Morgunblaðið - 25.05.2021, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. MAÍ 2021
Jón Magnússon fv. alþing-ismaður skrifar:
- - -
Fjölmiðlar í okk-ar heimshluta
sem og stjórn-
málamenn hafa
vart mátt vatni
halda yfir við-
brögðum Ísr-
aelsmanna við
árásum Hamas-liða á ísraelska
borgara. Á sama tíma er stríð í
gangi, mun alvarlegra og kostar
margfalt fleiri mannslíf.
- - -
En því hafa íslenskir fjölmiðlaralgerlega gleymt. Sex mán-
uðir eru liðnir frá innrás Eþíóp-
íuhers inn á land Tigray-fólksins
í Eþíópíu með stuðningi hers Eri-
treu. Forsætisráðherra Eþíópíu,
Abiy Ahmed, friðarverðlaunahafi
Nóbels, vílar ekki fyrir sér, að
ráðast gegn þjóðarbroti Tigray í
landinu. Sagt er að tugir þúsunda
hafi fallið og mun fleiri flúið til
nágrannaríkisins Kenýa. Auk
þess að drepa tugi þúsunda eru
heilu þorpin brennd, konum
nauðgað kerfisbundið og grunur
leikur á að óleyfileg efnavopn séu
notuð gegn þjóðarbroti Tigray í
Eþíópíu.
- - -
Hvað veldur því að þettahroðalega stríð fer fram hjá
fjölmiðlum að mestu og hvernig
stendur á því að alþjóða-
samfélagið lætur þetta viðgang-
ast. Af hverju er ekki kallað eftir
fundum í Öryggisráði Sameinuðu
þjóðanna og af hverju er Banda-
ríkjaforseti ekki krafinn um að-
gerðir og afstöðu eins og þegar
Hamas-liðar eiga í hlut. Eða þá
Katrín Jakobsdóttir forsætisráð-
herra.
- - -
Því miður sýnir þetta þá dap-urlegu staðreynd hvar nú-
tímafjölmiðlun er stödd og
hversu sérpólitísk hún er.“
Jón Magnússon
Til eru tískustríð
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
AÐAL FUNDUR
Aðalfundur landsamtakanna Spítalinn okkar verður
haldinn þriðjudaginn 25. maí 2021 kl. 16.00 á Nauthól,
Nauthólsvegi 106 í stóra salnum.
DAGSKRÁ
1. Kosning fundarstjóra og fundarritara
2. Skýrsla stjórnar lögð fram
3. Reikningar lagðir fram til samþykktar
4. Lagabreytingar
5. Ákvörðun félagsgjalds
6. Kosning stjórnar og tveggja skoðunarmanna reikninga
7. Önnur mál.
Að loknum aðalfundarstörfum verða flutt tvö erindi;
Hringbrautarverkefnið – staðan í dag
- Gunnar Svavarsson, framkvæmdastjóri NLSH
Nútímaleg og batamiðuð umgjörð
um geðþjónustu Landspítala
- Nanna Briem geðlæknir og forstöðumaður
geðþjónustu Landspítala
Lokaorð – Héðinn Unnsteinsson, formaður Geðhjálpar
Stjórn Spítalans okkar
Greidd verða atkvæði um tillögur að
sameiningu sveitarfélaga á tveimur
svæðum annan laugardag, 5. júní.
Kosið verður um sameiningu Blöndu-
ósbæjar, Sveitarfélagsins Skaga-
strandar, Húnavatnshrepps og
Skagabyggðar í Austur-Húnavatns-
sýslu og Þingeyjarsveitar og Skútu-
staðahrepps í Suður-Þingeyjarsýslu.
Verði sameining samþykkt renna
sveitarfélögin saman í júní á næsta
ári. Kosið verður til nýrra sveitar-
stjórna við almennar sveitarstjórnar-
kosningar í lok maí 2022.
Tillögur kynntar
Unnið er að kynningu á áhrifum
sameiningar á báðum stöðum. Það er
gert með fundum og útgáfu upplýs-
ingabæklinga. Þá stendur utankjör-
fundaratkvæðagreiðsla yfir á báðum
svæðum.
