Morgunblaðið - 05.05.2021, Side 8

Morgunblaðið - 05.05.2021, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. MAÍ 2021 Páll Vilhjálmsson gerir að um-talsefni tilþrif nýs valdamanns í félagi blaðamanna, eftir að op- inberir starfsmenn komust þar í forystu. Yfirskrift hans er sláandi: „RÚV-tilræði gegn Morgun- blaðinu.“ - - - FréttamaðurRÚV, Sigríður Dögg Auð- unsdóttir, beið ekki boðanna þegar hún hlaut kjör sem for- maður Blaða- mannafélags Ís- lands. - - - Fyrsta verk nýkjörins formannsvar að vega að lífsafkomu blaðamanna Morgunblaðsins vegna þess að blaðið birti auglýsingu frá Samherja. - - - RÚV, vitanlega, slær málinu upp.Krafa Sigríðar Daggar, og þar með Blaðamannafélagsins, er að fjölmiðlar birti ekki auglýsingar sem eru í andstöðu við hags- munahópinn í Efstaleiti. - - - RÚV er ríkisrekinn fjölmiðill ogvill enga samkeppni, hvorki í ritstjórnarefni né á auglýs- ingamarkaði. - - - Einn fjölmiðill, einn auglýs-ingamarkaður – og enginn má gagnrýna Helgan Seljan Sann- leika.“ - - - Þann 1. maí, af öllum dögum,krafðist formaðurinn skýringa af starfsmönnum Árvakurs (!) sem hann á enga kröfu til. Ekki er vitað til að „RÚV“ leiti samþykkis auglýs- ingadeildar blaðsins um birtingu auglýsinga. Sigríður formaður hef- ur svo boðað yfirmenn blaðsins á sinn fund! Það gæti orðið bið á því. Sigríður Dögg Auðunsdóttir Hratt stígur titill til höfuðs STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Heildarkostnaður opinberra aðila við girðingar á árabilinu 2015 til 2020 nam 2.149 milljónum króna. Það ger- ir um 358 milljónir á ári og má ætla að þessi kostnaður sé vanáætluður frekar en hitt. Þetta kemur fram í skýrslu starfs- hóps um umbætur og hagræðingu vegna girðinga í eigu hins opinbera til umhverfis- og auðlindaráðherra. Í skýrslunni segir að starfshópurinn telji mikilvægt að tengja saman ólíka hagsmuni, t.d. sauðfjárbúskap, land- vernd, ferðaþjónustu, umferðar- öryggi og skógrækt. Enn fremur geti falist tækifæri í því að sameinast um að girða ákveðin landsvæði af til beitar en annars staðar geti tækifæri falist í því að banna lausagöngu búfjár, en styrkja eigendur búfjár jafnframt til þess að girða sitt búfé af. Starfshópurinn leggur til að unn- inn verði sameiginlegur gagna- grunnur opinberra aðila um girðing- ar og honum deilt í vefsjá. Tekið verði saman eignasafn opinberra að- ila, farið verði yfir ástand girðinga og metið hvort þær eru í nægilega góðu ástandi til að sinna vörslugildi. Þá sé þörf á að samræma og endur- skoða lög og reglugerðir er gilda um girðingar, svo tæpt sé á því allra helsta í tillögunum. Um 358 milljónir á ári í girðingar - Skýrsla um girðingar í eigu hins opin- bera - Tækifæri víða en úrbóta þörf Morgunblaðið/Eggert Girðingavinna Kortleggja þarf girðingar í eigu hins opinbera. Varðberg heldur ráðstefnu í dag í tilefni 70 ára afmælis varnarsamn- ings Íslands og Bandaríkjanna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá samtökunum. Ráðstefnan verður milli hádegis og klukkan eitt og streymt á vef Varðbergs og á facebook-síðu sam- takanna, þar sem einnig er hægt að skrá sig á ráðstefnuna. Ráðstefnan er samstarfsverkefni Varðbergs, utanríkisráðuneytisins, sendiráðs Bandaríkjanna á Íslandi og Morgunblaðsins. Hún er byggð upp á stuttum ávörpum og viðtölum. Meðal þátttakenda í viðburðinum eru Katrín Jakobsdóttir forsætis- ráðherra, Bjarni Benediktsson fjár- málaráðherra, Guðlaugur Þór Þórð- arson utanríkisráðherra og sagn- fræðingurinn Þór Whitehead. Einnig munu forstöðumaður banda- ríska sendiráðsins á Íslandi, Harry Kamian, og ritari þjóðaröryggis- ráðsins, Þórunn J. Hafstein, taka þátt í dagskránni. Varðberg – samtök um vestræna samvinnu og alþjóðamál voru stofn- uð í desembermánuði árið 2010 með samruna tveggja eldri félaga. Nú- verandi formaður samtakanna er al- þingismaðurinn Njáll Trausti Frið- bertsson. Varnarsamningur Íslands og Bandaríkjanna var undirritaður hinn 5. maí 1951 af þáverandi utan- ríkisráðherra Íslands, Bjarna Bene- diktssyni, og sendiherra Bandaríkj- anna á Íslandi, Edward Lawson. Samningurinn veitti bandaríska hernum afnot af svæði við Keflavík- urflugvöll þar sem hann byggði Keflavíkurstöðina en sú stöð var yfirgefin árið 2006. Ráðstefna í tilefni varnarsamnings - 70 ár frá undir- ritun varnarsamn- ings við Bandaríkin Varnarlið Sjötíu ár eru liðin í dag frá undirritun varnarsamningsins. Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170 Kjólar • Pils • Vesti • Blússur Bolir • Peysur • Buxur Verið velkomin Nýjar sumarvörur Snyrtivörumerkin okkar eru: M a d e i n I c e l a n d

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.