Morgunblaðið - 05.05.2021, Blaðsíða 18
18 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. MAÍ 2021
Atvinnuauglýsingar
Álnabær
Verslunarstarf
Starfskraftur óskast í verslun okkar
í Síðumúla 32, Reykjavík.
Vinnutími frá kl. 10-18 eða kl. 13-18
alla virka daga.
Áhugasamir sendi umsókn á
ellert@alnabaer.is
Nauðungarsala
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Hafnarstræti 1, Ísafjarðarbær, fnr. 212-5561, þingl. eig. Vilborg Edda
Torfadóttir, gerðarbeiðendur Íslandsbanki hf. og Vátryggingafélag
Íslands hf., þriðjudaginn 11. maí nk. kl. 14:00.
Stefnisgata 1, Ísafjarðarbær, fnr. 212-6806, þingl. eig. Marner
Andrew Jensen, gerðarbeiðandi Sýslumaðurinn á Suðurnesjum,
þriðjudaginn 11. maí nk. kl. 13:00.
Sýslumaðurinn á Vestfjörðum
4. maí 2021
UPPBOÐ
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á
þeim sjálfum, sem hér segir:
Miðbær, Vesturbyggð, 2,8350% ehl., fnr. 212-3347, þingl. eig.
Steingrímur Óli Einarsson, gerðarbeiðandi Sýslumaðurinn á
Norðurlandi vestra, mánudaginn 10. maí nk. kl. 10:30.
Dalbraut 11, Vesturbyggð, fnr. 212-4828, þingl. eig. Björn Magnús
Magnússon, gerðarbeiðendur ÍL-sjóður, Sýslumaðurinn á
Norðurlandi vestra og Vesturbyggð, mánudaginn 10. maí nk. kl. 15:00.
Sýslumaðurinn á Vestfjörðum
4. maí 2021
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9-12.30, nóg pláss. Söngstund við
píanóið, með Helgu kl. 13.45. Kaffi kl. 14.30-15. Bókaspjall með Hrafni
kl. 15. Vegna fjöldatakmarkana þarf að skrá sig í viðburði hjá okkur og
jafnframt er grímuskylda í Samfélagshúsinu, gestir bera ábyrgð á að
koma með eigin grímu og passa uppá sóttvarnir. Nánari upplýsingar í
síma 411 2702. Allir velkomnir.
Árskógar Smíðastofa með leiðb. kl. 9-14. Opin vinnustofa kl. 9-12.
Stóladans með Þóreyju kl. 10. Bónusbíllinn fer frá Árskógum 6-8 kl.
12.55. Spænskukennsla kl. 14. Hádegismatur kl. 11.40-12.50. Kaffisala
kl. 14.30-15.30. Heitt á könnunni, Allir velkomnir. Grímuskylda og það
þarf að skrá sig í viðburði eða hópa: 411 2600.
Boðinn Handavinnustofa er opin frá kl. 13-16, munið sóttvarnir.
Sundlaugin er opin frá kl. 13.30-16.
Bústaðakirkja Opið hús frá kl. 13-16 í dag, félagsstarf og göngutúr.
Gangan er kl. 13. Hlökkum til að sjá ykkur, við gætum sóttvarna og
fjöldatakmarkanna. Starfsfólk Fossvogsprestakalls.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffisopi og spjall kl. 8.10-11.
Upplestrarhópur Soffíu kl. 10-12. Línudans kl. 10-11. Hádegismatur kl.
11.30-12.30.Tálgun með Valdóri kl. 13-15.30. Síðdegiskaffi kl. 14.30-
15.30.
Garðabæ Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Gönguhópur fer frá
Smiðju kl. 13. Stólajóga í Jónshúsi kl. 10 og 11. Zumba í sal í kjallara
Vídalínskirkju kl. 16.30. Áfram skal gæta að handþvotti og
smitvörnum og virða 2 metra. Athugið grímuskylda.