Ýmis mál hafa verið til umfjöllunar
á kynningarfundum. Í Austur-Húna-
vatnssýslu virðast fjármál einstakra
sveitarfélaga vera heitt umræðuefni
meðal íbúa. Alls staðar þar sem sam-
eining er rædd er spurt um rekstur
skóla og staðsetningu stjórnsýslunn-
ar. Í Austur-Húnavatnssýslu verður
Húnavallaskóli sameinaður Blöndu-
ósskóla, verði af sameiningu. Þá eru
tillögur um að stjórnsýslu- og fjár-
málasvið, þróunarsvið og hafnamál í
nýju sveitarfélagi hafi aðalstarfsstöð
á Skagaströnd en velferðarsvið, fram-
kvæmdasvið, skipulags- og bygg-
ingafulltrúi og slökkviliðsstjóri hafi
aðalstarfsstöð á Blönduósi.
helgi@mbl.is
Atkvæðagreiðslur um sameiningu
- Kosið um sameiningu sveitarfélaga á tveimur svæðum laugardaginn 5. júní
- Stjórnsýsla í Austur-Húnavatnssýslu skiptist milli Skagastrandar og Blönduóss
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Unnið er að því að hefja Skíðaskál-
ann í Hveradölum til vegs og virð-
ingar á ný. Í því skyni verður komið
upp aðstöðu til útivistar og afþrey-
ingar fyrir fjölskyldur. Og veitingar
verða í boði í Skíðaskálanum.
Á undanförnum árum hafa eig-
endur Skíðaskálans unnið að því að
koma upp baðlóni í nágrenni skál-
ans. Það verkefni er í umhverf-
ismatsferli. Eigendurnir ákváðu að
skipta eignunum upp. Hjónin Ólöf
Ásta Guðmundsdóttir og Grettir
Rúnarsson tóku yfir Skíðaskálann
og hans næsta umhverfi og fengu til
liðs við sig Döðlur studio en stjórn-
endur ferðaþjónustufyrirtækisins
Gray Line halda áfram með bað-
lónsverkefnið.
Höfðað til fjölskyldna
Gerðir hafa verið göngustígar í
kringum Skíðaskálann og verður því
verki haldið áfram og sögu stað-
arins gerð skil. Þar gegna hverirnir
miklu hlutverki og þar er gufubað
og gróðurhús sem eru meðal elstu
mannvirkja af þessu tagi á landinu.
Fyrirhugað er að stækka baðað-
stöðuna.
Næsta vetur stendur til að endur-
vekja litlar skíðalyftur og í undir-
búningi er að koma upp zipp-línum
af ýmsum lengdum sem fólk getur
notað til að renna sér niður af fjall-
inu, sömuleiðis veglegum klifur-
garði. Grettir segir að verið sé að
ræða við Orkuveitu Reykjavíkur um
leyfi til að fara út í þessi verkefni en
hún á landið.
„Það er margt í gangi en ekkert
risastórt. Við viljum byggja á því
sem er til staðar. Allt snýst þetta
um að fjölskyldur komi hingað til að
stunda útivist og fari svo í gufubað á
eftir og njóti veitinga sem boðið er
upp á í Skíðaskálanum,“ segir
Grettir.
Lítil starfsemi hefur verið á veit-
ingastaðnum og nokkur ár liðin frá
því hætt var að bjóða upp á vinsæl
jólahlaðborð. Þar hafa þó verið
haldnar einstaka veislur. Ætlunin er
að halda áfram á þeirri braut og
endurvekja jólahlaðborðin. Auglýst
hefur verið eftir fólki eða fyrirtæki
til að annast veitingareksturinn.
Grettir segir að fljótlega verði opn-
að fyrir bókanir á veislum en reikn-
ar ekki með að almennur veit-
ingarekstur verði fyrr en með
haustinu.
Nærri 90 ára saga
Skíðafélag Reykjavíkur byggði
Skíðaskálann árið 1934 og var hann
rekinn sem slíkur í áratugi. Hann
var síðar aðallega rekinn sem veit-
ingastaður. Skálinn brann í byrjun
árs 1991 en nýtt bjálkahús var
byggt á grunninum og tekið í notk-
un rúmu ári síðar.
Aðstaða til útivistar og
afþreyingar í Hveradölum
- Stærra gufubað, zipp-lína og klifurgarður meðal nýjunga
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Hveradalir Umhverfi Skíðaskálans
er vinsæll áningarstaður.
fasteignir