Morgunblaðið - 25.05.2021, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. MAÍ 2021
Smiðjuvegi 34 • gul gata Kópavogi • biljofur@biljofur.is
Viðgerðir // Bilanagreining // Varahlutir // Smurþjónusta
544 5151tímapantanir
Rótgróið fyrirtæki, starfrækt frá 1992
Sérhæfð þjónusta fyrir
Allar almennar BÍLAVIÐGERÐIR
Bíljöfur ehf er stoltur aðili að kynna
aðgerðir ríkisstjórnarinnar
ALLIR VINNA sem felur í sér
endurgreiðslu á VSK
af vinnulið einkabifreiða
Förum yfir bifreiðar fyrir aðalskoðun/endurskoðun
og förum með bifreiðina í skoðun
Þjónustuaðilar IB Selfossi
Funahöfða 7, 110 Reykjavík | Sími 577 6666
., '*
-�-"%
,�rKu!,
KIEL/ - OG FRYSTITJEKI
Iðnaðareiningar
í miklu úrvali
Ný slökkviskjóla fyrir þyrlu Land-
helgisgæslunnar er komin í notkun.
Þyrluáhöfn æfði sig með skjóluna á
Drageyri við Skorradalsvatn síðast-
liðinn laugardag og gekk æfingin
vel.
Landhelgisgæslan hefur átt
slökkviskjólu frá árinu 2007, eftir
gróðureldana á Mýrum. Starfsmenn
Gæslunnar hafa síðustu ár vakið at-
hygli á því að skjólan væri komin til
ára sinna og ekki hægt að treysta á
hana til langframa. Í skógareldum
sem komu upp í byrjun maí var þyrl-
an að störfum með þennan búnað en
hann bilaði í sautjándu ferðinni og
ekki tókst að koma honum í lag.
Strax var gengið í það að fá nýja
skjólu en slíkur búnaður liggur ekki
á lausu, eins og Ásgeir Erlendsson
upplýsingafulltrúi Landhelgisgæsl-
unnar segir. Tókst að finna eina í
Kanada og er hún nú komin í notk-
un. Sá galli er á gjöf Njarðar að
skjólan er af fyrstu kynslóð slíks
búnaðar, eldri tækni en sú sem
Gæslan var áður með. Nú eru hins
vegar mest notaðar skjólur af þriðju
kynslóð. Ásgeir segir að nýja skjólan
sé svipuð og sú sem Gæslan hefur
haft en hægt sé að fylla þær allra
nýjustu á grynnra vatni. Hafin er
vinna við að finna þannig skjólu og
segir Ásgeir að óskastaðan sé að fá
þrjár svo hægt sé að nota fleiri þyrl-
ur við slökkvistörf á sama tíma.
helgi@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Skorradalur Þyrla Landhelgisgæslunnar við slökkviæfingu. Ausið var sex sinnum úr nýju skjólunni.
Þyrluáhöfn æfir slökkvi-
störf með nýrri skjólu
- Vinna hafin við að útvega betri búnað - Vilja helst þrjár
Búnaður Brynhildur Ásta Bjartmarz flugmaður þyrlunnar og Daníel
Hjaltason, flugvirki og spilmaður, skoða skjóluna fyrir æfingu.
Tekið á loft Einn úr áhöfninni þarf að halda í skjóluna í flugtaki.
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
„Það var ljóst í okkar huga að þessi
vinnubrögð væru skaðleg fyrir sam-
keppni á raforku-
markaði, skaðleg
fyrir neytendur
og ekki síst fyrir
skattgreiðendur í
Reykjavík.“ Þetta
segir Magnús
Júlíusson, fram-
kvæmdastjóri Ís-
lenskrar orku-
miðlunar ehf. sem
skaut máli til
kærunefndar út-
boðsmála sem nú hefur komist að
þeirri niðurstöðu að Reykjavíkur-
borg beri að bjóða út raforkukaup
sín. Frá öndverðu hefur borgin
keypt rafmagn af dótturfyrirtækjum
sínum og frá árinu 2018 hefur það
verið gert án afsláttarkjara, þ.e. að
viðskiptin hafa átt sér stað á grund-
velli ríkjandi verðskrár Orku náttúr-
unnar.