Guðríðarkirkja Félagsstarf eldriborgara. Það verður opið hús hjá
okkur í dag kl. 12. Við pössum upp á millibilið og virðum sóttvarnir.
Byrjum með hugvekju og bæn inn í kirkju. Hrönn organisti kemur og
spilar nokkur lög og við syngjum undir hjá henni . Förum yfir vor-
ferðalagið okkar sem við erum að plana og viljum hafa ykkur með í
því og byrjum að skrá í það. Lovísa verður með mat kr. 1000.-
Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá kl. 8.30-10.30.
Útvarpsleikfimi kl. 9.45. Dansleikfimi með Auði Hörpu kl. 10. Fram-
haldssaga kl. 10.30. Opin vinnustofa-handavinnuhópur kl. 13-16.
Korpúlfar Morgunleikfimi útvarpsins kl. 9.45 í Borgum og
gönguhópar Korpúlfa kl. 10. Gengið frá Borgum og inni í Egilshöll.
Allir velkomnir, þrír styrkleikahópar allt eftir getu hvers og eins. Kaffi
á eftir í Borgum. Kvikmyndasýning kl. 13 í Borgum, gaman að sjá sem
flesta. Kaffiterían opnar strax að lokinni sýningu. Grímuskylda í
Borgum og minnum á pútt á Korpúlfsstöðum á morgun 6. maí.
Neskirkja Krossgötur kl. 13. Sr. Skúli S. Ólafsson sér um efnið.
Kaffiveitingar.
Seltjarnarnes Námskeiðin í leir og gleri eru í samráði við leið-
beinendur. Botsía á Skólabraut kl. 10. Kaffispjall í króknum alla
morgna. Handavinna, samvera og kaffi í salnum á Skólabraut kl. 13-
16. Púttvöllurinn við Skólabraut er opinn alla daga fyrir áhugasama.
Boltar og kylfur á staðnum. Á morgun fimmtudag verður félagsvist í
salnum á Skólabraut kl. 13. Allir velkomnir. Virðum sóttvarnir.
Smá- og raðauglýsingar
Bækur
Bækur til sölu
Íslenskt fornbréfasafn 1-14, ib.,
ób., Ný jarðabók fyrir Ísland
1861, Jarðatal á Íslandi 1847,
Manntalið 1703, Íslenskir
Annálar 1847, Marta og María,
Tove Kjarval 1932, áritað, Gestur
Vestfirðingur 1-5, Kollsvíkurætt,
Spænsk-Íslensk, Íslensk-Spænsk
orðabók, (gul).
Uppl. í síma 898 9475
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
.Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
.Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
.Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
.Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
.Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Bílar
Nýr Nissan Leaf e+ 62 kWh
Tekna 3ja ára evrópsk verksmiðju-
ábyrgð. Með öllu sem hægt er að fá
í þessa bíla.
1 milljón undir tilboðsverði
umboðs á aðeins 4.790.000,-
www.sparibill.is
Hátúni 6 A – sími 577 3344.
Opið kl. 12–18 virka daga.
atvinna@mbl.is
Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á
Vantar þig
fagmann?
FINNA.is
✝
Erla Mar-
inósdóttir Ol-
sen frá Hafnarfirði
fæddist 11. janúar
1932. Hún lést 23.
apríl 2021.
Foreldrar henn-
ar voru Marinó
Ólafsson Olsen, f. 8.
október 1907, d. 22.
febrúar 1954, og
kona hans Olga
Laufey Þorbjörns-
dóttir, f. 14. mars
1910, d. 16. maí 1988.
Maður Erlu var Bjarni Ólafs-
son, f. 18. október 1932 á Siglu-
firði, d. 23. febrúar 1991.
Börn þeirra: Fanney Bjarna-
dóttir, f. 24. maí 1953. Maður
hennar Gunnólfur Árnason.
Börn 4.
Ólafur Birgir Bjarnason, f.
27. nóvember 1957. Eiginkona
Ragnheiður Ragnarsdóttir.
Börn 3.
Aðalheiður Bjarnadóttir, f.
