Morgunblaðið - 25.05.2021, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 25.05.2021, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. MAÍ 2021 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Bi rt m eð fy rir va ra um pr en tv ill ur .H ei m sf er ði rá sk ilj a sé rr ét tt il le ið ré tti ng a á sl ík u. At h. að ve rð ge tu rb re ys tá n fy rir va ra . 595 1000 16. júní í 7 nætur Verð frá kr. 78.600 Tenerife PARATILBOÐ Framkvæmdir við grjótgarð vegna nýs athafnasvæðis á Bíldudal ganga vel. Fyllt verður upp í svæðið fyrir innan og þar verður úthlutað lóðum fyrir þjónustu við laxeldið og aðra auk þess sem Íslenska kalkþör- ungafélagið fær stækkun á verk- smiðjulóð sinni. Laxeldið á Vestfjörðum hefur aukist mikið síðustu ár. Þröngt er um starfsemi Arnarlax og engar þjónustulóðir að hafa. Þá hefur fengist leyfi til stækkunar kalkþörungaverksmiðjunnar. Unnið hefur verið að stækkun hafnarinnar á Bíldudal vegna aukinna umsvifa. Hafnarkant- urinn hefur verið lengdur með því að stálþil var rekið niður og tilboð í að steypa þekjuna verða opnuð í vikunni, að sögn Elfars Steins Karlssonar hafnarstjóra. Nú er unnið að landvinningum með því að bæta við athafna- svæði enda ekkert svæði í þétt- býlinu eða í tengslum við höfn- ina til að sinna auknum þörfum. Fyrirtækið Allt í járnum annast grjótgarðinn og tilfærslu á frá- rennslislögn. Klárast verkið á næstu dögum. helgi@mbl.is Morgunblaðið/Guðlaugur Albertsson Aukið við landið vegna umsvifa Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Nei, ég tel að þetta eigi ekki að hafa nein áhrif. Við höldum ótrauð áfram,“ segir Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri í Hafnarfirði, spurð hvort álit Umhverfisstofnunar um að nauðsynlegt sé að fram fari mat á umhverfisáhrifum byggingar knatt- húss íþróttfélagsins Hauka á Ásvöll- um hafi áhrif á áformin. Rósa segir að skipulag svæðisins og framkvæmdir hafi verið undir- búnar í góðan tíma og mikið samráð haft við Skipulagsstofnun. Telur hún að verkefnið hafi verið undirbúið eins vel og unnt er. Skipulagsstofnun er með skipulag svæðisins til um- fjöllunar og spurningu um hvort krafist verð- ur umhverfis- mats. Fram kem- ur í svari Um- hverfisstofnunar til Skipulagsstofn- unar að bygging knatthússins muni hafa talsvert neikvæð sjónræn áhrif innan frið- landsins að Ástjörn og hætta sé á að framkvæmdin hafi varanleg áhrif á vatnafar Ástjarnar og lífríki hennar en að mögulega megi koma í veg fyr- ir þau áhrif með mótvægisaðgerðum. Rósa segir að Hafnarfjarðarbær hafi fengið verkfræðistofu til að gera úttekt á umhverfisáhrifum fram- kvæmda í grennd við Ástjörn. Nið- urstaðan sé að framkvæmdin hafi engin áhrif á svæðið en lagðar til var- úðarráðstafanir vegna fuglalífs. „Við höfum vandað til verka og höldum áfram með þetta verkefni.“ 100 íbúðir verði á svæðinu Auk knatthúss og fleiri fram- kvæmda á íþróttasvæðinu gerir skipulag bæjarins ráð fyrir að hægt verði að byggja um 100 íbúðir á landi sem áður tilheyrði Haukum. Undirbúningur stendur þannig að beðið er endanlegs samþykkis Skipu- lagsstofnunar. Verkið er hafið með hönnunarvinnu. Bæjarstjórinn tók fyrstu skóflustunguna að knatthús- inu í síðasta mánuði þegar 90 ára af- mæli Hauka var fagnað. Vakti Um- hverfisstofnun athygli á því í bréfi sínu og benti á að niðurstaða þyrfti að liggja fyrir um umhverfismat áð- ur en leyfi verði veitt til nokkurra framkvæmda. Rósa segir að skóflu- stungan hafi aðeins verið táknræn aðgerð í tilefni af afmæli Hauka og verklegar framkvæmdir séu ekki hafnar. „Íbúðarhúsalóðirnar eru á frá- bærum stað. Vonandi getum við aug- lýst þær og úthlutað sem allra fyrst. Mikilvægt er að þetta verkefni fari á fljúgandi ferð og við höfum ekki ástæðu til að ætla annað en að það verði,“ segir Rósa. Vel staðið að undirbúningi - Bæjarstjórinn í Hafnarfirði telur að ósk Umhverfisstofnunar um umhverfismat hafi ekki áhrif á byggingu knatthúss á Ásvöllum eða úthlutun íbúðarhúsalóða Rósa Guðbjartsdóttir Sonja Sif Þórólfsdóttir sonja@mbl.is Umhverfis- og samgöngunefnd Kópavogs hafnaði tillögu um að há- markshraði á Austurkór og Kóra- vegi yrði hækkaður úr 30 km/klst. í 40 km/klst. Báðar götur eru skil- greindar sem íbúðagötur en rökin fyrir hækkun hámarkshraða voru þær að ökumenn keyrðu hvort sem er mun hraðar en hámarkshraði á skiltum gæfi til kynna. Samkvæmt umferðarmælingu var algengasti hraði 45 km/klst á Aust- urkór en á Kóravegi 56 km/klst. Ef hámarkshraði yrði hækkaður myndu ökumenn mögulega bera meiri virð- ingu fyrir skiltuðum hámarkshraða og hraðakstur myndi vonandi minnka. Nefndin samþykkti tillögu um lækkun hámarkshraða á Sala- vegi úr 50 km/klst. í 40 km/klst. Á Seltjarnarnesi samþykkti skipu- lags- og umferðarnefnd tillögu um að lækka hámarkshraða á Lindarbraut og Nesvegi úr 50 km/klst. niður í 40 km/klst. Göturnar eru skilgreindar sem safngötur, þ.e. eru meginleiðir innan hverfa sem flytja umferð frá húsagötum að tengibrautum. Áður hafði hámarkshraði við Suðurströnd verið lækkaður í 30 km/klst. Höfnuðu hraðahækkunum - Tillögu um hækkun hámarkshraða á tveimur götum í Kópavogi hafnað - Lækka umferðarhraða á Seltjarnarnesi Morgunblaðið/Sigurður Bogi Hafnað Hámarkshraði verður ekki hækkaður á Austurkór og Kóravegi. Fjallgöngumennirnir Heimir Fann- ar Hallgrímsson og Sigurður Bjarni Sveinsson náðu tindi Everest-fjalls um klukkan 22:30 á sunnudags- kvöldið að íslenskum tíma. Fjallið klifu þeir í nafni Umhyggu – félags langveikra barna. Ferðin gekk ekki áfallalaust fyrir sig en Sigurður meiddist á hné í maíbyrjun og þurfti að dvelja í viku í Katmandú. Hann sneri aftur 15. maí í grunn- búðir fjallsins og ferðin á tindinn hófst nokkrum dögum seinna. Þeir eru nú á niðurleið af fjallinu og voru komnir í búðir 2 í gærkvöldi. Á tindinum Heimir og Sigurður náðu tind- inum á Everest á sunnudagskvöldið. Tveir Íslendingar náðu tindi Everest

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.