Morgunblaðið - 05.05.2021, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 05.05.2021, Qupperneq 15
mig í einkatíma þegar ég var ekki nema 10 ára og lét mig sitja í kjölt- unni á sér. Þótt ég skildi ekki hvað á gekk sagði ég frá því þegar heim kom og mamma hringdi í skóla- stjórann og einkatímarnir urðu ekki fleiri. Svo var atvik í útilegu hjá afar vinsælu trúarfélagi sem alþekkt var af fjórum bókstöfum. Síðasta kvöldið kom einn hinna fullorðnu inn í tjaldið hjá mér og félaga mínum. Hann vildi bara bjóða góða nótt sagði hann, en smeygði hendinni ofan í svefnpok- ana og vildi káfa á lærunum á okk- ur. Við sluppum með skrekkinn en fórum ekki í fleiri útilegur. Lífið hafði sinn gang og allir uxu úr grasi og fyrr eða síðar kom eldskírnin; þegar tækifærið gafst og hin langþráða kynlífsopinberun gerðist. Auðvitað var það í kolniða- myrkri og maður hefði eins vel getað verið blindur. Þrátt fyrir sárgrætilega fávisku og fum og fát tókst framkvæmdin að mestu leyti. Því má samt ekki neita að sú hugs- un læddist að manni eftir á að þetta hefði ekki verið eins merki- legt og maður hafði búist við. En áríðandi áfangi í lífinu var það vissulega og nú var maður orðinn maður með mönnum. Þótt flestir af minni kynslóð hefðu liðið næstum algjöran skort á kynfræðslu tókst miklum meiri- hluta samferðamanna minna og -kvenna að finna sér lífsförunaut og uppfylla væntingar með því að eignast börn og buru. Ekki fer sögum af því hve mikil ánægjan var af kynlífinu, en við verðum að reikna með því að hún hafi bara verið svona upp og niður. Mjög fá- ir vilja úttala sig um það. En nú er öldin önnur maður minn. Allt úir og grúir af myndum af hálf- og allsberu fólki. Og á þeim myndum hefir ekkert verið þurrkað út. Allir strákar eiga snjallsíma og önnur tól þar sem þeir geta horft á argasta klám hve- nær sem þeir vilja. Svoleiðis klám heitir „pornography“ á ensku. Nú- tímastrákar á Íslandi þurfa ekki að hlaupa út á Nes til að sjá graðfol- ann hans Jóns athafna sig. Allt slíkt, og miklu meira, er í snjall- símanum í rassvasanum. Þrátt fyrir að kynferðis- og klámmálin ríði húsum á Fróni les ég í Mogga að háværar raddir séu um það að unglingana vanti kyn- fræðslu. Einnig sé ég að svokall- aðar kynjakonur, sem sérmennt- aðar eru í kynferðismálum, hafa verið að láta til sín taka. Koma þær fram í fjölmiðlum og ræða þar opinskátt hluti og líffæri sem hing- að til hafa verið á huldu. Vonandi ber herferð þeirra árangur og unga Ísland verður nú sprenglært í aðferðum og unaði kynlífsins. Samt kann ég nú bara betur við fávisku og feimni liðinna tíma. Það er líka eitthvað svo fallegt við sak- leysið. Þá minnist ég sögunnar af Gvendi og Siggu, sem voru kær- ustupar og ætluðu nú að ganga í það allra heilagasta. Þau óku til fógeta og hann pússaði þau saman. Á leiðinni heim í Kópavoginn lagði Gvendur höndina á hné Siggu. Hún kímdi og sagði: „Þér er nú óhætt að fara lengra, Siggi minn, fyrst við erum nú gift.