29. febrúar 1960. Maður hennar
Leifur Kristjánsson. Börn 3.
Olga Sædís Bjarnadóttir, f.
23. febrúar 1963 . Maður hennar
Guðni Sigurðsson.
Börn 4.
Laufey Dagmar
Jónsdóttir, f. 6.
september 1949.
Maki Kristinn Arn-
berg Sigurðsson, f.
23. apríl 1946, d. 20.
júní 2020. Börn 5.
Systur hennar
voru Ágústa Gunn-
hildur Olsen, f. 4.
desember 1930, d.
18. febrúar 1934.
Ágústa Olsen, f. 22. sept. 1934,
d. 10. mars 2008. Maki Þorsteinn
Sigurðsson. Sonja Olsen Valde-
marsdóttir, f. 28. ágúst 1938, d.
14. nóv. 2016. Maki Erlingur
Herbertsson. Halldóra Guðjóns-
dóttir, f. 17. júlí 1940. Maki, Ingi
Hannesson. Hafdís Ólöf Guð-
jónsdóttir, f. 12. sept. 1943. Maki
Aðalsteinn Einarsson
Útförin fer fram frá Keflavík-
urkirkju 5. maí 2021 klukkan 13.
Athöfninni verður streymt á:
https://facebook.com/groups/
erlaolsen/
Streymishlekk má finna á:
https://www.mbl.is/andlat/
Elsku fallega góða amma og
langamma okkar, nú er komið að
kveðjustund.
Þegar við hugsum til baka þá
fáum við mikla ást og hlýju í hjört-
un okkar, þú varst alltaf svo glöð
og kát. Við eigum svo margar dýr-
mætar minningar saman, og síð-
ustu ár hefur okkar samband ver-
ið mjög mikið og yndislegt. Það
var alltaf svo gaman og gott að
koma í heimsókn til þín og fá þitt
hlýja faðmlag og heyra þinn ein-
læga hlátur.
Elsku Erla amma mín, við átt-
um einstakt samband þú og ég og
finn ég fyrir miklum söknuði en
veit að þú varst tilbúin að fara í
sumarlandið. Stundirnar okkar
sem við áttum þegar ég kom til þín
og við lökkuðum neglurnar okkar
og hlustuðum á tónlist, dönsuðum
og sungum. Við fórum saman á
árshátíðina á Hlévangi, rúntinn og
í heimsóknir. Er svo þakklát fyrir
okkar samband og finnst mér ég
hafa misst mikla og góða vinkonu
og ömmu. Börnin okkar Gulla áttu
líka dásamlegt samband við þig.
Alltaf varstu svo glöð að hitta
barnabörnin þin og barnabarna-
börn og talaðir þú mikið um þau
öll.
Man þegar einhver var veikur
þá baðst þú fyrir þeim því þú vildir
ekki að neinum liði illa. Við vildum
líka allt fyrir þig gera og hjálpa
hvort sem það var að tölvan var
biluð, sjónvarpið virkaði ekki eða
að keyra þig í búð, en umfram allt
þá elskuðum við allar stundirnar
með þér.
Okkar síðustu dagar saman
verða okkur dýrmætir, þegar við
Gulli sátum hjá þér og vöktum yfir
þér, stundin sem við Gulli áttum
með þér 22. apríl er okkur svo
sterk og dýrmæt, það var því mið-
ur þá farið að draga af þér en þú
varst svo glöð og hresstist öll upp
við að sjá okkur og spjölluðum við
og hlógum mikið, enduðum þetta á
því að syngja saman þrjú lög. Var
Gulli svo dásamlegur að taka það
upp og er þetta minning sem mun
aldrei gleymast. Þegar við fórum
föðmuðumst við og þú sagðir takk
fyrir allt.
Ég mun sakna þess þegar þú
blikkaðir mig og nikkaðir höfðinu
og sendir koss á eftir manni.
Góða ferð elsku amma,
langamma og kæra vinkona,
við munum sakna þín mikið.
