Kennedy hefur
hins vegar haft lag á því að gera
fundina mjög spennandi,“ sagði
Haraldur.
Hann hermdi af fundinum í
ítarlegu máli og hafði þetta um
framgöngu forsetans að segja:
„Það var furðulegt að sjá og
heyra hversu fljótt og vel forset-
inn svaraði oft spurningunum.
Hann hikaði aldrei, allan tímann.
Hann var mjög fljótmæltur,
sagði margt með fáum orðum.
Og jafnvel þegar spurt var um
atburði, sem gerzt höfðu fyrir
fáeinum klukkustundum – þá
svaraði hann eins og hann hefði
æft sig á svarinu í hálfan mánuð.
Kennedy var alvarlegur á svip
allan tímann, honum stökk ekki
bros á vör enda þótt sum svara
hans vektu kátínu og hlátur
meðal áheyrenda. Hann fitlaði
stöku sinnum við jakkahnapp-
ana, stóð annars hreyfingarlaus
þær 30 mínútur, sem fundurinn
stóð.“
GAMLA FRÉTTIN
Á blaðamannafundi hjá Kennedy
John F. Kennedy Bandaríkjaforseti.
AFP
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Stanley Tucci,
leikari
Seth Godin,
frumkvöðull og rithöfundur
Eiríkur Hjálmarsson,
sérfræðingur hjá Orkuveitunni