Morgunblaðið - 25.05.2021, Side 10
Sala áfengis í Vínbúðunum 2020
Heildarsala áfengis, milljónir lítra 2012-2020 Mest seldist af bjór árið 2020
Innlendur bjór áfram mest seldur
Íslendingar elska ítölsk vín
Sala rauð-
víns árið
2020 eftir
löndum
25
20
15
10
5
0
Heimild: Vínbúðin
2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018 2019 2020
7,4 lítrar af hreinu alkóhóli varheildarsala á hvern lands-
mann, 15 ára og eldri, á síðasta ári, þar
af voru seldir 6,5 lítrar í Vínbúðunum.
Söluhæsta Vínbúð
landsins er eins og
síðustu ár við Dalveg
í Kópavogi. Þar komu
tæpir 4 milljarðar
króna í kassann á
síðasta ári.
Minnst seldist aftur á móti
í Vínbúðinni á Djúpavogi.
Þar var innkoman rétt um
30 milljónir króna.
Íslendingar kaupa léttvín
í magninnkaupum
51%
af se
ldu r
auðv
íni
og h
vítví
ni í
Vínb
úðun
um
eru
í bel
jum
og
fern
um
Bjór 20.584.000 lítrar
Létt vín 4.781.000 lítrar
Sterk vín 1.445.000 lítrar
4.000.000.000 kr.
30.000.000 kr.
Al
ls
26
.8
10
.0
00
lít
ra
r á
rið
20
20
77%
18%
5%Bjór Létt vín Sterkt vín
Samtals
80%
70%
60%
50%
74%
67%
65%
'11 '12 '13 '14 '15 '16 '17 '18 '19 '20
ÁTVR
18,5 18,7 19,2
19,6
20,9
21,9 22,0
22,7
26,8
Ítalía 39%
Spánn 18%
Chile 13%
Bandaríkin 8%
Frakkland 8%
Argentína 5%
Önnur lönd 9%
17,6 milljarðarkróna
skiluðu sér til
ríkissjóðs í formi
áfengisgjalds. Það
er 3,4milljörðum
meira en árið 2019.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Sala á áfengi jókst um ríflega 18% í
lítrum talið í Vínbúðunum í fyrra.
Þessa miklu aukningu má rekja til
kórónuveirufaraldursins og afleið-
inga hans; samkomutakmarkana og
að ferðalög til annarra landa lögðust
því sem næst af.
Í nýútkominni ársskýrslu ÁTVR
er rakið að heildarvelta fyrirtækisins
fór yfir 50 milljarða á síðasta ári og
hefur aldrei verið meiri. Viðskipta-
vinum fjölgaði um 8,5% og voru þeir
5,5 milljónir. Alls keyptu þeir 26,8
milljónir lítra af áfengi fyrir 38,4
milljarða.
Víking Gylltur vinsælastur
Þegar rýnt er í einstaka þætti árs-
skýrslunnar má sjá ýmislegt forvitni-
legt er snýr að neyslumynstri Íslend-
inga. Eins og fyrri ár sker ein tegund
lagerbjórs sig úr þegar kemur að sölu
í Vínbúðunum. Íslendingar vilja fá
sinn Víking og þeir vilja hafa hann
Gylltan í hálfs lítra dósum. Alls seld-
ust 1.340.000 lítrar af þessum vinsæla
bjór í fyrra, næstum tvöfalt meira en
af Gull Lite sem er næstvinsælasti
bjórinn. Skammt þar á eftir koma
Boli, Víking lager og Tuborg. Þá
njóta Egils Gull, Tuborg Classic,
Faxe Premium og Víking Lite sömu-
leiðis vinsælda. Stella Artois skríður
svo í tíunda sætið yfir mest seldu lag-
erbjórana og er það eini bjórinn af
þeim vinsælustu sem ekki er í hálfs
lítra dósum.
Í flokknum öl og aðrar bjórtegund-
ir er Víking Lite Lime mest selda
tegundin. Þar njóta svokallaðir White
Ale-bjórar frá Einstakri líka vin-
sælda. Einu erlendu bjórarnir á list-
anum eru Guinness, Kronenbourg
Blanc og Albani Mosaic IPA.
Ítölsk vín þau vinsælustu
Þegar horft er til léttvína er ljóst að
Íslendingar kjósa helst vín frá Ítalíu.
Um 39% rauðvína sem hér seljast eru
ítölsk og hafa vinsældir þeirra aukist
talsvert síðustu fimm árin. Sama gild-
ir um hvítvín en 28% seldra hvítvína
eru ítölsk.
Sopinn er dýr á Íslandi enda skatt-
lagður í botn og það skýrir kannski að
flestir virðast kjósa að kaupa léttvín í
beljum og fernum. Þá eru flest vin-
sælustu vínin í flokki þeirra ódýrustu
sem fást í ríkinu.
Ódýr vín á beljum
Mest selda rauðvínið á Íslandi er
Tommasi Appassionato Graticcio,
hvort sem litið er til belja eða flaska.