Takk fyrir allt elsku gull.
Við kveðjum þig með laginu
sem við sungum saman í lokin.
Er völlur grær og vetur flýr,
og vermir sólin grund.
Kem ég heim og hitti þig,
verð hjá þér alla stund.
Við byggjum saman bæ í sveit,
sem brosir móti sól.
Þar ungu lífi landið mitt
mun ljá og veita skjól.
Sól slær silfri á voga,
sjáðu jökulinn loga.
Allt er bjart yfir okkur tveim
því ég er kominn heim.
Að ferðalokum finn ég þig,
sem mér fagnar höndum tveim.
Ég er kominn heim,
já, ég er kominn heim.
(Jón Sigurðsson)
Þín
Drífa, Guðlaugur (Gulli),
Anton, Hafdís, Gunnólfur,
Tristan og Samúel.
Elsku amma Erla. Núna ertu
farin frá okkur og það er með sorg
í hjarta sem ég skrifa þessi orð.
Þegar ég rifja upp minningar um
þig man ég aðallega eftir ristaða
brauðinu og lýsispillunum sem við
fengum alltaf hjá þér og afa á
Hringbrautinni, þetta var hvergi
jafn gott og hjá ykkur. Ég man
eftir því þegar við barnabörnin
vorum orðin fullorðin og við fórum
að leita að ristinni þinni því við
vorum þess fullviss að hún væri
ástæðan fyrir því að ristaða brauð-
ið væri svona langbest hjá þér en
núna veit ég að það var bara til-
finningin að vera hjá ömmu og afa
sem gerði það svona gott.
Seinna, þegar þú varst orðin
amma í bílskúrnum, fannst mér
alltaf svo gott að koma til þín eftir
skóla því ég vildi aldrei vera ein
heima meðan mamma kláraði
vinnuna og ég vissi að þú værir
alltaf heima. Við hjúfruðum okkur
oft niður í bílskúrsholuna þína og
lásum rauðu seríuna, þar sem þú
áttir held ég allar bækurnar sem
búið var að gefa út, enda elskaðir
þú rómantískt og dramatískt les-
og sjónvarpsefni. Þú komst mér til
dæmis inn í Leiðarljós, Glæstar
vonir og Nágranna þar sem við
sátum saman alla seinniparta og
horfðum á alla þessa þætti. Oft
fannst mér skemmtilegra að horfa
á þig en sjónvarpið sjálft því þú
lifðir þig svo inn í allt efni að þú
sýndir ýktari og mun betri við-
brögð en leikararnir sjálfir.
Mér fannst alltaf gott að þú
bjóst alltaf nálægt okkur svo það
var alltaf stutt og auðvelt að nálg-
ast þig, við fórum í ófáar Reykja-
víkurferðirnar ég, þú og mamma
og fannst mér þær æðislegar, það
var mest gaman að vera með þér í
bíl þar sem þú varst svo mikill
ökuníðingur að mér fannst ég allt-
af vera í rússíbana þegar ég var
með þér í bíl.
Þegar ég varð svo ólétt að
fyrsta barninu mínu varst þú svo
spennt að þegar ég var komin upp
á spítala að eiga þá mættir þú
þangað líka til að bíða eftir að hitta
tilvonandi erfingjann. Ljósmæð-
urnar mættu inn til mín þegar
barnið var nýkomið í heiminn og
létu mig vita að amma mín biði
frammi og hvort hún mætti ekki
koma inn. Mér þótti ótrúlega vænt
um þetta.
Ég met það mikils að ég skyldi
ná að fara í nokkrar góðar utan-
landsferðir með þér þar sem við
skemmtum okkur vel með kokteila
í glasi því ekki fannst þér leiðinlegt
að sitja með börnum og barnabörn-
um og fá þér nokkra vel valda
drykki og dansa og syngja saman.
Elsku amma, ég mun alltaf
hugsa til þín með góðum minning-
um og tala um þig við börnin mín
svo að minningarnar um þig muni
lifa áfram. Hvíldu í friði.