“ Og hann ók alla leið til Hafnarfjarðar. Ekki er hægt að enda þetta spjall án þess að minna á að kyn- hvötin er afar sterkt og ráðandi afl í lífi mannsins. Og mörgum hefir það gert slæmar skráveifur. Ein- hvers staðar stendur skrifað: Þótt náttúran sé lamin með lurki þá leitar hún út um síðir. Höfundur er fyrrverandi fisksali og ræðismaður í Ameríku. floice9@aol.com UMRÆÐAN 15 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. MAÍ 2021 Hafnarfjarðarbær tók Evolytes- námskerfið í notkun nú í vor í öllum grunnskólum bæj- arfélagsins. Evolytes- kerfið er byggt á leið- andi rannsóknum í sálfræði sem gerir gerir það að verkum að nemendur geta há- markað árangur sinn í stærðfræði með notkun kerfisins. Með innleiðingu Evolytes ætlar Hafnarfjarðarbær að efla stærðfræðikennslu fyrir bæði kennara og nemendur. Evolytes-námskerfið er einstakt námskerfi sem samtvinnar skrif- legar námsbækur, námsleik fyrir spjaldtölvur og upplýsingakerfi til að hámarka árangur nemenda. Námskerfið aðlagar sig í rauntíma getu nemenda og veit- ir þeim einstaklings- miðað námsefni út frá stöðu þeirra í náms- efninu. Einstök nálg- un námskerfisins leið- ir til þess að nemendur læra að meðaltali fjórfalt hraðar, eru jákvæðari gagnvart námsefninu og standa sig betur í skóla. Nemendur með undirliggjandi námsörðugleika hafa sýnt ótrúlega framför með notkun námskerf- isins. Þeir nemendur sýna hlut- fallslega mestan ávinning þar sem þeir læra allt að tólffalt hraðar með notkun námskerfisins. Þessir nemendur eiga oft erfitt með að fóta sig í skólakerfinu en með nálgun Evolytes-námskerfisins, sem vekur áhuga nemenda á stærðfræði í gegnum leiðandi að- ferðir í styrkingarháttum, er hægt að gefa þessum nemendum tæki- færi á að blómstra. Hafnarfjörður er einnig að vald- efla kennara með upptöku kerf- isins þar sem þeir fá möguleika á að nýta gagnadrifin tól til að fá rauntímayfirsýn yfir framför nem- enda og framþróun þeirra í náms- efninu. Kennarar hafa rauntíma- yfirsýn yfir stöðu nemenda, styrkleika þeirra og veikleika í upplýsingakerfi Evolytes, sem gefur kennurum tækifæri á að bregðast hratt við þeim þrösk- uldum sem nemendur lenda á í náminu, auk þess sem það sparar kennurum ómældan tíma sem ann- ars færi í yfirferð og námsmat. „Ég hef verið að bíða eftir náms- kerfi á borð við ykkar í mörg ár,“ sagði Hildur, verkefnastjóri upp- lýsingatækni í Setbergsskóla, um Evolytes-námskerfið. Innleiðing námskerfisins inn í kennslu hefur gengið vonum fram- ar. Kennarar hafa lýst því hvað það er gaman að sjá hvað nem- endur eru spenntir fyrir því að læra í Evolytes. Hildur bætti við: „Nemendur sem eru byrjaðir að nota Evolytes gleyma sér í nám- inu. Þeir reikna mikið magn af dæmum og hvatinn er spennandi dýr sem þurfa að vaxa og dafna. Þau fá þar af leiðandi þá þjálfun sem þau hefðu ekki fengið og okk- ar trú er sú að við munum sjá aukinn námsárangur hjá nem- endum sem notast við Evolytes.“ Tækniþróunarsjóður Íslands veitti verkefninu styrk til að þróa Evolytes-námskerfið, sem er nú notað af skólum um land allt. Mikil tækifæri eru í mennta- tækni og hefur faraldurinn stór- aukið þörfina á lausnum á borð við Evolytes. Við hjá Evolytes erum mjög spennt fyrir vexti fyrir- tækisins á alþjóðlegum vettvangi þar sem tímasetningin er kjörin, en við hófum nýverið sölu á Eng- landi og í Frakklandi. Hafnarfjörður tekur upp íslenska menntatækni Mathieu Gretti Skúlason »Hafnarfjörður tók nýverið upp Evoly- tes-námskerfið í öllum grunnskólum bæj- arfélagsins til að efla stærðfræðikennslu í