Morgunblaðið - 25.05.2021, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 25.05.2021, Qupperneq 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. MAÍ 2021 Netverslun skornir.is SMÁRALIND www.skornir.is Flex&Go Í skóna er notað hágæða leður sem og náttúruleg efni, sem gerir það að verkum að skórnir falla vel að fætinum og eru einstaklega þægilegir. Verð 17.995 Stærðir 36-42 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Forstjóri Kirkjugarða Reykjavík- urprófastsdæma telur engar líkur á því að rekstri bálstofunnar verði sett- ur það strangur rammi að ekki geti allir sem þess óska fengið bálför eftir andlát. „Það er fráleitt að hægt sé að setja slík skilyrði og þekkist hvergi á byggðu bóli. Þetta er val sem fólk hefur og við verðum að laga okkur að því,“ segir Þórsteinn Ragnarsson. Bálstofa kirkju- garðanna í Foss- vogi er flokkuð sem mengandi starfsemi og veitir Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur starfsleyfi. Heftandi skilyrði Til stendur að gefa út nýtt starfs- leyfi og eru skilyrðin strangari en áð- ur, samkvæmt drögum sem kynnt hafa verið í umhverfis- og heilbrigð- isráði Reykjavíkur. Meðal annars stendur til að gera kröfu um að brennsla á virkum dögum fari fram á milli klukkan sjö og þrjú til að valda nágrönnum ekki óþægindum. Þá er það skrifað inn í starfsleyfisskilyrðin að innleiða skuli hreinsibúnað í bál- stofunni innan fjögurra ára. Þórsteinn segist hafa mótmælt sumum skilyrðum og hversu stuttur tími átti að vera til aðlögunar. Hann veit ekki til að starfsleyfið hafi verið afgreitt eða auglýst. Hann segir að það hafi komið á óvart að setja ætti tímamörk á brennslu yfir daginn, til viðbótar öðr- um skilyrðum. Það sé heftandi fyrir starfsemina. Það sé þó hægt að leysa með því að brenna alla daga vikunnar en það hefur aðeins verið gert til- tekna taka til þessa. Eins telur hann að hægt verði að brenna um helgar, ef á þurfi að halda. „Svona skilyrði verða aldrei látin stöðva líkbrennslu á Ís- landi, sérviska í einum eða tveimur mönnum getur aldrei ráðið því,“ segir Þórsteinn. Í drögum að starfsleyfi kemur fram krafa um að mæla kvikasilfur í jarðvegi næst bálstofunni innan árs. Þórsteinn segir fyrirhugað að gera það í haust. Getur hann þess að slíkar mælingar hafi verið verðar fyrir tíu árum og þær sýnt að mengun var langt undir öllum viðmiðunargildum. Bendir hann á að þótt bálförum hafi fjölgað mjög á þessum tíma sé hóp- urinn að breytast, minna kvikasilfur sé í tönnum þess fólks sem nú lætur brenna sig en var í fyrri hópum. Þess vegna telur hann engar líkur á að mengun hafi aukist í takti við fjölgun bálfara. Nýjar bálstofur eru með tækni sem fangar spilliefni. Bálstofan í Fossvogi er hins vegar frá árinu 1948. Verður henni gert að koma upp slíkum bún- aði innan fjögurra ára. „Það hefur verið stefnt að því að koma upp nýrri bálstofu í Gufunesi. Það mál er í vinnslu og unnið er að kostnaðaráætl- un um byggingu og rekstur hennar. Innan kirkjugarðaráðs er nefnd sem vinnur að þessu máli og við erum einnig í sambandi við okkar fagráðu- neyti, dómsmálaráðuneytið. Ætlunin er að ríki, sveitarfélög og kirkjugarð- arnir sameinist um þessa fram- kvæmd. Það gæti orðið innan átta ára. Ég er þess fullviss að heilbrigð- iseftirlitið muni framlengja heimild okkar til að nota núverandi bálstofu, ef útlit er fyrir að ný bálstofa komist í gagnið á næstu árum,“ segir Þór- steinn. Það er ríkið sem greiðir kostn- að við líkbrennslu. Getur hann þess að danskir sér- fræðingar komi til landsins í haust til þess að meta það hvað þurfi að gera til að halda núverandi bálstofu öruggri og gangandi þann tíma sem líður þangað til ný bálstofa rís. Vinn- an hefur tafist um ár vegna kórónu- veirufaraldursins. „Þeir vita það hjá heilbrigðiseftirlitinu að við erum öll af vilja gerð til þess að hafa hlutina í lagi. Þeir eru í lagi. Það er engin löggjöf sem krefst þess að við grípum strax til ráðstafana,“ segir Þórsteinn. Ekki hægt að takmarka bálfarir - Takmarka á notkun bálstofunnar í Fossvogi á daginn og gerðar kröfur um mengunarvarnabúnað - Forstjórinn segir að fólk verði að hafa val um bálför - Stefnt að byggingu nýrrar bálstofu í Gufunesi Fjöldi látinna Fjöldi bálfara Hlutfall bálfara af fjölda látinna Sífellt fleiri kjósa bálför Hlutfall duftkerja af fjölda útfara á höfuðborgarsvæðinu 2015-2020 Hllutfall bálfara 2000-2020, landið allt Bálfarir árið 2020, landið allt 2015 2016 2017 2018 2019 2020 60% 55% 50% 45% 40% 2000 2010 2020 41% Alls 2.359 látnir 974 bálfarir 12% 43% 45% 50% 53% 54% 55% 22% 41% Þórsteinn Ragnarsson Bálförum hefur fjölgað mjög hér á landi. Ef litið er til landsins alls hefur hlutfall bálfara aukist úr 12% í 41% á tveimur áratugum. Hlutfallið er hærra á höfuðborg- arsvæðinu þar sem 55% útfara eru með duftkerjum. Snerist hlutfallið við fyrir þremur árum og hefur meirihlutinn verið brenndur síðan. Hlutfallið hér er mun lægra en í Danmörku og Svíþjóð þar sem yfir 70% láta brenna líkams- leifar sínar. Hlutfallið er enn hærra í stórum borgum í þessum löndum. Hlutfallið er lægra í Noregi og erum við að ná Norð- mönnum, í þessu efni. 41% grafin í duftkerjum BÁLFÖRUM FJÖLGAR Morgunblaðið/Kristinn Líkbrennsla Tveir líkbrennsluofnar hafa verið í landinu frá árinu 1948. Bálfarir eru 41% allra útfara hér á landi. Ljósmynd/Árni Rúnar Hrólfsson Verðlaunahafi Valdís Björk Guðmundsdóttir með verðlaunin. Hún situr Fjólu frá Eskiholti 2 sem hún segir að hafi komið sér í gegnum námið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.