Morgunblaðið - 05.05.2021, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. MAÍ 2021
Skúli Halldórsson
Ragnhildur Þrastardóttir
Ómar Friðriksson
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðis-
ráðherra greindi frá því eftir ríkis-
stjórnarfund í gær að ákveðið hefði
verið að framlengja gildistíma reglu-
gerða um takmarkanir á samkomum
og skólastarfi um eina viku, en að
óbreyttu áttu þær að gilda til mið-
nættis í kvöld. Ráðherra sagði þetta
vera í samræmi við tillögu Þórólfs
Guðnasonar sóttvarnalæknis þessa
efnis, en í minnisblaði hans til ráð-
herra segir hann allar líkur á því að
forsendur verði fyrir því að ráðast í
afléttingar á sóttvarnaráðstöfunum
á næstu vikum.
Sex greindust með kórónuveiru-
smit í fyrradag innanlands og var
einn þeirra utan sóttkvíar við grein-
ingu. Þá greindust tveir með smit á
landamærunum.
Nýta reynslu úr þriðju bylgju
„Við erum að komast út úr þessum
nokkuð mörgu hópsmitum sem hafa
verið í gangi hér undanfarið, og er-
um samt enn að greina fólk utan
sóttkvíar, eins og í gær til dæmis. Ég
held það sé bara ráðlegt að fara að-
eins rólega í þetta, heldur en að fara
af stað núna og fá þetta aftur í bakið.
Það er reynslan okkar af því
hvernig við fórum út úr þriðju bylgj-
unni, og ég held að við nýtum okkur
það,“ sagði Þórólfur í samtali í gær.
Spurður hvort gott rými verði fyr-
ir afléttingar eftir viku ef þróun
smita heldur áfram eins og hún er
núna tekur Þórólfur undir það. „Ef
þetta gengur bara mjög vel og ef við
sjáum að þetta heldur svona áfram,
þó að við höfum fundið einn í gær þá
er það ekkert voða mikið. Ef þetta
heldur svona lítið áfram þá eigum við
að geta farið í afléttingar.
Við erum búin að koma þessum
landamæramálum á og þá eigum við
að hafa allar forsendur til að geta
slakað meira á hér innanlands. Ég
held að það gangi bara eftir og við
eigum að vera tilbúin í það.“
Svandís Svavarsdóttir sagði við
fjölmiðla eftir ríkisstjórnarfundinn í
gær að hún ætti von á því að hægt
verði að gera alvörubreytingar á
sóttvarnareglum næst, ef þróunin
verður áfram eins og nú er, vonandi
viðamiklar. Að sögn hennar bendir
allt til að búið verði að bólusetja vel
yfir 40% fyrir vikulok. Eins gangi vel
á landamærunum og verið að ná tök-
unum á ástandinu innanlands.
Í tilkynningu heilbrigðisráðuneyt-
isins í gær kemur fram að í lok síð-
ustu viku voru um 110.200 einstak-
lingar búnir að fá a.m.k. einn
bóluefnaskammt og 36.380 einstak-
lingar voru fullbólusettir. Í þessari
viku verða um 40.000 einstaklingar
bólusettir og er það langstærsta
bólusetningarvikan til þessa.
Afléttingaráætlun stjórnvalda er í
fjórum skrefum og tekur mið af
framgangi bólusetningar. Áætlunin
er sett fram með hliðsjón af því hve
hratt gengur að bólusetja lands-
menn og er jafnframt birt með fyr-
irvara um mat sóttvarnalæknis á að-
stæðum og stöðu faraldursins á
hverjum tíma.
Fyrsta skref afléttingar hefur
þegar verið tekið með tilslökunum á
samkomutakmörkunum og í skóla-
starfi sem tóku gildi 15. apríl síðast-
liðinn. Þá voru fjöldamörk aukin úr
10 í 20 manns, opnað var fyrir starf-
semi sundlauga, líkamsræktar-
stöðva o.fl. með takmörkunum.
Landlæknir fékk bóluefni
Alma Möller landlæknir var ein
þeirra 450 sem fengu bólusetningu
klukkan tíu í gærmorgun en bólu-
setja átti allt að tíu þúsund manns í
Laugardalshöll í gærdag. „Mér líður
bara frábærlega. Tilfinningin er að-
allega gleði,“ sagði Alma í samtali
við mbl.is eftir að hafa fengið bólu-
setninguna. „Það svífur hreinlega
gleði yfir höllinni. Þetta er eins og að
fara að kjósa – nema miklu skemmti-
legra,“ sagði hún.
„Þetta er frábært skipulag og ég
er stolt af heilsugæslunni og öllu
starfsfólkinu þarna. Það var ekki síð-
ur gaman að verða vitni að því en að
þiggja sjálfa sprautuna,“ sagði hún.
Alma fékk bóluefni lyfjaframleið-
andans Pfizer og verður því boðuð í
seinni bólusetningu að þremur vik-
um liðnum.
„Ég hlakka líka til þess dags. Það
er gaman að vera í röðinni og tala við
fólk. Það eru allir glaðir og þakk-
látir, meðvitaðir um að þeir séu að
gera þetta fyrir sig en líka fyrir aðra.
Ég vil hvetja alla sem fá boð til að
þiggja bólusetningu,“ sagði land-
læknir.
Landlæknisembætti Danmerkur
ákvað í fyrradag að þar í landi yrði
bóluefni lyfjaframleiðandans Jans-
sen ekki notað við kórónuveirunni.
Bóluefnið er komið í notkun hér á
landi og verða sex þúsund manns
bólusettir með efninu í Laugardals-
höll í dag.