bæjarfélaginu. Mathieu Grettir Skúlason Höfundur er framkvæmdastjóri og meðstofnandi Evolytes. Íslendingar hafa núna í fjölda ára átt met í neyslu ákveðinna ólöglegra fíkniefna ef marka má rannsóknir og samanburð á efnum í frárennsli helstu höf- uðborga þeirra landa sem við berum okkur saman við. Það sýnir okkur að við erum engan veginn að við- urkenna stöðuna á Ís- landi í dag, hvað þá að takast á við vandann. Mér finnst eins og ákveðin þöggun ríki um málaflokkinn; eins og ef við sleppum því að horfast í augu við vandann þá sé hann ekki til, eða ekki eins stór. Enginn neitar því að fíkn er heil- brigðisvandamál. Hvort sem um er að ræða matarfíkn eða fíkn í áfengi, tóbak eða ólögleg eiturlyf. Það að vera háður einhverju öðru en eigin vilja hlýtur að vera í besta falli pirr- andi, í versta falli óbærilegt og ávallt slæmt fyrir heilsu og fjölskyldu- tengsl. Ég skil mjög vel þær raddir sem halda því á lofti að neysla sé ekki glæpur heldur heilbrigðisvandamál og því sé rökrétt að afglæpavæða neysluskammta. Áhyggjur mínar snúa að því að það hefur gleymst að koma með tillögur að næsta skrefi, hvað svo? Í dag lætur allavega lög- reglan sig málaflokkinn varða. Hingað til hefur fólk ekki farið á sakaskrá fyrir vörslu á neyslu- skömmtum. Sektir fyrir neyslu- skammta eru lægri en minnstu hrað- akstursbrot. Það er ekki fyrr en málin eru orðin mun stærri að þau eru skráð inn á sakaskrá. Það að gera neysluskammta refsilausa þýð- ir einnig að lögreglan verður af mik- ilvægum upplýsingum sem eru nauðsynlegar til að takast á við og uppræta glæpahringi. Þvert á móti þarf að skapa lögreglunni fleiri tól til að takast á við skipulagða glæpa- starfsemi. Við höfum töluvert heyrt af því að alþjóðlegir glæpahringir sem hafa hreiðrað um sig á Íslandi hafi engin áhrif á líf venjulegs fólks. Það er jafnvel ýjað að því að ef þeir fái frið láti þeir okkur í friði. Þeir myrði bara innan sinna raða, ógni hver öðrum ekki okkur hin- um. Afbrot þeirra snerti einungis hinn af- markaða heim undir- heimanna þar sem glæpirnir þrífast. Markaðir þeirra eru stærri en svo, við erum að tala um börnin okkar og barnabörn. Viljum við samfélag þar sem við lifum í sátt og sam- lyndi við glæpahringi þar sem fíkni- efnasala, mansal, vændi, þjófnaður og peningaþvottur fær að þrífast í friði? Undirheimarnir eru hagn- aðardrifnir, það væri barnaskapur að ætla það að afglæpavæðing neysluskammta komi til með að leysa upp fíkniefnaheiminn. Ef lögreglan á að hætta að skipta sér af neyslu fólks, hver á þá að gera það? Ætlar starfsfólk heilbrigð- iskerfisins að fara út á kvöldin og að- stoða börn og unglinga í neyslu- vanda, bjarga þeim úr aðstæðum sem þau ráða engan veginn við og koma þeim til aðstoðar? Spurning mín er: Hverju erum við að fórna með þessari hugmynd, og hvenær gáfumst við upp á barátt- unni við eiturlyfjabarónana? Það er orðið löngu tímabært að við tökum höndum saman og treyst- um því réttarríki sem við lifum í. Færum lögreglu auknar rannsókn- arheimildir til að takast á við sí- aukna hörku í undirheimum litla Ís- lands svo við hin getum notið þess frelsis sem öryggið færir okkur. Afglæpavæðing og hvað svo? Eftir Evu Björk Harðardóttur Eva Björk Harðardóttir »Hverju erum við að fórna með þessari hugmynd, og hvenær gáfumst við upp á bar- áttunni við eiturlyfja- barónana? Höfundur sækist eftir 2.