Næstvinælasta flöskuvínið er Baron
de Ley Reserva frá Spáni. Af hvítvín-
um rennur Montalto Pinot Grigio
helst ofan í fólk úr beljum en Barefoot
Pinot Grigio er mest selda hvítvínið í
flöskum. Aðeins eitt vín frá Frakk-
landi kemst inn á lista yfir mest seldu
léttvínin; E. Guigal Cotes du Rhone-
rauðvín í flösku.
Þegar heildarsala áfengis er skoð-
uð eftir löndum má sjá að tæp 54%
seldra lítra er íslensk framleiðsla.
Ræðst það af vinsældum íslenska
bjórsins. Um 11% seldra lítra eru
vörur frá Danmörku en 6,5% frá Ítal-
íu.
Yfir fjögur þúsund tegundir
Morgunblaðið greindi frá því um
daginn að allt að ársbið væri eftir því
að koma vörum í reynslusölu í Vín-
búðunum. Því er áhugavert að sjá
fjölda seldra vörutegunda. Heildar-
fjöldi seldra tegunda var 4.407 í fyrra.
Bjórsala stendur undir 46% af tekjum
Vínbúðanna en er aðeins 22% af fjölda
tegunda í vöruvali. Rauðvín skila 19%
af tekjunum en eru 30% vörufram-
boðsins. Hvítvín skila 9% af tekjunum
en taka 16% af vöruframboðinu.
Vodka skilar aftur á móti 6% af tekj-
unum en er aðeins 2% af vörufram-
boði.
Aukin sala á sígarettum
Sala á sígarettum jókst um tæp
12% á síðasta ári. Alls seldust sem
nemur 32 sígarettupökkum á hvern
landsmann eldri en 15 ára, tveimur
fleiri en árið á undan. Sala á vindlum
og reyktóbaki jókst sömuleiðis milli
ára en sala á neftóbaki hjá ÁTVR
hrundi hins vegar. Samdráttur í sölu
nam tæpum 34% frá 2019 og hefur vin-
sældum nikótínpúða verið kennt um.
Vilja bjórinn í
stórri dós og
vínið úr beljum
- Stóraukin sala áfengis í Vínbúðum í fyrra
- Íslenskur bjór og ítölsk vín vinsælust
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. MAÍ 2021
vottun reynsla
ára
ábyrgð
gæði
miðstöðvarofnar
Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - sími 577 5177 - ofnasmidja.is
Eigum úrval af
miðstöðvar- og handklæðaofnum
hafðu það notalegt
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Ég hef verið í hestamennsku frá því
ég man eftir mér og öll fjölskylda mín.
Hestafræðinámið á Hólum var eina
námið sem mér leist á, það kom ekkert
annað til greina,“ segir Valdís Björk
Guðmundsdóttir sem fékk helstu verð-
laun sem veitt eru við lok BS-náms í
reiðmennsku og reiðkennslu frá Há-
skólanum á Hólum.
Tuttugu nemendur útskrifuðust úr
hestafræðideild Hólaskóla í ár. Verð-
laun voru afhent við reiðsýningu nem-
enda sem fram fór síðastliðinn laug-
ardag og var felld inn í dagskrá
hestaíþróttamóts Ungmenna-
sambands Skagafjarðar og hesta-
mannafélagsins Skagfirðings sem
fram fór á mótssvæðinu á Hólum.
Skemmtilegur tími
Valdís Björk fékk verðlaunagripinn
Morgunblaðshnakkinn fyrir besta
heildarárangur í öllum reið-
mennskuáföngum í náminu og verð-
laun Félags tamningamanna fyrir
besta árangur í lokaprófi í reið-
mennsku.
Valdís Björk er alinn upp í Kópa-
vogi en er ættuð úr Borgarfirði. Afi
hennar, Skúli Kristjónsson í Svigna-
skarði, var einn þekktasti hestamaður
landsins á sinni tíð.
Hún hefur mikinn áhuga á hestum,
eins og allir í fjölskyldunni, og hefur
keppt mikið í yngri flokkum og einnig
eftir að hún fluttist í fullorðinsflokk.
Hún hefur komist í úrslit á mörgum
mótum, síðast á Reykjavíkurmeist-
aramótinu á síðasta ári. Þar var hún
með Fjólu frá Eskiholti 2 sem hún
segir að hafi komið sér í gegnum nám-
ið á Hólum. Aðspurð segir hún að
miklu máli skipti fyrir árangur í nám-
inu að vera vel hestaður.
Hestafræðin er þriggja ára nám.
Valdís segir að þetta hafi verið afar
lærdómsríkur og skemmtilegur tími.
„Ég kynntist fullt af góðu fólki og fékk
góða kennslu sem ég mun taka með
mér út í lífið.“
Temur og þjálfar
Valdís ætlar að nota þekkinguna og
reynsluna til að stunda tamningar og
þjálfun. Hún vinnur sjálfstætt að verk-
efnum og hefur aðstöðu í Brekku í
Biskupstungum ásamt kærasta sínum,
Jóni Óskari Jóhannessyni. Aðstaðan
er góð, nýtt hesthús og reiðhöll.
Eina námið sem
kom til greina
- Valdís Björk hlaut verðlaun á Hólum