„Það sjá allir að stórkaupandi eins
og Reykjavíkurborg á ekki að greiða
sama verð fyrir orkuna og þeir sem
kaupa minnsta magnið, þ.e. heimilin.
Að kaupa raforku fyrir 300 milljónir
króna á ári gerir samningsstöðu
borgarinnar allt aðra,“ segir Magn-
ús.
Getur sparað 30%
Spurður hvað borgin eigi að greiða
fyrir rafmagnið segir Magnús að það
geti útboð aðeins leitt í ljós.
„Ef horft er til útboða sem opin-
berir aðilar hafa ráðist í að undan-
förnu má gera ráð fyrir að verðið
liggi einhvers staðar á bilinu 4,5 til
5,0 krónur á hverja kílóvattsstund.“
Miðað við upplýsingar í úrskurði
kærunefndarinnar virðist verðið
sem borgin hefur greitt síðustu ár
hafa verið 6,43 kr. á kílóvattsstund.
Það þýðir að borgin hefur greitt allt
að 30% of hátt verð fyrir orkuna mið-
að við það sem útboð hefði getað skil-
að henni.
Sé miðað við að innkaup borgar-
innar hafi verið 300 milljónir á síð-
asta ári myndi útboð geta skilað sem
svarar 90 milljónum króna á árs
grundvelli.
Fáránlegar röksemdir
Magnús segir mikilvægt að þessi
niðurstaða sé komin í málið og að
væntingar standi til þess að borgin
komi sér út úr þessu ólögmæta
ástandi við orkuinnkaup við fyrsta
tækifæri.
„Í svörum borgarinnar var reynt
að tína allt til sem hugsast gat. T.d.
var því haldið fram að með útboði
væri teflt á tvær hættur með afhend-
ingaröryggi til lykilstofnana á borð
við leikskóla og dvalarheimili. Engin
slík rök eiga við. Sveitarfélögin hafa
hvert á fætur öðru farið þessa leið og
boðið innkaupin út. Enginn hefur
orðið rafmagnslaus við það en meira
hefur setið eftir á reikningum sveit-
arfélaganna og er ekki vanþörf á
miðað við stöðuna víða.“
Hefur greitt tugi milljóna að óþörfu
- Framkvæmdastjóri ÍO segir jákvætt að kærunefnd útboðsmála slái á puttana á Reykjavíkurborg
- Mikilvægt sé fyrir borgina að leita allra leiða til þess að fara vel með fjármuni skattgreiðenda
Morgunblaðið/ÞÖK
Útboð Borgin hefur þráast við og ekki viljað bjóða út rafmagnsinnkaup sín.
Magnús
Júlíusson
Daði og Gagnamagnið lentu í 4.
sæti í Eurovision-söngvakeppninni
sem fór fram á laugardagskvöld.
Hlutu þau alls 378 stig. Sveitin steig
ekki á svið vegna kórónuveirusmits
sem kom upp hjá liðsmanni sveit-
arinnar í síðustu viku og var upp-
taka af æfingu notuð í staðinn.
Rokksveitin Måneskin frá Ítalíu
sigraði í keppninni með 524 stig. Í
öðru sæti varð Frakkland með 499
stig og í þriðja sæti Sviss með 432
stig. Forsprakki Måneskin, Damino
David, var sakaður um að hafa
neytt kókaíns í græna herberginu
meðan á útsendingu stóð. Í útsend-
ingunni má sjá David beygja sig
niður og félaga hans Thomas Raggi
hnippa í hann þegar hann sá
myndavélarnar. David neitaði ásök-
ununum, fór í lyfjapróf við heim-
komuna og reyndist það neikvætt.
Ísland í 4. sæti í annað skipti í Eurovision