Sóttvarnareglur framlengdar um viku
- Stefnir í afléttingar eftir viku - Sex smit greindust innanlands - 40 þúsund bólusettir í vikunni
Morgunblaðið/Eggert
Bólusetning Alma Möller landlæknir fékk bóluefni lyfjaframleiðandans Pfizer í Laugardalshöll í gærmorgun.
Bólusetningar við kórónuveiru
Frá 29. des. 2020 til 2. maí 2021 og áætlaður fjöldi 3. til 9. maí
200.000
150.000
100.000
50.000
U
p
p
fæ
rt
3
.m
aí
des. jan. feb. mars apríl maí
Um 40.000 verða
bólusettir í þessari viku
Fjöldi
skammta
110.199 einstaklingarhafa fengið að
minnsta kosti einn skammt af bóluefni
Þar af eru
36.376 einstaklingarfullbólusettir
Heimild: Covid.is
Smiðjuvegi 34 • gul gata Kópavogi • biljofur@biljofur.is
Viðgerðir // Bilanagreining // Varahlutir // Smurþjónusta
544 5151tímapantanir
Rótgróið fyrirtæki, starfrækt frá 1992
Sérhæfð þjónusta fyrir
Allar almennar BÍLAVIÐGERÐIR
Bíljöfur ehf er stoltur aðili að kynna
aðgerðir ríkisstjórnarinnar
ALLIR VINNA sem felur í sér
endurgreiðslu á VSK
af vinnulið einkabifreiða
Förum yfir bifreiðar fyrir aðalskoðun/endurskoðun
og förum með bifreiðina í skoðun
Þjónustuaðilar IB Selfossi
Vefverslun: www.donna.is
Erum nú á Facebook: donna ehf
Sími 555 3100 www.donna.is
Honeywell
gæða lofthreinsitæki
Hreint loft - betri heilsa
Loftmengun er hættuleg heilsu
og lífsgæðum. Honeywell loft-
hreinsitæki eru góð viðmyglu-
gróum, bakteríum, frjókornum,
svifryki, lykt og fjarlægir allt
að 99,97% af ofnæmisvaldandi
efnum.
Verð kr.
37.560
Verð kr.
16.890
Verð kr.
59.100
Kristján Þór Júl-
íusson, sjávar-
útvegs- og land-
búnaðarráðherra,
undirritaði í gær
reglugerð sem
heimilar bændum
að slátra sauðfé og
geitum á búunum
sjálfum og dreifa á
markaði. Slík
framleiðsla og dreifing hefur hing-
að til verið óheimil. Í reglugerðinni
er kveðið á um að dýralæknar sinni
heilbrigðisskoðunum bæði fyrir og
eftir slátrun og mun kostnaður við
það greiðast úr ríkissjóði.
Kristján Þór segir í aðsendri
grein, sem birtist í dag að leitað hafi
verið leiða í tvö ár til þess að heim-
ila þessa framleiðslu á þann veg að
skilyrði um matvælaöryggi séu upp-
fyllt á sama tíma og gætt sé að
dýravelferð og dýraheilbrigði. »13
Heimilar bændum
að slátra heima
Kristján Þór
Júlíusson
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Kristján Þór Júlíusson mun nú í dag
kynna nýtt umræðuskjal um land-
búnaðarstefnu. Þar er hugtakið
landbúnaður víkkað út svo það taki
t.d. til kolefnisbindingar í jörðu, en
eins er rík áhersla lögð á fæðu- og
matvælaöryggi. Landnotkun og
sjálfbær landnýting fá þar mikið
rými, sem og líffræðilegur fjölbreyti-
leiki og velferð dýra. Þá er vikið að
menntun, rannsóknum, ráðgjöf og
nýsköpun, en einnig að nýjum tæki-
færum, sem fylgt geta fjórðu iðn-
byltingunni svonefndu.
Sérstaklega er fjallað um fyrir-
komulag opinbers stuðnings við
landbúnað og lagt til að áherslum í
styrkjakerfi landbúnaðar verði
breytt. Annars vegar stutt við bú-
setu í sveitum óháð því hvaða fram-
leiðslugrein er stunduð, en hins veg-
ar lögð aukin áhersla á þátt
jarðræktar og annarrar landnýting-
ar og landvörslu, grundvallarþætti í
landbúnaðarstefnunni auk mark-
miða í loftslagsmálum. Jafnframt
verði bændum og afurðastöðvum
auðveldað að bregðast við breyttum
kröfum neytenda og markaðarins.
Bent er á að stuðningur, sem að
mestu eða öllu leyti er tengdur
ákveðnum búgreinum og afurðum,
kunni að vinna gegn því að landbún-
aður aðlagist breyttum aðstæðum.
Umræðuskjalið ber heitið „Rækt-
um Ísland!“, en í því felst hvatning
vegna skyldu þjóðarinnar við landið
og horft til landbúnaðar í víðum
skilningi, þar á meðal vegna lofts-
lagsmála, sjálfbærni og nýtingar ein-
stakra auðlinda, en jafnframt hvern-
ig megi þróa hann til þess að skapa
bændum viðunandi afkomu.
Þau Björn Bjarnason og Hlédís H.
Sveinsdóttur voru í verkefnisstjórn
um landbúnaðarstefnu fyrir Ísland,
og mótuðu þetta umræðuskjal, frem-
ur en fastmótaðar tillögur til beinnar
lögfestingar á markmiðum landbún-
aðarstefnu. Þar er einnig að finna
samantekið mikið af ítarefni og
gögnum um landbúnað.
Breytt fyrirkomulag opinbers stuðnings
- Kristján Þór Júlíusson kynnir umræðuskjal til mótunar nýrrar landbúnaðarstefnu á 21. öldinni