-3. sæti á lista sjálfstæðismanna í Suður- kjördæmi. eva@hotellaki.is Samningur Samein- uðu þjóðanna um rétt- indi fatlaðs fólks (SRFF) hefur það að markmiði að tryggja réttindi fatlaðs fólks til jafns við aðra. Þeg- ar ríki verður aðili samningsins ber því skylda til að tryggja og stuðla að því að öll mannréttindi og grundvallarfrelsi verði í einu og öllu að veruleika fyrir allt fatlað fólk. Áhersluatriði Öryrkjabanda- lags Ísland (ÖBÍ) taka mið af þessu fyrir alþingiskosningarnar í haust sem og 28. grein sama samnings sem fjallar um viðunandi lífskjör og félagslega vernd. Það felur í sér að aðildarríkin viðurkenni rétt fatlaðs fólks og fjölskyldna þess til við- unandi lífskjara því til handa, með- al annars viðunandi fæðis og klæða og fullnægjandi húsnæðis. Það inni- felur einnig í sér rétt- inn til sífellt batnandi lífsskilyrða og ríkin skulu gera viðeigandi ráðstafanir til að tryggja og stuðla að því að þessi réttur verði að veruleika án mismununar vegna fötlunar. Í dag er mis- munurinn áberandi mikill! Fatlað fólk svikið Ísland undirritaði samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks árið 2007 og var hann fullgiltur 2016 og átti að löggilda hann í des- ember 2020 en ríkisstjórnin sveik það. Við samningu áhersluatrið- anna voru Heimsmarkmið Samein- uðu þjóðanna einnig höfð til hlið- sjónar, sérstaklega númer 1 sem fjallar um að fátækt skuli útrýma, alls staðar og í allri sinni mynd, og númer 10 sem leggur áherslu á aukinn jöfnuð. Þessar áherslur mega frambjóðendur kynna sér sem og félagslegan veruleika fatl- aðra. Fatlað fólk myndi fagna því en það er ekki nóg að lofa, það verður að efna. Áherslur kjarahóps ÖBÍ fyrir alþingiskosningarnar 2021 1. Lífeyrir hækkaður Það er réttlætismál að lífeyrir al- mannatrygginga verði hækkaður samkvæmt skýrum reglum, sam- svarandi þeim sem gilda um þing- fararkaup, og að frítekjumörk verði hækkuð. 2. Kjaragliðnun leiðrétt Mikilvægt er að sú kjaragliðnun sem hefur átt sér stað í meira en áratug verði bætt með tímasettri áætlun. 3. Framfærslugrunnur skil- greindur Framfærslugrunnur sem byggist á óumdeildum framfærsluviðmiðum ásamt húsnæðiskostnaði verði skil- greindur. 4. Almannatryggingakerfið ein- faldað ÖBÍ leggur áherslu á að al- mannatryggingar og lífeyr- issjóðakerfið verði endurskoðað og einfaldað. Víxlverkanir verði af- numdar og dregið verulega úr tekjuskerðingum. Stjórnarflokkarnir lögðu áherslu á mörg þessara atriða í kosninga- baráttunni 2017 og hafa haft tæp fjögur ár til að efna það. Fjórum árum síðar er fatlað fólk í sömu stöðu og áður. Réttur fatlaðs fólks til félagslegrar verndar hefur verið svikinn af núverandi ríkisstjórn en samt er nóg til. Það er mikilvægt að muna það, það er nóg til! Réttur fatlaðs fólks til félagslegrar verndar Eftir Unni H. Jóhannsdóttur »Réttur fatlaðs fólks til félagslegrar verndar hefur verið svikinn af núverandi ríkisstjórn en samt er nóg til. Unnur H. Jóhannsdóttir Höfundur er kennari, blaðamaður og öryrki og situr í kjarahópi ÖBÍ. ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS HVAR ER NÆSTA VERKSTÆÐI?

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.