Þín
Helga.
Í dag kveðjum við elsku ömmu
Erlu með hlýju og söknuði.
Efst í huga mér er þakklæti.
Það var alltaf gott að vera í nær-
veru þinni, hamingjusöm, orku-
mikil og alltaf til í líf og fjör. Það
var alltaf mikið ævintýri að vera í
kringum þig, þú kenndir manni
það að hamingja felst í vináttu, þú
talaðir mikið um hversu þakklát
og rík þú værir með fólkið þitt. Ef
þú bara vissir hvað við erum búin
að brosa og gráta mikið meðan við
skrifum þessi minningarorð og
hugsa út í allar þær minningar
sem við höfum.
Munum svo vel þegar þú áttir
heima í bílskúrnum hjá Óla og við
kölluðum þig alltaf ömmu í bíl-
skúrnum og var það fast við þig
mörg ár á eftir, eins með allar
stundirnar og spjöllin okkar sam-
an, þegar þú baðst mann alltaf að
fara á KFC fyrir þig þar sem það
var þinn uppáhaldskjúklingur og
auðvitað gerði maður alltaf spes
ferð þangað fyrir þig, eins þegar
þú baðst mann um að fara í ríkið
fyrir þig og kaupa vodka handa
þér og svo má ekki gleyma þeim
goslokum sem þú komst á ekki
fyrir svo mörgum árum þegar þú
skemmtir þér langbest af öllum.
Það er erfitt að sitja og rifja upp
minningar um ömmu. Það er erfitt
að trúa því að hún hafi yfirgefið
okkur. Hún var alltaf með gleði í
hjarta og tilbúin að skemmta sér
og öðrum. Hún var tilbúin að tak-
ast á við öll verkefni. Var alltaf já-
kvæð alveg sama hvað. Það var
alltaf gaman að vera heima hjá
ömmu og afa. Brauðristin var í
miklu uppáhaldi hjá mér. Hef ekki
fengið jafn gott ristað brauð og hjá
ömmu og afa. Jólaboðin, sumarfrí-
in og veislurnar verða aldrei eins.
Gleðin var alltaf ríkjandi hjá ömmu
og afa. En það er gott að vita af því
að nú hafa þau sameinast aftur. Ég
trúi ekki öðru en það verði mikil
gleði og skemmtun eins og þeim er
einum lagið.
Alltaf var stutt í hláturinn og
grínið hjá þér og var alltaf svo
gaman að spjalla við þig.
Hvíldu í friði elsku amma, nú
tekur nýr kafli við, vit ævintýr-
anna með afa Bjarna í sumarlandi.
Þú átt alltaf stóran hluta af hjarta
okkar.
Þú varst okkur amma svo undur góð
og eftirlétst okkur dýran sjóð,
með bænum og blessun þinni.
Í barnsins hjarta var sæði sáð,
er síðan blómgast af Drottins náð,
sá ávöxtur geymist inni.
Við allt viljum þakka amma mín,
indælu og blíðu faðmlög þín,
þú vafðir oss vina armi.
Hjá vanga þínum var frið að fá
þá féllu tárin af votri brá,
við brostum hjá þínum barmi.
Við kveðjum þig elsku amma mín,
í upphæðum blessuð sólin skín,
þar englar þér vaka yfir.
Með kærleika ert þú kvödd í dag,
því komið er undir sólarlag,
en minninga ljós þitt lifir.
Leiddu svo ömmu góði guð
í gleðinnar sælu lífsfögnuð,
við minningu munum geyma.
Sofðu svo amma sætt og rótt,
við segjum af hjarta góða nótt.
Það harma þig allir heima.
(Halldór Jónsson)
Elsku amma, takk fyrir sam-
verustundirnar.
Sverrir, Jóna Gréta, Kristinn,
Ragnheiður, Guðný Erla,
Tryggvi Stein, Sigurður (Siggi)
Guðna og langömmubörnin.
Erla María Olsen